Tíminn - 30.03.1989, Qupperneq 4
Borgnesingar, nærsveitir.
Spilum félagsvist í samkomuhúsinu Borgarnesi föstudaginn 31. mars
kl. 20.30.
Fyrsta kvöldið í 3 kvölda keppni.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgarness.
Konur á Höfn og nágrenni Fundur um sveitarstjórnarmál verður haldinn á Höfn Hornafirði föstudaginn 31. mars kl. 20.30. Gestir fundarins verða: Guðrún Jónsdóttir, bæjarfulltrúi og Unnur Stefánsdóttir formaður LFK. Allar áhugakonur um sveitastjórnarmál eru velkomnar. Stjórn LFK U nnur Stefánsdóttir
Sigrún Magnúsdóttir
Létt spjall á laugardegi
Er sameiginlegt framboð stjórnarandstöðunnar í borgarstjórn Reykja-
víkur vænlegur kostur í næstu borgarstjórnarkosningum sem verða
vorið 1990?
Þetta og margt fleira munum við taka til umræðu á léttum spjallfundi
laugardaginn 1. apríl n.k.
Fundurinn verður haldinn í Nóatúni 21 og hefst kl. 10.30. Stefnt er að
því að fundinum sé lokið kl. 12.00.
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi mun á fundinum reifa þær hug-
myndir sem uppi hafa verið að undanförnu um hugsanlegt sameigin-
legt framboð stjórnarandstöðuflokkanna i borgarstjórn Reykjavíkur.
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Reykjavík.
Suðurland
FUF í Árnessýslu
og Félag framsóknarkvenna i Árnessýslu áformar að halda félags-
málanámskeið í lok mars og i apríl. Um er að ræða byrjenda- og
framhaldsnámskeið. Námskeiðin eru öllum opin sem áhuga hafa.
Þátttaka tilkynnist sem fyrst til formanna félaganna.
Sigurðar Eyþórssonar í síma 34691
og Ólafíu Ingólfsdóttur í síma 63388.
FUF og FFÁ.
Sunnlendingar
Framsóknarfélögin í Árnessýslu halda sína árlegu árshátíð síðasta
vetrardag 19. apríl í Hótel Selfoss.
Allir velkomnir. Nánar auglýst síðar.
Nefndin.
Kópavogur
Skrifstofan í Hamraborg 5 er opin þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-13.
Sími 41590. Heitt á könnunni.
Opið hús alla miðvikudaga kl.17-19. Félagsmenn eru hvattir til að
líta inn og taka með sér gesti. Eflum flokksstarfið.
Framsóknarfélögin í Kópavogi.
Páskahappdrætti SUF 1989
Útdráttur í Páskahapprirætti SUF er hafinn.
Vinningsnúmer eru sem hér segir:
20. mars, vinningur nr. 1, 5242
vinningur nr. 2, 3145
21. mars, vinningur nr. 3, 1995
vinningur nr. 4, 144
22. mars, vinningur nr. 5, 538
vinningur nr. 6, 7401
Vegna fjölda áskorana eru númerin fyrir dagana 23. til 26. mars í innsigli hjá borgarfógeta til 5. apríl 1989. Vinsamlegast gerið skil fyrir þann tíma. Enn er tækifæri til að hljóta glæsilega vinninga. Hvert miðanúmer gildir alla útdráttardagana það er 20. til 26. mars
1989.
Munið, ykkar stuðningur styrkir okkar starf.
SUF
Fimmtudagur 30. mars 1989
Astbjörn Egilsson t'ramkvænidastjóri Miöbæjarsanitakanna og Helga Mogensen veitingakona sem stendur á bak
viö hugmyndina aö Markaðstorginu í Kolaportinu, bílageymslunni undir Seðlabankanum.
Líf og fjör í Kolaportinu um helgar:
Markaðstorg í
öllum veðrum
Laugardaginn áttunda apríl verður opnað markaðstorg í
Kolaportinu undir Seðlabankahúsinu. Þar mun hver sem er
geta selt hvað sem er og eitt af meginmarkmiðum aðstand-
enda markaðarins er að skapa skemmtilega stemmningu.
I Kolaportinu stcndur til að gefa
mislyndum veðurguðum langt nef.
En þeir hafa hingað til oft minnt
óþægilcga mikið á sig þegar halda
hefur átt markaði utan dyra. með
rigningu, snjókomu og því um líku.
Til stendur að markaðurinn verði
opinn á hverjum laugardegi frá tíu á
morgnana til fjögur um eftirmiðdag-
inn. Alls verða um 180 sölubásar á
svæðinu sem hægt verður að leigja.
Leigan fyrir daginn kemur til með að
vera 2500 krónur fyrir einstaklinga
og 3500 fyrir fyrirtæki. Hver sölubás
er fimmtán fernretrar að flatarmáli
en auk básanna verður hægt að
leigja söluborð og slár á vægu verði.
Tekið er við pöntunum á skrifstofu
Markaðstorgsins.
Á torginu verður hægt að selja allt
sem mönnum dettur í hug, svo lengi
sem það cr innan ramma laga og
velsæmis. Þó verða þeir sem ætla að
selja veitingar að semja um það
sérstaklega.
Áhersla verður lögð á að fá fjöl-
skyldur til að rýma geymslur sínar
og bjóða náunganum varninginn til
kaups. Þá munu kaupmenn bjóða
gamlar og nýjar birgðir til sölu,
félagasamtök selja varning mark-
miðum sínum til stuðnings og fleira.
„Ætlunin er að ná upp skemmti-
legri stemmningu. Með fullri virð-
ingu fyrir kaupmönnum stefnum við
að því að þetta verði öðruvísi mark-
aður en allir þeir útsölumarkaðir
sem eru svo víða. Að þarna konti
fólk til að sýna sig og sjá aðra, auk
þess að selja og kaupa vörur,“ sagði
Jens Ingólfsson í samtali við Tímann
en hann er einn þeirra sem unnið
hefur að framkvæmdinni. Hann
sagði hugmyndina vera þá að fólk
gæti nýtt bílastæðin á móti Kolaport-
inu á meðan það bregður sér á
markaðinn. En ef vel viðrar kemur
jafnvel til greina að snúa dæminu
við. geyma bílana í Kolaportinu og
halda markaðinn utan dyra.
Aðstandendur Markaðstorgsins
eru Helga Mogensen, annar eigandi
veitingahússins „Á næstu grösurn"
og Miðbæjarsamtökin með aðstoð
Reykjavíkurborgar. Til að byrja
með verður markaðurinn haldinn.
til reynslu. á hverjum laugardegi í
tvo mánuði. Að þeim tíma liðnum
verða málin athuguð á ný og haldið
áfram ef aðsókn verður góð.
jkb
Þorrablót
í Björgvin
Þorrablót var haldið á vegum
íslendingafélagsins í Björgvin og
nágrenni 25. febrúar s.l. en þá var
jafnframt haldið upp á 30 ára afmæli
félagsins. Að því tilefni var fyrsta
stjórn félagsins heiðruð ásamt öðr-
um upphafsmönnum þess.
Hátíðina sóttu um 150 manns, þar
á meðal sendiherra íslands í Noregi,
Níels P. Sigurðsson.
Maturinn var sendur frá íslandi og
rann hann Ijúft niður við undirleik
hljómsveitar Ingimars Eydal, sem
hélt uppi dansi ogsöngfram á nótt.
Nokkrum blaðamönnum frá
stærsta dagblaðinu í Björgvin var
boðið að vera við þorrablótið og
birtist löng grein í fyrrgreindu blaði
með myndum. Á forsíðu blaðsins
birtist mynd af íslenskri blómarós
þar sem hún gæðir sér á súrsuðum
hrútspungum eða „surna vérpung"
upp á norsku. SSH
Núverandi stjórn og fyrsta stjóm íslendingafélagsins. F.v. Anna Stella
Karlsdóttir, Júlíana Vaktskjold, Gottfred Kvinge, Jóhanna Saxvig, Anna
Kristín Helgadóttir, Páll Snorrason, Sigurlína Gunnarsdóttir og Guðmundur
Gunnarsson.