Tíminn - 29.08.1992, Page 2
2 Tíminn
Laugardagur 29. ágúst 1992
Meirihluti þjóðarinnar andvígur EES samningnum. Almenn þekking á málinu virðist lítil:
Þýðir eitthvað að bera
EES undir þjóðaratkvæði?
Páll Pétursson, Framsóknarflokki:
Meirihluti svarenda
er andvígur EES
„Það sem stendur upp úr þessari
skoðanakönnun er það að meiri-
hluti þeirra sem tóku afstöðu er
andvígur EES-samningnum,“ segir
Páll Pétursson, þingflokksformað-
ur Framsóknarflokksins.
Páll segir að það sé spurning um
kjark að svara um hvað menn viti
mikið um málið. „Ég er ekkert
hissa á því þó maðurinn á götunni
treysti sér ekki til að fullyrða í síma
að hann þekki málið mjög vel.
Það er auðvitað einhver hluti
þjóðarinnar sem ekki er vel með á
nótunum ennþá en ég held að
menn megi ekki gera of mikið úr
því,“ segir Páll. Þannig hafi m.a.
nýkjörinn formaður utanríkis-
málanefndar verið einn af þeim
sem töldu sig þekkja þessi mál
mjög vel. „Ég er ekkert viss um að
aðrir nefndarmenn utanríkismála-
nefndar, sem eru þó búnir að vinna
í málinu í allt sumar treysti sér til
að fullyrða svona,“ bendir Páll á.
„Menn mega ekki gera of mikið úr
því þó að það sé ekki há prósenta
svarenda sem telji sig þekkja mjög
vel þessar tíu þúsund síður sem
þarna eru,“ heldur Páll áfram.
Hann bendir á að misvægi sé milli
landsbyggðar og Reykjavíkur í
svarendahópnum og vegi Reykvík-
ingar meira en landsbyggðin. Þá
fari það alls ekki eftir flokkslínum
nema að hluta til hvort menn eru
fylgjandi samningnum eða ekki.
Vantraust á samningnum nái langt
inn í raðir stjórnarflokkanna.
„Þannig sést að fullyrðing utan-
ríkisráðherra í framsöguræðu hans
um EES-málið, þar sem hann taldi
þjóðina svo vitlausa að hún gæti
ekki tekið afstöðu til málsins og
Páll Pétursson, Framsóknar-
flokki.
myndi kjósa eftir flokkslínum, er
sýnilega alröng," segir Páll.
Þá sé það íhugunarefni að þessi
könnun sé gerð af krataráðherrum
og sé kostuð af þeirra ráðuneytum.
Páll segir það vera einkennilegt að
ráðuneyti sjálfstæðismanna skuli
ekki koma nærri könnuninni, alla
vega ekki sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneyti.
„Það er athyglisvert að könnun-
inni var stungið undir stól þegar í
ljós kom að hún var óhagstæð mál-
stað utanríkisráðherra því meiri-
hluti var á móti EES-samningnum.
Þá ákveður hann að stinga þessu
undir stól en gloprar því út úr sér á
Alþingi að þeir sem viti mikið um
málið hafi meira traust á samn-
ingnum en hinir,“ segir Páll. Hann
bætir við að það hafi fengist með
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kvennalista:
Þjóðaratkvæði mun
upplýsa þjóðina
,JVlér sýnist á könnuninni að af-
staða manna farí alls ekki eftir
flokkspólitískum línum. Niður-
staða þjóðaratkvæðagreiðslu færi
því ekki eftir þeim nema í litlum
mæli,“ segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir Kvennalistaþingmaður.
„Þar að auki finnst mér þetta sýna
betur en margt annað hvfiík nauð-
syn það er að upplýsa þjóðina. Ég
held að besta leiðin til þess sé þjóð-
aratkvæðagreiðsla þar sem upplýs-
ingin kemur frá aðilum með mis-
munandi skoðanir.
Þessi könnun sýnir betur en margt
annað að svokölluð upplýsingarher-
ferð utanríkisráðherra hefur alger-
lega mistekist. Utanríkisráðherra
hefur ekki komið neinum upplýs-
ingum á framfæri við þjóðina af því
að hún treystir ekki þeim upplýsing-
um sem hún fær þaðan. Fólk er ekki
móttækilegt fyrir upplýsingum sem
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
Kvennalista.
það treystir ekki,“ sagði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir að lokum.
31,7% landsmanna
andvíg EES en 26,9%
fylgjandi ef marka má
könnun ÍM Gallup
sem geró var fyrir ut-
anríkisráðuneytið og
fór leynt þar til í
fyrradag. Af könnun-
inni má einnig ráða
að um 80% þjóðar-
innar vita ekkert um
EES.
Nokkrir forsvars-
menn stjómarand-
stöðunnar voru inntir
eftir því hvort eðlilegt
væri að efna til þjóð-
aratkvæðagreiðslu um
málið í Ijósi þessa og
jafnframt hvort at-
kvæðagreiðslan myndi
snúast um allt annað
og fara eftir flokks-
pólitískum línum eins
og m.a. Jón Baldvin
Hannibalsson utan-
ríkisráðherra hefur
haldið fram.
eftirgangsmunum að birta könn-
unina og þá hafi utanríkisráðu-
neytið verið búið að liggja lengi á
henni.
Önnur felukönnun
„Á fundi utanríkismálanefndar í
morgun kom í ljós að ein svona
könnun hefur verið gerð áður fyrir
utanríkisráðuneytið og falin þar.
Hún mun hafa verið gerð einhvern
tímann í fyrravetur. Við erum bún-
ir að krefjast þess að fá hana birta.
Ég hef krafist þess í utanríkismála-
nefnd að fá aðrar kannanir sem
hafa verið gerðar og faldar í ráðu-
neytinu. Öll þessi málsmeðferð er
ákaflega einkennileg og afar tor-
tryggileg. Það eru ráðnar auglýs-
ingastofur til þess að kynna málið.
Þær vinna skrumauglýsingar upp
úr fullyrðingaromsu utanríkisráð-
herra og svo er ætlast til að þjóðin
taki mark á því,“ segir Páll.
„Það þarf að standa allt öðruvísi að
kyrtningu málsins með hlutlægari
hætti en utanríkisráðherra gerir.
Hann er fyrst og fremst í því að
selja samninginn svo ég er ekkert
undrandi á því þó að þjóðin gleypi
ekki allt hrátt sem frá utanríkisráð-
herra kemur um þetta mál,“ segir
Páll. „Ef utanríkisráðherra hefur
kynnt sig þannig hjá þjóðinni að
hún trúi honum ekki lengur þá
verður bara að hafa það. Þetta er af-
drifaríkasta mál sem þjóðin hefur
staðið fyrir frá lýðveldisstofnun.
Það er ákaflega eðlilegt að þjóðin
fái að segja sitt álit á þessu. Þjóðar-
atkvæðagreiðsla yrði ekki bindandi
heldur leiðbeinandi. Ég lít svo á að
stjórnarflokkunum sé mikil nauð-
syn á slíkri leiðbeiningu," sagði
Páll að lokum.
Ólafur Ragnar Grímsson, Alþýðubandalagi:
Könnunin styiur
kröfuna um þjóðarat-
kvæðagreiislu
„Þessi könnun styður mjög kröfur
um þjóðaratkvæðagreiðslu. í fyrsta
lagi kemur fram, alveg þveröfugt við
það sem Jón Baldvin sagði á þing-
inu, að afstaða manna til EES-samn-
ingsins fer ekki eftir stjómmála-
flokkum þannig að Jón Baldvin hef-
ur beinlínis farið rangt með enn á ný
í fyrri ræðu sinni,“ segir Ólafur
Ragnar Grímsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins.
„Það kemur t.d. fram í könnuninni
að það er minnihluti kjósenda ríkis-
stjómarinnar sem styður EES-
samninginn. Það gera 41,6% kjós-
enda Sjálfstæðisflokksins og 52,8%
kjósenda Alþýðuflokksins. Þegar
þetta er lagt saman er niðurstaðan
minnihluti kjósenda stjórnarflokk-
anna.“
Ólafur Ragnar bendir á að í öllum
flokkum sé einhver stuðningur við
EES-samninginn og öllum flokkum
andstaða. „Þessi könnun staðfestir
það að afstaða fólksins í landinu til
EES fer ekki eftir afstöðunni til
stjómmálaflokka. Það em auðvitað
veigamestu rökin fyrir því að láta
þjóðina dæma.
Þessi könnun leiðir í ljós að stjórn-
arflokkarnir hafa ekki lýðræðislegt
umboð meirihluta kjósenda sinna
þegar þeir leggja saman og það er
auðvitað mjög merkilegt að aðeins
52,8% kjósanda Alþýðuflokksins em
fylgjandi en minnihluti allra ann-
arra flokka þannig að utanríkisráð-
herra rétt mer 2,8% umfram helm-
ing í sínum eigin kjósendahópi. í
öllum öðrum flokkum, þar með
töldum Sjálfstæðisflokknum, er það
minnihluti kjósenda sem styður
samninginn.
{öðm lagi finnst mér ályktun skoð-
anafyrirtækisins um vankunnáttu
almennings ekki vera á rökum reist
þegar ég fer sem fræðimaður að
skoða þessa könnun. Þegar skoðuð
em svörin um erlenda fjárfestingu,
vinnuafl o.fl. þá kemur greinilega
fram að mikill meirihluti fólks hefur
ályktað alveg rétt. Það virðist alveg
hafa nægilegar og skýrar upplýsing-
ar um það,“ segir Ólafur.
Hann nefnir sem dæmi að menn
séu spurðir um það hvort íslending-
ar geti stjórnað aðsókn vinnuafls frá
aðildarríkjum EB með aðild að EES.
Með réttu segi 43% að þetta sé ekki
rétt fullyrðing. „Þannig er hægt að
taka fjölmargar spurningar sem af-
gerandi hluti svarenda svarar efnis-
lega alveg rétt. Ég sé nú ekki á
hverju þessi ályktun er í raun og
veru byggð. Það er alveg ljóst af
þessari könnun að ríkisstjórnin hef-
ur ekkert lýðræðislegt umboð frá
þjóðinni til að afgreiða samning-
inn," segir Ólafur.
Hann er ánægður með að í könn-
uninni komi fram stuðningur við
stefnu Alþýðubandalagsins um það
að reyna verði á það hvort hægt sé
Ólafur Ragnar Grímsson, Al-
þýðubandalagi.
að ná hagstæðari samningi en EES
samningnum í tvíhliða viðræðum
milli íslands og EB. „Það kemur
fram að 33,5% eru sammála því og
28% eru ósammála," segir Ólafur.
„Ég hlýt að draga þá ályktun af
þessari könnun að ég hafi sem for-
maður í Alþýðubandalaginu afger-
andi stuðning við stefnu okkar um
tvíhliða samning meðal þjóðarinnar.
Jón Baldvin hefur alls ekki stuðning
við sína stefnu um EES-samning.
Það kemur fram afgerandi vantraust
gagnvart þeirri kynningu sem fer
fram á vegum ráðuneytanna en að-
eins 13% treysta upplýsingum það-
an en 31,8% treysta upplýsingum frá
Alþingi og 27,7% frá fjölmiðlum.
Tíu sóttu um stöðu
framkvæmdastjóra
Kvikmyndasjóðs:
Bryndís
Schram nýr
stjórnandi
Menntamálaráðherra setti í
gær Bryndísi Schram fram-
kvæmdastjóra Kvikmynda-
sjóðs í eitt ár
AUs bárust 10 umsóknir um
starfið og var Bryndís róðin að
tillögu sjóðstjómar sem mælti
með henni til starfans.
Þá hefur menntamálaráð-
herra nýlega sett Halidór Har-
aldsson í embætti skólastjóra
Tónlistarskólans í Reykjavík
en tvær umsóknir bárust um
það starf. -HÞ