Tíminn - 29.08.1992, Side 10
10 Tíminn
Laugardagur 29. ágúst 1992
Sagt frá tillögum Ráðgjafanefndar um upplýsinga og tölvumál:
Lækka kostnað viö tilboðsgerö
í frétt frá fjármálaráðuneyti segir að ráðgjafanefnd um upp-
lýsinga- og tölvumál (RUT) hafi nú gert fjármálaráðherra
grein fyrir niðurstöðum ítarlegrar könnunar á reynslu opin-
berra stofanana og þjónustyfyrirtækja af útboðum á tölvu-
búnaði. Nefndin starfar á vegum fjármálaráðuenytisins og í
henni sitja einstaklingar með víðtæka reynslu í upplýsinga-
tækni, bæði úr opinberri stjórnsýslu og einkarekstri.
í framhaldi af könnuninni hefur
nefndin lagt fram tillögur til úrbóta
um framkvæmd útboða, störf ráð-
gjafa og aðra þætti sem snerta tölvu-
mál hins opinbera.
Neíndin leggur áherslu á að lækka
kostnað og umstang við útboð og
tilboðsgerð. TVyggja þarf aukið upp-
lýsingastreymi til markaðarins.
Samdar verði sérstakar reglur fyrir
alútboð og gerður staðall að útboði
algengra kerfa. Þá telur nefndin að
endurskoða eigi tilhögun á innkaup-
um einmenningstölva fyrir ríkið
enda sé það ekki nauðsynlegt til að
ná hagstæðu verði.
Nefndin telur mikilvægt að ríkið
velji staðla í upplýsingatækni og gefi
út leiðbeiningar þar um. Stofnaður
verði sérstakur vettvangur, tækni-
nefnd, skipuð fulltrúum hagsmuna-
aðila til ráðgjafar við þetta verkefni.
Reglumar verði í stöðugri endur-
skoðun.
Nefndin telur mikilvægt að störf
ráðgjafa verði gerð markvissari. í
garð starfandi ráðgjafa á markaðin-
um gætir vissrar tortryggni sem
nefndin telur að þurfi að eyða.
Leggja verður áherslu á að störf ráð-
gjafa beinist að lausn viðfangsefnis
fremur en tæknilegri útfærslu bún-
aðar. Greina þarf á milli ólíkra starfa
ráðgjafa svo sem hönnunar, verk-
efnastjómar, stjómunar- og rekstr-
arráðgjafar og eftirlits.
Nefndin leggur áherslu á að til
ákveðinna tölvukerfa sem nefnd
hafa verið landskerfi verði gerðar
sérstakar kröfur. Lagt er til að eig-
endur landskerfa skilgreini hlutverk
þeirra og að settar verði reglur um
hönnun og notkun þeirra.
Skýrsluvélar ríkisins gegna mikil-
vægu hlutverki í opinberri tölvu-
vinnslu. Að mati nefndarinnar er
tímabært að ræða hlutverk og fram-
tíðarstefnu Skýrr. Þá telur hún að
gefa beri einkafýrirtækjum kost á að
hanna opinber tölvukerfi til vinnslu
í tölvum Skýrr hafi þau getu til
slíkra verkefna.
Tölvunotkun er mikilvægur þáttur
í opinberri stjómsýslu. Nefndin
bendir á að huga verði sérstaklega
að þætti tölvuvæðingar þegar lög
em sett og reglugerðir gefnar út.
Mest selda fartölvan í Evrópu, Macintosh
PowerBook, hefur löngu sannað yfirburði sína
varðandi afköst, notendaviðmót og vinnslugetu
við hefðbundna tölvuvinnslu.
Hún vegur aðeins 2,3 kg, tekur svipað pláss og
A4-blað og er með einstakan gæðaskjá.
Evrópumeistarinn...
Vegna hagstæðra samninga getum við nú boðið
þessa vinsælu fartölvu á aðeins 127.553,- kr. eða
119.900, - stgr. (með VSK). Grunnverð var áður:
196.900, -
PowerBook 100 er meðfærileg og er einstaklega
þægileg fyrir þá sem vilja vera á ferð og flugi og
geta unnið á fullkomna Macintosh-tölvu hvar sem
þeir eru staddir. Við tölvuna má tengja mótald sem
gerir mögulegt að tengjast við tölvur á íslandi þótt
notandinn sé í öðrum heimshluta auk þess að
senda fax beint úr tölvunni.
Hún er með alíslenskan kerfishugbúnað og hægt er
að nota öll helstu Macintosh-forritin í henni. Sé
hún tengd við aðra Macintosh-tölvu ræsist hún sem
harðdiskuf á þeirri tölvu, tilbúin til gagnaflutnings
eða frekari vinnslu.
Macintosh PowerBook 100:
4 Mb vinnsluminni, 40 Mb innbyggður harðdiskur,
1,4 Mb diskadrif, 9" baklýstur Supertwist-fljótandi
krystalsskjár, íslenskur kerfishugbúnaður, innbyggt
net-tengi, innbyggður hátalari og tengill íyrir
magnara, möguleiki á minnisstækkun og
innbyggðu faxmótaldi. Þyngd: 2,3 kg.
Apple-umboðið
Skipholti 21, Rvk. Sími: 91-624800
Upplýsingamark-
aöur — mikilvæg-
ur og vaxandi
Það færist í vöxt að opinberar
stofnanir og einkafyrirtæki bjóði út
kaup á upplýsingabúnaði. Á markaði
fyrir tölvur og upplýsingabúnað rík-
ir hörð samkeppni sem hefur lækk-
að verð og þannig reynst kaupend-
um hagstæð. Verð á ýmsum upplýs-
ingabúnaði, sérstaklega einmenn-
ingstölvum, er lágt hér á landi
samanborið við önnur Evrópulönd.
Má vafalítið rekja það til samkeppn-
innar og þess hve tölvunotkun er út-
breidd.
Upplýsingamarkaðurinn hefur vax-
ið hröðum skrefum og er talið að
hann velti liðlega 9 milljörðum
króna á ári. íslensk fyrirtæki og op-
inberar stofnanir veita hlutfallslega
ekki minna fé til tölvuvæðingar en
gerist í grannlöndunum. Innan
fárra ára gæti upplýsingamarkaður-
inn að óbreyttu velt jafnmiklu og
varið er til nýbygginga íbúðarhús-
næðis.
Þörf á skýrum
reglum
Reglur um viðskipti á svo mikil-
vægum markaði verða að vera skýr-
ar. Lengi vel skorti formlegar reglur
til að fylgja við útboð á vélbúnaði og
hugbúnaði. Að undanfömu hefur
komist nokkur festa á útboðin. Má
meðal annars rekja það til útgáfu
staðals um útboð tölvubúnaðar, ÍST
32, og handbókar RUT-nefndar um
val á upplýsingakerfúm og mat á
valkostum sem fjármálaráðuneytið
gaf út (Upplýsingakerfi ríkisstofnana
— mat á valkostum 2. útg. 1991).
Nefndin hefur um árabil haft for-
göngu um samningu reglna fyrir
ríkið sem einkaaðilar hafa oft not-
fært sér. Hinn almenni markaður
lítur mjög til opinberrar forystu í
þessum efnum og fyrirtæki sem
selja upplýsingabúnað gera almennt
strangar kröfur til þess að ríkið fylgi
stöðlum og reglum við tölvukaup.
Könnun á opin-
berum útboðum
á tölvubúnadi
Nokkur opinber útboð á tölvubún-
aði hafa nýverið verið gagnrýnd af
seljendum. í nokkrum tilvikum hafa
verið lagðar fram formlegar kvart-
anir og blaðaskrif orðið. RUT- nefnd-
in ákvað, með hliðsjón af fyrri störf-
um sínum, að kanna hvemig útboð
ríkisstofnana á tölvubúnaði hefðu
þróast og gera jafnframt úttekt á nú-
verandi ástandi. Tveir nefndar-
manna, Kjartan Ólafsson viðskipta-
fræðingur, varaformaður nefndar-
innar, og Stefán Ingólfsson verk-
fræðingur gerðu könnunina. Þeir
ræddu ítarlega við seljendur þjón-
ustu, fulltrúa opinberra stofhana
sem keypt hafa tölvubúnað nýlega
og ráðgjafa, alls 20 óskylda aðila.
Niðurstöður könnunarinnar og
reynsla af öðrum málum liggja til
grundvallar tillögum sem nefndin
gerir til úrbóta og setur fram í sér-
stakri skýrslu.