Tíminn - 29.08.1992, Blaðsíða 17
Laugardagur 29. ágúst 1992
Tíminn 17
William Vinicombe eignaöist barn meö tiu ára gamalli stúlku.
Róbert var kennt aö hata fööur sinn og aö lokum fékk þaö hatur
harkalega útrás.
sagði hann. „Ég hef ekki efiii á að
veita þér það sem þú átt skilið, en ég
ætla að sjá til þess að mannskepnan,
sem eyðilagði líf okkar, fái að gjalda
fyrir það dýru verði.“
Móðir háns reyndi að stöðva hann
og bað hann um að hlusta á það sem
hún hefði að segja. En það var til
einskis, Róbert gekk út og skellti á
eftir sér.
Róbert ók sem leið lá heim til föður
síns, sem bjó í mjög glæsilegu húsi.
Þegar þangað var komið spurði hann
eftir William Vini og var vísað inn á
skrifstofu hans.
Róbert virti fyrir sér íburðinn, sem
alls staðar mætti augum hans, og
hugsaði til helsjúkrar móður sinnar í
fátæklegri íbúðinni.
,Att þú erindi við mig?“ sagði grá-
hærður maður er sat við skrifborðið.
Róbert hélt það nú. Hatrið vamaði
honum nær máls, er hann tjáði Willi-
am Vini að það væri sonur hans er
stæði fyrir framan hann.
William Vini spurði hvort það væru
peningar sem hann vildi. Róbert
kvað svo vera. Hann og móðir hans
hefðu barist í bökkum alla ævi sök-
um þess, er hann gerði henni er hún
var aðeins tíu ára gömul.
„Þú hefur aldrei spurt um mig, aldr-
ei sent mér svo mikið sem krónu. Ef
þú lætur mig ekki fá peninga núna,
mun ég láta konu þína vita fyrir hvað
þú sast í fangelsi í fimm ár,“ sagði Ró-
bert
William Vini starði á hann. „Þú get-
ur fengið alla þá peninga sem þú vilt
Ég hóf að senda móður þinni pen-
inga um leið og ég losnaði úr fangels-
inu. Ég hef alltaf sent peninga, en
þeir voru alltaf endursendir ásamt
gjöfiim og bréfum sem ég sendi líka."
Nú tapaði Róbert sér alveg. „Þetta er
ekkert annað en andskotans lygi. Þú
myrtir móður mína og hún deyr ein-
hvem næstu daga fyrir þinn tilverkn-
að,“ æpti hann.
Faðir hans sagði að frekari samræð-
ur þeirra á milli væru greinilega
gagnslausar og bað hann um að fara.
Þá sortnaði Róbert fyrir augum og
áður en hann vissi af hafði hann
dregið upp marghleypuna og skotið
föður sinn. Fyrsta skotið hæfði Vini í
kviðarholið, annað í hjartað og það
þriðja í höfuðið.
Róbert féll allur ketill í eld, er hann
gerði sér grein fyrir því hvað hann
hafði gert. Hann flúði út um glugg-
ann og keyrði beina leið heim til sín.
Sannleikurinn
kemur í Ijós
Þegar heim var komið skýrði hann
móður sinni frá því, sem hann hafði
gert, og sagði henni að hann yrði að
fara burt til þess að hann yrði ekki
handtekinn.
Þá sagði móðir hans honum allan
sannleikann. Hún sagði að um leið
og fáðir hans hefði losnað úr fangels-
inu, hefði hann byrjað að senda þeim
peninga. Þegar hann auðgaðist urðu
upphæðirnar stöðugt hærri. En
móðir hennar, amma Róberts, end-
ursendi allt sem frá honum kom.
Einnig kort, bréf og gjafir sem bár-
ust Róbert á afmælisdögum hans og
jólum. Hún endursendi líka bréfið
þar sem William Vini fór fram á það
að fá að ættleiða son sinn.
Hatur Rítu á manninum, sem getið
RÁDNING Á
KROSSGÁTU
hafði Róbert, var svo skefjalaust að
hún vildi ekkert af honum þiggja, þó
svo að fjöiskyldan væri bláfátæk og
hefði ekki veitt af fjárhagsaðstoð.
Róbert lá grátandi við rúmstokk
móður sinnar, er lögreglan kom að
sækja hann. Það hafði einungis tekið
smástund að komast að því hver var
banamaður Williams Vini, því Róbert
hafði skilið eftir sig fingraför út um
allt
Móður Róberts var hlíft við því að
horfa upp á að sonur hennar yrði
dæmdur fyrir morð. Hún missti
meðvitund daginn eftir handtökuna
og lést tíu dögum síðar.
Mildandi
aöstæöur
Róbert játaði sekt sína fyrir rétti og
skýrði samviskusamlega og rétt frá
öllum málsatvikum.
Við réttarhöldin kom ennfremur í
Ijós að William hafði skýrt konu
sinni frá öllu í sambandi við Róbertu
og Róbert áður en þau giftust. Lög-
fræðingur hans bar og að hann hefði
ávallt sent háar fjárupphæðir til son-
ar síns, sem hefðu verið endursendar
jafnharðan. Ennfremur kom í ljós að
Wiliiam Vini hafði búið svo um
hnútana að sonur hans fengi eina
milljón dollara, þegar hann yrði 21
árs gamall.
Dómurinn leit svo á að margt væri
til að milda sekt Róberts. Honum
hafði frá unga aldri verið innrætt
hatur og fyrirlitning í garð föður síns
og verið sagt ósatt um það að faðir
hans hefði alveg yfirgefið hann. Litið
var svo á að ef Róbert hefði verið
sagður sannleikurinn og hann feng-
ið að njóta þeirra fjármuna, sem fað-
ir hans vildi að hann fengi, hefði
morð þetta aldrei verið framið.
Róbert fékk því óvenju vægan dóm
fyrir föðurmorðið. Tólf ára fangelsi
og þurfti að öllum líkindum ekki að
afplána nema átta.
INNRITUN I PROFADEILD
(ÖLDUNGADEILD)
FRAMHALDSDEILD
Æskilegur undirbúnirigur er grunnskólapróf eða Fomám.
MENNTAKJARNI - þrír áfangar kjamagxema: ís-
lensku, dönsku, ensku og stærðfræði. Auk þess fé-
lagsfr., eðlisfr., tjáning, þýska, hollenska, ítalska,
stærðfr. 122 og 112.
HEILSUGÆSLUBRAUT - tveggja vetra sjúkra-
liðanám - kjarnagreinar auk sérgreina s.s. heil-
brigðisfr., sálír., líffærafr., efnafr., líffr., næringarfr.,
skyndihjálp, líkamsbeiting og siðfr. Lokaáfanga til
sjúkraliðaprófs sækja nemendur í Fjölbraut í Ár-
múla eða Breiðholti.
VIÐSKIPTABRAUT - tveggja vetra nám sem lýk-
ur með verslunarprófi. Kjarnagreinar auk sérgreina
s.s. bókfærsla, vélritun, verslunarreikningur o.fl.
GRUNNSKOLASTIG
GRUNNNÁM - samsvarar 8. og 9. bekk í gmnn-
skóla. Ætlað þeim sem ekki hafa lokið gmnnskóla-
prófi eða vilja rifja upp frá gmnni.
FORNÁM - samsvarar 10. bekk í gmnnskóla. Ætl-
að þeim sem ekki hafa náð tilskildum árangri í 10.
bekk. Undirbúningur fyrir nám í framhaldsdeild.
Kennslugreinar í gmnnnámi og fomámi eru: ís-
lenska, danska, enska og stærðfræði. Kennt er fjög-
ur kvöld í viku, hver grein er tvisvar í viku.
Nemendur velja eina grein eða fleiri eftir pörfum.
Skólagjald miðast við kennslustundafjölda og er
haldið í lágmarki.
INNRITUN fer fram 1., 2. og 3. september kl.
17-20 í Miðbæjarskólanum, Fríkirkjuvegi 1.
Kennsla hefst 14. september.
Innritun í almenna flokka, tómstundanám, fer
fram 17., 18., 21. og 22. septetnber.
Útboð
Rafgirðing á Vatnsskarði 1992
Vegagerö rikisins óskar eftir tilboðum í
gerö 11,9 km langrar rafgirðingar á Vatns-
skarði.
Verki skal lokiö 1. júni 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerö
ríkisins á Sauðárkróki og í Borgartúni 5,
Reykjavík (aöalgjaldkera), frá og með 2.
september n.k.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14:00 þann 14. september 1992.
Vegamálastjóri
___________________!______________________________/
Varanleg lausn
á vatnsbrettum, sterk, rakaþétt og viðhaldsfrí.
Margir litir. Staðgreiðsluafsláttur.
Einnig sólbekkir og boröplötur í mörgum litum.
Ótrúlega lágt verð á legsteinum með rafbrenndum álplötum.
Sterkt og fallegt.
Marmaraiðjan, Höfðatúni 12.
Sími 629955. Fax 629956.