Tíminn - 29.08.1992, Qupperneq 18
18 Tfminn
Laugardagur 29. ágúst 1992
Frá David Keys fomleifafrœðingi, fréttaritara Tímans í London:
Annað „Fom-Egyptaland“
fundið langt inni í Afríku
Fornleifafræðingar hafa fundið annað „Forn-Egyptaland“ lengst
inni í Norðaustur-Afríku. Merki um áður óþekkta 4000 ára þjóð-
menningu — 300 mflum sunnar en land faraóanna — hafa fund-
ist þar sem nú er Súdan. Fornleifauppgröftur í grennd nútíma-
bæjarins Kerma hefur þegar leitt í ljós hof, hallir og hús, sem að
því er virðist hafa staðið í stórri borg, sem náði yfir a.m.k. 24
hektara.
Gæti þarna verið aö finna hið forna ríki Kúss?
Til bráðabirgða hefur sú ályktun
verið dregin að hér sé um að ræða
landið Kúss, sem nefnt er í Biblí-
unni.
Eftir meira en 10 ára uppgröft
hefur komið í ljós konungshöllin í
að því er fornleifafræðingar álíta
nú hafa verið höfuðborg konung-
dæmis sem var því sem næst eins
stórt og Egyptaland sjálft.
Kúss-ríkið virðist hafa náð yfir
700 mflna langt landsvæði með-
fram Nfl, milli Oswan og fjórða
fossins, 200 mflum norðar en
Khartúm stendur nú.
Uppgröfturinn hefur leitt í Ijós að
þjóðmenning hafi fyrst tekið að
þróast í kringum árið 3200 f.Kr.,
og náð hátindi glæsileikans milli
áranna 2400 og 1500 f.Kr.
Fornleifafræðingarnir, sem eru
u n d i r
s t j ó r n
s v i s s -
n e s k a
prófess-
orsins dr.
Charles Bonnet við Genfarhá-
skóla, hafa grafið upp leifar 60
metra langrar konungshallar,
hofaþyrpingu og það sem eftir er
af 1 1/2 mflu langs og 12 metra
þykks borgarmúrs. Hann er að
hluta gerður úr eldbökuðum
rauðum múrsteini. Þarna er um
að ræða elstu kerfisbundnu notk-
un eldhertra múrsteina í heimin-
um, sem vitað er um.
Það mat, sem fram hefur farið,
gefur til kynna að íbúar borgar-
innar hafi verið milli 2000 og
3000.
í hinni miklu konungshöll, sem
fannst fyrr á þessu ári, er 14 metra
langur hásætissalur með upp-
hækkuðum palli til annars end-
ans. í hinum salarkynnunum 9
hafa fornleifafræðingarnir fundið
marga tugi muna, þ.á m. nisti úr
gulli og bergkristal, stóran hluta
50 cm hárrar styttu af karlmanni,
málaðrar gulum og rauðum lit, og
mörg hundruð örsmárra sneiða úr
leir, sem tilbúnar voru til notkun-
ar sem
opinber-
lega við-
urkennd-
ur gjald-
miðill.
Hið heljarstóra 50 metra langa
aðalhof, innan veggja sem um-
lykja trúarlega miðstöð, var að öll-
um líkindum helgað sólardýrkun.
Nú hefur fornleifafræðingunum
tekist að staðsetja „hið allra helg-
asta“ tengt stalli með 20 metra há-
um stiga.
Hópur Bonnets prófessors hefur
líka rannsakað marga tugi graf-
hýsa, en í mörgum þeirra hafa
fundist mannfórnir.
Með nokkrum sérlega háttsettum
einstaklingum var komið fyrir í
gröfunum allt að tylft fórnar-
lamba, sem álitið er að hafi verið
annað hvort þrælar eða ættingjar.
Kóngurinn sjálfur var jarðsettur
ásamt meira en 400 mannfórnum.
í hópi fórnanna voru karlar, konur
og börn.
Konungsríkið Kúss leið endan-
lega undir lok, þegar Egyptar
lögðu það undir sig um 1500 f.Kr.
Fornleifafræðingarnir hafa fundið
merki um bruna eftir árásina.
Nafnið Kúss er hið sama og gefið
var sonarsyni Nóa, og ýmsir lærð-
ir menn í Biblíufræðum hafa sett
fram þá tilgátu að landið Kúss hafi
dregið nafn sitt af persónunni í
Biblíunni.
F.A.M. 24
USA-Keflavík, Reykjavík
Á árunum í kringum síðari heims-
styrjöldina og jafnvel meðan á henni
stóð, gerðu Bandaríkjamenn nokk-
uð af því að auðkenna flugleiðir frá
íslandi með tölum. Auk þess að fá
ákveðin númer, voru þær allar leiðir
fyrir póst og því auðkenndar með
stöfunum FAM., sem þýðir „For-
eign Air Mail“. Á eftir skammstöfun-
inni kom svo númer flugleiðarinnar.
Flugleiðin, sem lá til höfuðborga
Norðurlandanna, var til dæmis
númer 24. Flugleiðin til Bretlands
og Frakklands, sem opnuð var rétt
fyrir styrjöldina, hét svo „Foreign
Áir Mail Route Number 18“. Það var
hinsvegar ekki lengi sem hún náði
til Frakklands. Því varð það öll
stríðsárin aðeins til Englands og ef
til vill áfram þaðan, sem póstur á
leið 18 var sendur. Á þessari leið var
þó notaður gúmmístimpill til að
merkja bréfabúnt. Á stimpli þessum
stóð: „FAM. 18“ í efri línu, en svo í
annarri línu „Via New York For-
eign". Er stimpillinn meðal annars
þekktur af bréfi frá E1 Salvador þann
27. mars 1944.
Aldrei hefi ég rekist á, eða verið
sagt frá bréfi til eða frá íslandi, sem
merkt sé þessari póstleið. Slíkt gæti
þó hugsanlega átt sér stað. Þar væri
þá um að ræða bréf frá íslandi, sem
sent væri vestur um haf um Eng-
iand, eða aftur á móti að bréf að
vestan væri sent á þessum tíma um
England til íslands, sem þó er
ósennilegra.
Önnur leið, sem þekkt er og getur
varðað Evrópu sunnanverða, er leið-
in „FAM 22“, sem lá til Suður-Evr-
ópu og einnig til Norður-Afríku.
Þessi leið lá frá Miami á Florída. Var
hún opnuð þann 6. desember 1941,
eða daginn áður en Japanir réðust á
Perluhöfn. Þessi áætlunarleið lá síð-
an um nokkrar eyjar í Karabíska
hafinu, auk nokkurra borga á strönd
Brasilíu og loks yfir hafið til Kongó.
Leið þessi, sem brátt varð leið mik-
illa flutninga á hermönnum til Afr-
íkuhersins gegn Rommel, á það
sammerkt með hinum að ekki er
mikið þekkt af bréfum sem merkt
eru með númeri hennar. Þarna
þekki ég til dæmis aðeins eitt bréf.
Bréf þetta er með áritun með bláum
blýanti, „FA.M. 22“. Væri vel þegið
að heyra um fleiri bréf sem send hafi
verið á þessari leið og merkt henni.
Snúum okkur síðan að leiðinni til
höfuðborga Norðurlandanna. Af
bréfum, sem þangað hafa verið send
eða þangað farið, þekki ég aðeins fá
sem merkt hafa verið leiðinni.
Maðurinn minn, faðir, fósturfaðir, afi og bróðir
Sigurður Karlsson
Höfðahlfð 7, Akureyri
lést laugardaglnn 22. ágúst.
Útförin ferfram frá Glerárkirkju þriöjudaginn 1. september kl. 13.30.
Fyrir hönd systkina og annan-a vandamanna
Karlotta Jóhannsdóttir
Jóhann Karl Sigurðsson
Pálmi Pétursson
og tjölskyldur
__________________________________________________________J
Jarðýta til sölu
TD 8 B árgerð 1977. Ný belti. Sími 97-81650 og 97-81658.
Iceland-OSA
FÁk' 24
pipsT ccwmercial fuGht
AMERICAN GVcHSEAS AIRUKES
u
Mr. B. E. Sherv/ood
American Airlines Inc.
100 E. 42nd Street
New York 17, ÍLew York
í safni hérlendis er til bréf þar sem
vélritað er á framhliðina: „Iceland-
USA, FAM 24“. Er þetta bréf með
fyrsta flugi American Overseas Air-
lines, eða „FIRST NORTH ATLANT-
IC FLIGHT" eins og það heitir sam-
kvæmt stimpli á framhlið þess.
Þetta er bréf stimplað 13.4. 1947, á
Keflavíkurflugvelli, og kemur það til
New York þann 20.4. Þá á ég nokkur
bréf úr þessu sama flugi, sem eru
með blýantsáritun neðst í vinstra
horni, þar sem talan 24 er skrifuð.
Hélt ég lengi vel að hér væri um rað-
tölu á samstæðu umslaga að ræða.
Þessa ályktun dró ég af því, að á bréfi
úr þessu flugi til Helsingfors var
skrifuð á sama stað talan 34 með
blýanti, en talan 24 — raunar FAM
24 — vélrituð undir stimpli þar rétt
fyrir ofan. Það þarf ekki að taka
fram, að mér væri mikil þökk að við-
bótarupplýsingum um svona merk-
ingar, jafnvel ljósritum af þeim.
Sigurður H. Þorsteinsson