Tíminn - 06.10.1994, Page 8
8
Fimmtudagur 6. oktober
Grænmeti,
bjór og
Guðbergur
íslenski kiljuklúbburinn hefur
sent frá sér þrjár nýjar bækur:
Grœnmetisréttir af gncegta-
borði jarðar hefur aö geyma sí-
gildar uppskriftir frá öllum
heimshornum, sem Robert
Budwig hefur safnað og
myndskreytt. í bókinni eru
120 klassískar uppskriftir að
súpum og forréttum, súpum,
salati og aðalréttum frá Ítalíu,
Frakklandi, Marokkó, Tælandi
og Indlandi, auk þess sem
fjallað er á almennan hátt um
matargerð á hverju svæbi.
Kemur þar bæði kunnugiegt
og nýstárlegt grænmeti við
sögu. Helga Guðmundsdóttir
þýddi. Bókin er 192 bls., lit-
prentuð og í stóru broti.
Meiri bjór er spennusaga eftir
þýska höfundinn Jakob Arjo-
uni. Fjórir meðlimir umhverf-
isverndarsamtaka eru ákærðir
fýrir morð á forstjóra efna-
verksmiðju. Verjandi þeirra
ræbur einkaspæjarann Kemal
Kayankaya til ab komast að
hinu sanna í málinu. Höfund-
ur bókarinnar er líkt og sögu-
persóna hans af tyrkneskum
ættum og hafa sakamálasögur
hans notið mikilla vinsælda í
þýskumælandi löndum und-
anfarin ár. Kristín Hjálmtýs-
dóttir þýddi bókina, sem er
168 bls.
Fyrsta bók Guðbergs Bergs-
C uðbergur Bergsson.
sonar, Músin sem lœðist, er nú
komin út í endurskoðaðri gerð
á vegum íslenska kiljuklúbbs-
ins í samvinnu við Forlagið.
Músin sem læðist kom fyrst út
árið 1961 og fékk mikið lof
gagnrýnenda, sem voru á einu
máli um ab sagan væri framúr-
skarandi byrjandaverk. Á bók-
arkápu segir meðal annars:
„Á yfirborðinu er frásögnin
næm og miskunnarlaus lýsing
á unglingsdreng sem elst upp í
kæfandi umhverfi undir eftir-
liti strangrar og óbilgjarnrar
móður. En allt eins má segja
ab hér sé fjallað um hverskyns
kúgun og vald og hvernig
hinn kúgaði Iærir leikreglurn-
ar, færir sér í nyt — og ánetjast
þeim að lokum."
Músin sem lœðist hefur verið
ófáanleg í áratugi. Bókin er
189 bls. í kiljubroti og kostar
898 kr.
BÚSETI
Sími 25788.
BUSETI HSF., HÁVALLAGÖTU 24, 101 REYKJAVÍK,
SÍMI 25788, FAX 25749.
SKRIFSTOFAN EROPIN KL. 10-15 ALLAVIRKA DAGA.
FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
TIL ÚTHLUTUNAR í OKTÓBER 1994
Aðeins félagsmenn, innan eigna- og tekjumarka,
geta sótt um þessar íbúðir.
ENDURSÖLUÍBÚÐIR:
Staóur: Stærð: m! Til ofhend.
Frostafold 20, Reykjavílc 4ro 88 samkomulag
Garðhús 4, Reykjavik 4ra 115 fljótlego
Gorðhús 6, Reykjavik 4ra 115 fljótlego
Suöurhvammur 13, Hafnarf. 4ro 102 samkomulag
Berjarimi 3, Reykjovík 3ja 78 samkomulag
Berjarimi I, Reykjovík 3jo 78 samkomulog
Frostafold 20, Reykjavík 3jo 78 somkomulog
Trönuhjolli 17, Kúpavogi 3jo 87 1. desember '94
Frostafold 20, Reykjovik 3ja 88 samkomulog
Frostofold 20, Reykjavik 2jo 62 samkomulog
Berjorimi 7, Reykjovík 2jo 65 samkomulag
NÝJAR ÍBÚÐIR
Staður: Staerð: m2 Afhend.
Skólatún 1, Bessastaðahreppi 2jo 68,7 april/maí '95
ALMENNAR ÍBÚÐIR:
TIL ÚTHLUTUNAR í OKTÓBER 1994
Allir félagsmenn, þ.á m. þeir sem eru yfir eigna/tekjumörkum,
geta sótt um þessar íbúðir.
ENDURSÖLUÍBÚÐIR
Stoóur: Stærð: m! ofhend.
Garðhús 8, Reykjovík 3ja 79,7 laus
Hvernig sótt er um íbúð:
Umsóknir um íbúðirnar verða að hafa borist skrifstofu Búseta
fyrir kl 15.00 þann 17. október á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknir gilda fyrir hverja auglýsingu fyrir sig og falla síðan
úr gildi.
Félagsmaður, sem sækir um nú og fær ekki íbúð, verður að
sækja um á ný.
Upplýsingar um skoðunardaga íbúða og/eða teikningar fást á
skrifstofu Búseta.
BÚSETI
Homragöfðum, Hóvallogötu 24,10l Reykjavik, simi 25788.
Bænarstund við
þagnarmúrinn
Sex hugleiðingar á hátíðarári er
framlag Þorgeirs Þorgeirsonar til
hálfrar aldar afmælis lýðveldis.
Efni ritsins er athyglisvert í
hæsta máta, en líkast til er það
fréttnæmast við útgáfuna að
verðið er 335 krónur fyrir hvert
eintak. Ekki er kunnugt um aðr-
ar bækur ódýrari sem gefnar eru
út á þessu ári. Kannski stafar
það af því hve Þorgeir er miklu
Skáldub
orbabók
Mál og menning hefur sent frá
sér skáldsöguna Orðabók Lem-
priéres eftir breska rithöfundinn
Lawrence Norfolk. í sögunni
spinnur höfundurinn saman
þrjár frásagnir af sannsöguleg-
um atburðum. Fyrsti atburður-
inn átti sér stað í upphafi sex-
tándu aldar, þegar Austur-ind-
verska verslunarfélagið var
stofnað. Annar atburðurinn átti
sér stað um svipað leyti í Frakk-
landi, þegar þrjátíu þúsund
manns, karlar, konur og börn,
voru stráfelld í umsátrinu um La
Rochelle. Þribji sögulegi atburð-
urinn, sem höfundur fléttar inn
í sögu sína, gerist svo tveimur
öldum síðar, þegar John nokkur
Lempriére setur saman frægt
uppsláttarrit um hina fornu
goðafræði.
Orðabók Lempriéres hlaut af-
bragðsmóttökur þegar hún kom
fyrst út í Lundúnum árið 1991,
og hefur vinsældum hennar
einna helst verið jafnað vib vel-
gengni Nafns rósarinnar á sín-
um tíma.
Orðabók Lempriéres er frum-
smíð hins þrjátíu og eins árs
gamla höfundar, Lawrence Nor-
folk, en hann er nú ein skærasta
stjarna breskra samtímabók-
mennta.
Ingunn Ásdísardóttir þýddi.
Orðabók Lempriéres kom út í
Heimsbókmenntaklúbbi Máls
og menningar fyrr í haust, en er
nú komin á almennan markað.
Sagan er 634 bls., unnin í
Prentsmiðjunni Odda h.f. Ro-
bert Guillemette gerði kápuna.
Verb: 3480 kr. ■
Fréttir af bókum
lakari fjáraflamaður en skáld og
þjóðfélagsrýnir. Það er Leshús
sem gefur bókina út og sker út-
gáfukostnaö og höfundarlaun
svona við nögl.
Efni bókarinnar verður ekki
lýst betur en með orðum útgef-
anda, sem fylgir henni þannig
úr hlaði:
„Sex hugleiðingar á hátíðarári
sveima allar í kringum sama
sprungusvæðið á hjarni ís-
lenskrar fjölmiölaumræðu. Og
þessir textar eru ekki samdir til
ab berja neitt í þá bresti.
Þvert á móti.
Hér er verið að rýna í ástæðurn-
ar fyrir því, að réttarfar og dóms-
mál landsins má ekki ræða nema
eftir forskrift jábræðralags, sem
enginn heilhuga lýbræðissinni
fær af sér að taka þátt í.
Og meira um það.
Rödd lýðræðissinnans er lögð í
einelti af hagsmunavörðum
kerfis, sem jábræðralagið hefur
komiö á hér í lýðveldinu á und-
angengnum 50 árum.
Þetta rit gæti því rétt eins heit-
ið Bænarstund við þagnarmúr-
inn." ■
Þorgeir Þorgeirson.
Kennslubók í sakamálum
Mál og menning hefur sent frá
sér sýnisbók sakamálasagna
sem ber titilinn WHODUNN-
IT? Bókin er ætluð til ensku-
kennslu í framhaldsskólum og
eru sögurnar valdar með tilliti
til þess ab þær spegli þróun og
sögu þessarar bókmennta-
greinar í hinum enskumæl-
andi heimi.
WHODUNNIT? inniheldur
tíu smásögur og þrjár fræð-
andi greinar, auk ítarlegs inn-
gangs sem rekur sögulega þró-
un sakamálasagna. Sögurnar
eru bæði eftir frumherja í rit-
un spennusagna, eins og Edg-
ar Allan Poe, Arthur Conan
Doyle, Agöthu Christie og
Raymond Chandler, og eftir
höfunda frá síðustu árum, s.s.
Reginald Hill og Marciu Mull-
er.
Orðskýringar fylgja öllum
textum, auk spurninga og
verkefna af ýmsu tagi.
Hanne Ohland-Andersen og
Peter Thorning sáu um útgáf-
una, en Elísabet Gunnarsdótt-
ir framhaldsskólakennari ís-
lenskaði.
WHODUNNIT? er 214 bls.,
prentuð í G. Ben. prentstofu
h.f. Verð: 1899 kr. ■
Hugmyndafræöi hrynur
Mál og menning hefur sent frá
sér bókina Austur-Evrópa eftir Kaj
Nýjar mann-
kynssögur
Mál og menning hefur sent frá
sér tvær nýjar kennslubækur
handa framhaldsskólanemum í
mannkynssögu:
Heimsbyggðin 1, mannkynssaga
fram til 1850 og Heimsbyggðin 2,
mannkynssaga frá 1850.
I Heimsbyggðin 1, mannkyns-
saga fram til 1850 er saga mann-
kyns rakin á einkar skýran og
skipulegan hátt og dregin upp
greinargób mynd af þróuninni í
réttri tímaröð. Höfundarnir
taka mið af nýjustu rannsókn-
um og heimildum, enda kalla
þau gagngeru umskipti, sem
orðið hafa í heimsmálum á síð-
ustu árum, á ferskt sjónarhorn á
ýmsa þætti úr sögu fyrri alda.
í seinni bókinni, Heimsbyggðin
2, mannkynssaga frá 1850 er
saga mannkyns frá nítjándu öld
til okkar daga rakin á skilmerki-
legan hátt. Hrun austurblokkar-
innar, lok kalda stríðsins, vax-
andi þjóberniskennd og þreng-
ingar í efnahags- og umhverfis-
málum kalla á nýtt og ferskt
sjónarhorn á söguna. Því kalli er
svarað í þessari bók.
Bækurnar eru sérlega vel úr
garbi gerðar: myndefni ríkulegt
og fjölbreytt og að stærstum
hluta í lit. í sérstökum ramma-
greinum er skerpt sýn á sitthvað
sem er ofarlega á baugi eða
bregður nýju ljósi á mannkyns-
söguna.
Siguröur Ragnarsson íslenskaði
báðar bækurnar, sem eru prent-
aðar í Noregi.
Heimsbyggðin 1 er 323 bls. og
kostar 3999 kr.
Heimsbyggðin 2 er 373 bls. og
kostar 3999 kr.
Hildingson. Árið 1989 olli
straumhvörfum í Austur-Evrópu:
fólk um heim allan sat agndofa
vib sjónvarpstækin og fylgdist
með því hvernig Berlínarbúar
brytjuðu niður múrinn og hvern-
ig járntjaldiö liðabist sundur. í
Austur-Evrópu féll hver komm-
únistastjórnin á fætur annarri og
Sovétríkin splundrubust.
Þessi gífurlegu umskipti verða
ekki skýrb í stuttu máli, en í bók-
inni Austur-Evrópa er litið yfir
vettvanginn og reynt að svara
áleitnum spurningum. Hverju
landi er lýst fyrir sig í ljósi sögu,
stjórnmála og efnahags, m.a.
meö hjálp tölfræðilegra upplýs-
inga.
Bókin er ætlub til kennslu í
framhaldsskólum, en ætti einnig
að geta nýst hverjum þeim sem
vill fá nánari innsýn í þennan
heimshluta, sem er nánast dag-
lega í fréttum.
Austur-Evrópa er annaö verkið í
ritröbinni Grundvöllur og grand-
skoðun.
Brynja Dís Valsdóttir og Gub-
mundur Viðar Karlsson þýddu
bókina úr sænsku.
Austur-Evrópa er 132 bls., prent-
uð í G. Ben. prentstofu. Kápu
hannaði auglýsingastofan Næst.
Verð: 1999 kr. ■