Tíminn - 06.10.1994, Page 9
Fimmtudagur 6. október 1994
'SrTWÍf rWW
9
HÁSKÓLINN
Stúlkum í námi á háskólastigi hefur fjölgab mun meira en piltum:
Möguleikar stúlkna til náms án
stúdentsprófs verba æ minni
Miðað við þær tölur, sem til eru um fjölda nemenda í námi á
háskólastigi og skiptingu á milli kynjanna, kemur í ljós að
svo virðist sem stúdentspróf sé orðið að grunni náms kvenna, þar
sem mest allt nám í hefðbundnum kvennastörfum er orðið á há-
skólastigi. Fjöldi kvenna á háskólastigi hefur aukist gífurlega á
undanförnum árum og eru þær nú orðnar mun fleiri en karlar,
auk þess sem fjölgunin er mun hraðari. Þetta kemur fram í viðtali
viö Jón Torfa Jónasson, dósent við Háskóla íslands, á bls. 16. ■
Lánasjóbur
íslenskra
náms-
manna
bls. 11
Kynning á
Félags-
stofnun
stúdenta
bls. 10
Hátt í
milljón
manns í
Háskóla-
bio a ari
bls. 15
Starfsemi Félagsstofnunar stúdenta hefur vaxib mikib á undanförnum árum. Bernhard A. Petersen framkvœmdarstjóri:
Ásgörðum lokið fyrir aldamót
Bernhard A. Petersen, framkvœmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta.
Bernhard A. Petersen gegnir
stöðu framkvæmdastjóra Fé-
lagsstofnunar stúdenta. Hann
tók við þeirri stöðu á vor-
mánuðum 1993, en gegndi
áður stöðu fjármálastjóra fyr-
irtækisins. Að sögn Bernhards
er um vibamikinn rekstur að
ræða, þar sem sífellt er leitast
við að bæta þjónustu og
lækka verð á henni til stúd-
enta.
Umsvif FS hafa aukist mik-
ið á undanförnum árum
og veltir rekstur fyrirtæk-
isins nú um 550 milljónum á
ári, að viðbættum um 80 millj-
ónum sem varið er til bygging-
arframkvæmda. Það, sem ber
uppi rekstur FS, eru fjórar meg-
indeildir fyrirtækisins: húsnæð-
isdeild, bóksala, feröaskrifstofa
og veitingarekstur, og hafa um-
svif aukist mikið s.l. ár.
„Ferðaskrifstofan hefur vaxið
hratt vegna þess ab þjónusta þar
hefur verið bætt mikið, bæði
hvað varðar upplýsingagjöf og
eins hefur úrval ódýrra og
sveigjanlegra fargjalda aukist.
Hvað bóksöluna varðar, hefur
ekki einungis verið að aukast úr-
val námsbóka og hliðsjónarrita,
heldur af almennu efni fyrir
námsmenn og fræðimenn og þá
sérstaklega í almennum tölvu-
bókum, sem allir geta nýtt sér.
Það má segja að almenningur
og fyrirtæki séu farin að notfæra
sér þessa þjónustu mjög mikiö,"
segir Bernhard A. Petersen.
Þá hafa umsvif húsnæðisdeild-
ar einnig aukist mikið með til-
komu Vetrargarðs árið 1989, þar
sem eru 89 íbúðir, og nú síðast
Ásgarðanna, þar sem nú þegar
hafa verið teknar í notkun 65
íbúðir.
Hugmyndina aö baki stofnun-
ar Félagsstofnunar stúdenta fyr-
ir 26 árum, segir Bernhard hafa
verið að koma rekstri þjónustu-
fyrirtækja stúdenta á eina hendi
í formi sjálfseignarstofnunar
sem stúdentar heföu bein áhrif
á. í stjórn Félagsstofnunar sitja
fimm aðilar og þar af eru fimm
skipaðir af Stúdentaráði.
Stefna FS er að reksturinn
standi undir sér, líkt og hann
hefur gert undanfarin ár. Bern-
hard segir slíkt að sjálfsögöu
nauðsynlegt til að viðhalda
vexti og framgangi fyrirtækis-
ins. Hluti innritunargjalda af
tekjum fyrirtækisins er um 4%
og fer helmingur þeirra í Bygg-
ingarsjóð stúdenta, en hinn
helmingurinn fer til annarrar
uPPt>yggingar.
„Það er alveg ljóst að þegar
hagnaður er af rekstri fyrirtækis-
ins, rennur hann að sjálfsögðu
beint til stúdenta sjálfra í formi
lægra vöruverðs, bættrar þjón-
ustu og gefur möguleika á að
ráðast í nýjar fjárfestingar og
ýmislegt fleira sem stúdentar
sjálfir hafa áhuga á. Ég tel að
þessum markmiðum hafi verið
náð á undanförnum árum og
hagnaður af rekstri hafi nýst
stúdentum vel," segir Bernhard.
Þab, sem helst er á döfinni hjá
FS á næstu árum, er að ljúka
byggingu Ásgarða og er ráðgert
að það verði fyrir eða um alda-
mót. Með því er gert ráð fyrir að
ganga verulega á biðlista eftir
íbúðum, sem eru langir í dag.
Að auki er gert ráb fyrir auknum
umsvifum í veitingarekstri á há-
skólasvæðinu, en eitt af mark-
miðum FS er að gefa sem flest-
um stúdentum færi á að nálgast
þjónustu veitingasölunnar. Má
þar nefna að nú stendur yfir
undirbúningur að opnun kaffi-
stofu í Læknagarði.
Bernhard er bjartsýnn á fram-
tíð fyrirtækisins og telur Félags-
stofnun stúdenta eiga sér mikla
og bjarta framtíð við frekari
uppbyggingu fyrirtækja í þágu
stúdenta. ■
Fjarkennsla í 54 ár!
Hlemmi 5, II. hæð, 105 Reykjavík.
Sími: 91- 62 97 50. Myndsendir: 91-62 97 52.
Rafpóstur: brefask@ismennt.is
Afgreiðslan er opin frá 10 til 15 alla virka daga.
Símsvari tekur við skilaboðum utan afgreiðslutíma.
Sendum í póstkröfu um allt land.