Tíminn - 06.10.1994, Síða 10

Tíminn - 06.10.1994, Síða 10
10 Fimmtudagur 6. október 1994 HJÓNAGARÐAR Eggertsgata 2 og 4 51 tveggja herbergja íbúð • 4 þriggja herbergja íbúðir VETRARGARÐUR / Raunvísindastofnun í é Lo [Lj lj Háskólabíó iiutmrmi inrnn Félagsstofnun stúdenta er sjálfseignarstofnun, stofnuð 1. júní 1968. Aðild að henni eiga Háskóli íslands, menntamálaráðuneytið og allir stúdentar við Háskóla íslands. FS rekur bóksölu, ferðaskrifstofu, fimm kaffistofur og stúdentagarða. í Stúdentaheimlinu við Hringbraut er skrifstofa FS, húsnæðisdeildin, Ferðaskrifstofa stúdenta og Bóksala stúdenta. Stúdentagarðar eru á Gamla Garði, Nýja Garði, Hjónagörðum, Vetrargarði og að Ásgörðum. Kaffistofur eru reknar í aðalbyggingu Háskólans, Ámagarði, Lögbergi, Odda og Eirbergi. Suðurgata kaffistofa í kjallara LoBEsn íþróttahús Eggertsgata 6,8 og 10 59 tveggja herbergja (búðir 30 þriggja herbergja íbúðir Ásgarðar (í byggingu) / Oddi - kaffistofa á 2. hæð Lögberg - kaffistofa á 1. Nýi Garður V/ r D na,o qo □ on q i C Li H ð a bn□□d dd oi :JV NYl GARDUR 54 einstaklingsíbúðir Eggertsgata 12,16 og 18 10 þriggja herbergja íbúðir • 72 paríbúðir • 12 einslaklingsíbúðir • 8 tvíbýli • 2fjórbýli Gert er ráðfyrir að byggingu hverfisins verði lokið árið 2000. Það mun samanstanda af 10 byggingum. □ □ancjaaaaaa oaaaaaoaaaa 44 einstaklingsherbergi • 7 íbúð • 1 parherbergi fif Skrifstofa FS Húsnæðisdeild Vví/ FíRÐASKRIFSTOFA STUDENTA Ferðaskrifstofa stúdenta bóky&.lö. /túdcr\ta. Bóksala stúdenta • Kaffistofur Félagsstofnun stúdenta er sjálfseignarstofnun og er hlutverk hennar ab annast rekstur, bera ábyrgö á og beita sér fyrir eflingu félags- legra fyrirtækja í þágu stúd- enta viö Háskóla Islands. FS rekur fjórar deildir, auk skrif- stofuhalds í Stúdentaheimil- inu vib Hringbraut. Hjá FS starfa á bilinu 40-50 manns og nemur heildarvelta á ári tæplega 600 milljónum króna. Leigu- og sölutekjur eru stærsti hluti tekna fyrir- tækisins, en aö auki koma til innritunargjöld, sem eru um 4% af tekjum. Þeim er ab hálfu variö í byggingarsjób stúdenta og koma því ekki inn í rekstur fyrirtækisins. FS var stofnuð áriö 1968, en aðild að henni eiga menntamálaráðuneyti, Háskóli íslands og allir skrásett- ir nemendur hans. í stjórn stofnunarinnar sitja fimm menn, þrír kosnir af Stúdenta- ráði og skal einn þeirra vera út- skrifaður frá skólanum, einn fulltrúi frá Háskólaráði og einn skipaður af menntamálaráð- herra. Núverandi stjórn skipa þau Gubjón Ólafur Jónsson lög- fræðingur, sem jafnframt er for- mabur, Pétur Már Ólafsson cand. mag., Sigríður Benedikts- dóttir hagfræbinemi, Viktor Borgar Kjartansson tölvunar- fræðingur, og Kristján Jóhanns- son lektor. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Bernhard A. Petersen. Fyrirtækið er starfrækt í eigin húsnæði, sem er Stúdentaheim- ilið vib Hringbraut. Húsið var að mestu tekið í notkun árið 1971 og hýsir meginhluta starf- semi þess, ef undan er skilin starfsemi Garðanna. Að auki eru Stúdentaráð, Samtök ís- lenskra námsmanna erlendis og Stúdentablaðið þar til húsa. Húsnæðisdeild Húsnæðisdeildin sér um rekstur Stúdentagarðanna, sem eru fimm talsins, og Stúdentaheim- ilisins og er það hlutverk deild- arinnar að bjóða námsmönn- um til leigu hentugt og vel stað- sett húsnæði á sanngjörnu verði. Um er að ræða Gamla- Garð, Nýja-Garð, Hjónagarða, Vetrargarð og Ásgarða. A síð- ustu árum hefur farið fram mik- il uppbygging á húsnæðismál- um stúdenta og nú standa yfir framkvæmdir við Ásgarða, sem áætlað er að ljúki fyrir aldamót. Þegar þessum framkvæmdum er lokið, mun húsnæðisdeild FS geta bobið um 700 stúdentum leiguhúsnæði, eba um 15% nú- verandi fjölda nemenda í Há- skólanum. Um er að ræða bæði einstaklingsíbúðir og einnig stærri íbúðir fyrir hjón eða barnafólk. íbúar í húsnæði FS hafa að- gang að þvottavélum, lesstof- um og setustofum, auk þess sem þeir hafa þar aðgang að dagblöðum sem berast daglega. Húsverðir og Garðprófastar eru í öllum byggingum og hafa þeir umsjón með daglegum þrifum á sameign. Öllu íbúðarhúsnæði er úthlut- að tímabundið, til eins árs í senn, og er umsóknum um vist raðað í forgangsröð, en alla jafna hefur utanbæjarfólk for- gang að íbúðum í Gamla-Garði, Nýja-Garði og einstaklings- íbúðum, en fjölskylduaðstæður eru í öðrum Görðum. Umsókn- um um húsnæði þarf að skila til húsnæðisdeilar fyrir 20. júní ár hvert. Húsnæðisdeildin er staðsett á 2. hæð Stúdentaheimilisins við Hringbraut og er hún opin mánudaga- fimmtudaga kl. 9.00-16.00 og til kl. 15.00 á föstudögum. Bóksala stúdenta Félagsstofnun stúdenta rekur öfluga bóksölu í húsakynnum sínum í Stúdentaheimilinu og þar er kappkostað að sjá náms- mönnum í Háskóla íslands fyrir námsbókum sínum á sem hag- stæðustu verði, á réttum tíma og í réttu magni. Auk mikils úr- vals í verslun Bóksölunnar er boðið upp á öfluga sérpöntun- arþjónustu fyrir einstaklinga, stofnanir og fyrirtæki og þá sér Bóksalan einnig um innkaup fyrir aðra skóla á framhalds- og háskólastigi. Þar er starfrækt ljósritunarþjónusta þar sem hægt er að fá ljósrituð gömul próf og þar er einnig á boðstól- um mikið úrval ritfanga, tíma- rita og geisladiska. Mikið úrval tölvubóka er fáanlegt og þar er einnig úrval fræbi- og vísinda- rita. Bóksalan er opin alla virka daga kl. 9.00-18.00. Ferðaskrifstofa stúdenta í Stúdentaheimilinu við Hring- braut rekur FS öfluga ferðaskrif- stofu, sem kappkostar að veita öllu ungu fólki og þá sérstak- lega námsmönnum í fram- haldsskólum og á háskólastigi þjónustu með góðu úrvali ferða og ferðatengda þjónustu á hag- stæðum kjörum. Ferðaskrifstof- an er almenn, með IATA-rétt- indi, og selur öll þau fargjöld sem bjóbast á íslenskum mark- aði, bæði almenn og sérfar- gjöld. Ferðaskrifstofan er sú eina hér á landi sem hefur um- boð fyrir Kilroy- fargjöldin, en þessi fargjöld eru ætluð náms- fólki á aldrinum 16-34 ára og ungu fólki á aldrinum 12-25 ára. Á þessum fargjöldum er auðvélt að ferðast, þau eru sveigjanleg og ódýr. Kaffistofur Á vegum FS eru reknar fimm kaffistofur og er það stefna FS að bjóða stúdentum við HÍ góða þjónustu og fjölbreytt úr- val matar og drykkjar á hóflegu verði. Kaffistofurnar eru dreifð- ar um HÍ- svæðib: á 1. hæð Eir- bergs, í kjallara aðalbyggingar, á jarðhæb Árnagarös, á jarðhæð Lögbergs og á annarri hæð Odda. Kaffistofan í Odda er op- in kl. 8.00-18.00 alla virka daga og á laugardögum kl. 9.00- 15.30, en hinar eru opnar virka daga kl. 9.00-15.30. Auk þess, sem hér er rakib að framan, á FS Prentgarð, sem er á 1. hæð Stúdentaheimilisins, en reksturinn er þó leigður út. Þar geta stúdentar orðið sér úti um ljósritun, fjölritun og frágang ritgerba, svo eitthvað sé nefnt. Stúdentar hafa aðgang að leik- skólarými í gegnum samning FS vib Dagvist barna í Reykja- vík. Barnaheimilið Efrihlíð er eign FS, en er rekið af Reykjavíkur- borg. Að auki eru tvö dagheim- ili staðsett á HÍ-svæðinu: Leik- garður á Eggertsgötu 14 og for- eldrarekið dagheimili fyrir börn yngri en 2 ára sem staösett er á Vetrargarði. ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.