Tíminn - 06.10.1994, Blaðsíða 18
18
Fimmtudagur 6. október 1994
íslenska einsöngslagiö:
Yfirlitssýning í
Geröubergi
Menningarmiöstöðin Gerbu-
berg hefur opnab yflrlitssýn-
ingu, sem ber yfírskriftina ís-
lenska einsöngslagib. Mun
hún standa til 1. desember.
Á sýningunni eru um 200 ljós-
myndir af tónskáldum og flytj-
endum íslenskra einsöngslaga
meb skýringartextum. Einnig
verba sýndar söngskrár, nótna-
handrit, veggspjöld og abrir
munir, sem segja sögu sönglífs á
íslandi frá því um miöja síðustu
öld. Útbúin hefur verið sýning-
arskrá með um 120 ljósmynd-
um og æviágripum tónskálda.
Á sunnudögum í október og
nóvember verða íslenska ein-
söngslaginu gerð skil með fyrir-
lestrum, ljóðasöng og hljóð-
færaleik. Einnig sér Sverrir Guð-
jónsson söngvari um leiðsögn
um sýninguna.
í fyrsta skipti er nú sett upp yf-
irlitssýning sem sérstaklega er
helguð íslenska einsöngslaginu.
Sýningin nær yfir mjög áhuga-
vert tímabil í menningarsögu
íslendinga. Tónlistariðkun á Is-
landi er að vakna til lífsins,
kennsla hefst í nótnalestri og
byrjað er að kenna söng. Á sama
tíma og ísland breytist úr
bændasamfélagi í auðuga fisk-
veiðiþjóð, tekur menningarlífið
á sig nýja mynd. Eftir því sem
líður á 20. öldina dafnar söng-
lífið, söngkennsla er þá oröin
fastur liður í skólastarfi og lista-
fólk fer til útlanda til að full-
nema sig í söng og hljóðfæra-
slætti. Viö eignumst tónskáld,
tónlistarfélög skjóta upp kollin-
um og tónlistarskólar eru settir
á stofn.
Undirbúningur að sýningunni
hefur staðið í u.þ.b. ár og er hún
ávöxtur Ljóðatónleika Gerðu-
bergs, líkt og tónleikarnir í
Borgarleikhúsinu á afmæli
Reykjavíkur 18. ágúst. Þjóð-
minjasafnið sér um allar eftir-
tökur á ljósmyndum og ætlar
safnið í framhaldi af sýning-
unni að koma á fót tónlistar-
deild í ljósmyndadeild Þjóð-
minjasafnsins.
Viðfangsefni yfirlitssýningar-
innar í Gerðubergi er að bregða
upp svipmyndum af listafólki,
sem hefur með hljóðfæraslætti,
söng og sönglagagerð átt veiga-
mikinn þátt í að móta sönglíf á
íslandi frá miðri 19. öld. Mynd-
efnið á sýningunni er ekki tæm-
andi, heldur veitir innsýn í
menningarsögulegt viðfangs-
efni sem vert væri að kryfja til
mergjar.
Sýning Sjóminjasafns Islands í Svíþjóö:
ísland og hafið
Laugardaginn 24. september
s.l. var opnub í Lénsminjasafn-
inu í Jönköping í Svíþjób sýn-
ingin „ísland og hafib", meb
bátum, veibarfærum, líkönum,
ljósmyndum o.fl. úr sögu sjó-
sóknar á Islandi.
Sjóminjasafn íslands stendur að
sýningunni og er það í fyrsta sinn
sem safnið setur upp sýningu er-
lendis. Jón Allansson safnvörður
og Björn G. Björnsson hönnuður
völdu muni og myndir, sömdu
texta og settu sýninguna upp.
„Island og hafið" segir sögu sjó-
sóknar og siglinga á Islandi í stór-
um dráttum frá landnámi til okk-
ar daga og skiptist í 23 efnis-
flokka. Þar er m.a. komið inn á
bátasmíði, hákarlaveiðar, saltfisk-
verkun, hvalveiðar, þorskastríð,
síldveiðar og þýðingu sjávarút-
vegs fyrir þjóðarbúið. Meðal
muna á sýningunni eru gömul
hákarlaveiðarfæri, togvíraklippur
frá Landhelgisgæslu, hvalskutull,
átta líkön af bátum og skipum og
„Hallsteinsnesbáturinn", tveggja
manna far með seglum og öllum
búnaði í fullri stærð, smíðaður af
Þórbergi Ólafssyni um 1930. Sýn-
ingin stendur til 19. október.
Hugmyndina að sérstakri Island-
skynningu í Jönköping í tilefni
50 ára lýðveldisafmælis, og sýn-
ingu Sjóminjasafns íslands, átti
Jakob S. Jónsson leiklistarfræð-
ingur, sem hefur verið búsettur í
Svíþjóð um árabil og starfar nú að
menningarmálum í Jönköping.
Sænsk-íslenska félagið á staðn-
um, Lénsminjasafnið og ýmsar
menningarnefndir komu síðan
að málinu ásamt Sjóminjasafni
íslands og framtakiö hefur notið
styrks frá Eimskip, Flugleiðum og
fleiri aðilum. Auk sýningarinnar
„ísland og hafið" setti Karl-Erik
Hagström, jarðfræðingur við
Lénsminjasafnið, upp litla sýn-
ingu um jarðfræði íslands, „Is
och eld", í anddyri safnsins.
Einnig var opnuð sýning á verk-
um Eddu Jónsdóttur listmálara
og Guðnýjar Magnúsdóttur leir-
listamanns í Galleri Backalyckan
s.l. laugardag. Fleiri viðburðir eru
á þessari Islandskynningu í Jön-
köping.
Jönköpingborg er á stærð við
Reykjavík. Hún er í suðurhluta
Svíþjóðar þar sem heita Smálönd,
á milli Gautaborgar og Stokk-
hólms, við suðurenda Vattern,
sem er annað stærsta vatn Sví-
þjóðar. Jönköping er fræg fyrir
eldspýtnaframleiðslu á síðustu
öld og fyrri hluta þessarar aldar
og þar er nú ágætt minjasafn um
eldspýtnaframleiðsluna.
Lénsminjasafnið í Jönköping
Oönköpings Lansmuseum), þar
sem sýningin „ísland og hafið" er
haldin, er afar glæsilegt safn þar
sem er að finna jöfnum höndum
sýningar á klassískri og nýrri
myndlist og minjum frá sögu
staðarins og sögu Svíþjóðar. Safn-
ið er að hluta í húsi frá 1956, en
byggt var við það 1992. Viðbygg-
ingin, sem er teiknuð af Carl
Nyrén, þykir afar vel heppnuð og
hlaut hún sérstök arkitektúrverð-
laun. Um 50 starfsmenn vinna
við Lénsminjasafnið í Jönköping.
Vald örlaganna:
Gunnsteinn 01-
afsson stjórnar
næstu sýningum
Um síbustu mánabamót urbu
þær breytingar á sýningum á
Valdi örlaganna í Þjóbleikhúsinu
ab Gunnsteinn Ólafsson, kór-
stjóri og abstobarhljómsveitar-
stjóri, tekur vib hljómsveitar-
stjórn verksins af Maurizio Barb-
acini. Mun hann stjórna á næstu
fjórum sýningum. Eftir þab
stjóma þeir til skiptis Rico Sacc-
ani, Maurizio Barbacini og
Gunnsteinn.
Gunnsteinn Ólafsson stundabi
nám í fiðluleik vib Tónlistarskóla
Kópavogs og Tónlistarskólann í
Reykjavík, í tónsmíöum og píanó-
leik vib Franz Liszt-tónlistaraka-
land heim haustið 1992.
Eftir ab námi lauk hefur Gunn-
steinn stjórnað Sinfóníuhljómsveit
íslands, Kammersveit Reykjavíkur,
Caput-hópnum, tekið þátt í Sum-
artónleikum í Skálholti og æft Kór
íslensku óperunnar. Þá hefur hann
sótt námskeið á ítaliu og í Ung-
verjalandi.
Gunnsteinn er brautryðjandi í
flutningi verka eftir Claudio
Monteverdi hér á landi. Hann
skipulagöi og stjórnaði m.a. flutn-
ingi á fyrstu óperu tónskáldsins,
Orfeo, haustiö 1993, en þar tóku
þátt tónlistarmenn víösvegar að úr
Evrópu, auk íslenskra listamanna.
Gefum þeim aftur islenskt líf
Landssöfnun til stuðnings baróttunni við að ná Dagbjörtu og Rúnu heim frá Tyrklandi
fer fram á öllum útvarpsstöðvum landsins föstudaginn 7. október frá kl. 9:00.
Búnaðarbanki Islands er fjárgæsluaðili söfnunarinnar
og þar er einnig söfnunarreikningur númer 0323-26-9000 opinn fyrir framlög.
909^909 Slt0il0
AÐALSTÖÐIN
Nú vantar aðeins herslumuninn
ÚTVARP8STÖÐIN
it
I BÖRNIN
b HEIM!
J BUNAÐARBANKINN
- Trauttur banki
demíuna í Búdapest, og í hljóm-
sveitarstjórn og tónfræði við Tón-
listarháskólann í Freiburg. Gunn-
steinn stjórnaði kór Mennta-
skólans í Kópavogi meban hann
var þar við nám, og leiddi háskóla-
hljómsveit í Freiburg sem sótti ís-
Vorib 1994 varð Gunnsteinn í
öðru sæti í keppni ungra norrænna
hljómsveitarstjóra, sem haldin var
í Björgvin í Noregi. Hann hefur síð-
an unnið að undirbúningi kórs og
hljómsveitar fyrir uppfærslu Þjóð-
leikhússins á Valdi örlaganna. ■