Réttur - 15.07.1935, Blaðsíða 21
inni“ var gersamlega sundrað, og höfuðborg fylkisins,
Kveijang, er að því komin að falla í hendur byltingar-
manna. f herskýrslum sínum hafði hann fáum dögum
áður boðað „fulla lausn Setschuan-fylkisins úr klóm
hinna kommúnistísku óaldarflokka“. En leikar fóru
öðruvísi. Þessi herferð Tsjang Kai Sjeks fór eins og
hinar fyrri. Hinar verr vopnuðu og fámennari rauðu
hersveitir stöðvuðu ekki einasta framrás Nankinghers-
ins, heldur tvístruðu honum beinlínis.
Á páskadag símuðu fréttaritarar ensku Reutersfrétta-
stofunnar og japönsku stjórnarblaðanna: „Allt 29. her-
fylki (armeekorps) Nankinghersins, sem statt er í Set-
schuan, er gengið í lið með kommúnistunum. Setschuan-
fylki virðist þegar vera að mestu leyti fallið í hendur
hinum rauðu. Borgin Tsjöngtu, stærsta borg í Innra-
Kína, mun vera komin undir yfirráð þeirra. Þeir hvítu
flýja bæði landveg og eftir Jangtsekiang-fljótinu. Að
sögn er Tsjang Kai Sjek með sterkan her staddur á
miðju því svæði, sem nú er í mestri hættu af völdum
Rauða hersins“.
Og blöðin í Shanghai sögðu frá því, að Tsjang Kai
Sjek hefði kallað allan sprengjuflugvélaflota sinn til
Setschuan, sér til aðstoðar, af því að þeir rauðu hefðu
í síðustu orustunum eyðilagt flugvélasveit þá, sem hann
hafði haft með sér vestur á bóginn.
Þetta eru því, eftir öllum sólarmerkjum að dæma,
endalok þessarar 6. herferðar Tsjang Kai Sjeks gegn
Sovét-Kína. Sameining hinna ýmsu Rauðu herja, her-
nám Setschuan-fylkis og ef til vill líka vesturhluta
Kveitschou, sköpun víðlends, samfellds sovétsvæðis með
80 milljónum íbúa þarna í Vestur-Kína •— allt þetta
virðist ekki lengur vera ósk og fyrirætlun, heldur áþreif-
anlegur veruleiki.
Auk þessa stórkostlega samfellda sovétsvæðis standa
auðvitað óhögguð gömlu sovétsvæðin í Suður- og Austur-
Kína, sem einnig hafa tugi milljóna íbúa. Þessi svæði,
sem liggja í fylkjunum Fulcien, Kiangsi og Hunan, eru
141