Réttur - 15.07.1935, Blaðsíða 20
sendar voru þeim til liðveizlu, réðust á móti hersveit-
um „vesturleiðangursins", en voru sigraðar. Hjá borg-
inni Tungtse-Tsen-Ih gáfust upp 5000 hermenn hvíta
hersins, og 2000 gengu með vopnum og öllum útbúnaði
yfir til Rauða hersins. Að baki Nankingsveitanna gerðu
bændurnir uppreisn. Ósigurinn olli því, að upp úr log-
aði um ýms misklíðarefni, sem átt höfðu sér stað meðal
þeirra hvítu. í liði þeirra kom til blóðugra bardaga. Og
nú hófu verkamenn og bændur volduga fjöldauppreisn
að baki Nankinghersins. Verkamenn gerðu uppreisn í
borginni Tsisui, lýstu yfir sovétstjórn og lögðu undir
sig vopnabúrið, þar sem geymdar voru 6 milljónir byssu-
kúlna.
Þessu samtímis héldu hinar rauðu herdeildir sovét-
héraðsins í norður-Setschuan suður á bóginn, í áttina
til stórfljótsins Jantsekiang, og vestur á við, til höfuð-
borgarinnar í Setschuan, Tsjöngtu. (Setschuan er
stærsta og auðugasta fylkið í Kína, á stærð við Þýzka-
land, með yfir 50 milljónum íbúa). Aðrar deildir Rauða
hersins komu frá nágrannafylkinu Honan, þar sem einn-
ig er sovétsvæði. Þessi her var undir forystu þeirra
Holung og Sije-Ken.
Nú voru allar horfur á, að hin auðugu fylki Setschuan
og Kveitschou myndu falla að fullu og öllu í hendur
Rauða hernum. Til þess að koma í veg fyrir þetta, sendi
Tsjang Kai Sjek sínar beztu hersveitir til herstöðvanna
í Innra Kína, þar á meðal hina svokölluðu „Járnsveit“.
1 Setschuan reyndi Tsjang Kai Sjek að koma í veg
fyrir, að hinar rauðu herdeildir norður- og suður-sovét-
svæðisins næðu að sameinast, og í Kveitschou lá fyrir
honum það vandaverk að hindra sameiningu þriggja
rauðra herja (hers sovétsvæðisins á mörkum Suður-
Setschuan og Norður-Kveitschou, hersins, sem Holung
kom með frá Vestur-Hunan, og loks „vestur-leiðangurs-
hersins“; sem var á leiðinni frá Kiangsi til Kveitschou).
Eftir nokkurn árangur í fyrstu, biðu hersveitir Tsjang
Kai Sjeks mikinn ósigur í Kveitschou-fylki. „Járnsveit-
140