Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 1
RÉTTUR
XXII. ÁRG. JÚLÍ 1937. 5. HEFTI
■■■■bbhhhhhhbbbbmmhbhhhhhhbhhmbb
Kosningalærdómar.
Eftir Halldór Kiljan Laxness.
GRÝLUMENN OG VERULEIKINN.
Þetta voru að mörgu leyti mjög athygjisverðar
kosningar.
Eitt hið athyglisverðasta, sem þær leiddu í Ijós,
svo ekki verður lengur am deilt, er staðreyndin, sem
við samfylkingarmenn höfum bentj^á lengi, að sá hóp-
ur manna, sem hægt er að hræða með kommúnista-
grýlunni, væri svo fámennur í landinu, að það svar-
aði ekki kostnaði að skírskota máli sínu til hans.
Kosningarnar sýndu, að óttinn við kommúnismann
-er ekki til hjá almenningi í Jandinu, heldur á hann
einvörðungu heima í heilabúum reykvískra heildsölu-
kaupmanna, stórútgerðarmanna og nokkurra vinstri-
foringja. Sjaldan hefur nokkur grýla verið kveðin
niður jafn eftirminnilega í kosningum eins og kom-
múnistagrýlan. Svo rækilega hefur hún verið af-
greidd, að hver sem gerir tilraun til að halda henni
á lofti upp frá þessu, gerir sig að fífli.
Almenningur kvað upp dóm sinn yfir þeim vinstri-
foringjum, sem barist höfðu á móti samfylkingunni
í nafni kommúnistagrýlunnar. Almenningur svaraði
með því að fella þessa menn eða einangra. Sigurjón
Ólafsson og Stefán Jóhann Stefánsson féllu í Reykja-
vík, og Héðinn Valdimarsson stendur eftir í aðstöðu,
sem er svo ömurleg, að hann hefur fyllstu ástæðu til
að öfunda hina föllnu. Jón Baldvinsson, sem sendur
er til Akureyrar til að hræða fólk með grýlunni,
bjargast inn í þingið af .einskærri slembilukku. Jónas
161