Réttur


Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 2

Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 2
Jónsson frá HrifLu, sem notaði grýluna mikið á címa- bili, er eini framsóknarþingmaðurinn, sem tapar at- kvæðum í kjördæmi sínu, og hann tapar þeim ýmist til vinstri eða menn kjósa landlista flokksins í að- vörunarskyni, — þetta er svar kjósenda hans við grýl- unni. — Hitt er reyndar ekki líklegt, að jafn æfður stjórnmálamaður og Jónas Jónsson fæli frá sér fleiri atkvæði í Suður-Þingeyjarsýslu með grýlunni, enda bar ræða sú, sem hann flutti á Akureyri í útvarps- umræðunum fyrir kosningarnar, vott um, að hann hafi þá þegar verið orðinn þess vís, sem hver maður hlýtur að fullvissa sig um, sem fer um sveitir lands- ins, að þótt bændur séu fjarri því að vera kommún- istar, þá fyrirlíta þeir enga vinstri frambjóðendur meira en þá, sem^byrja að éta eftir heildsölukaup- mönnum og stórútgerðarmönnum Reykjavíkur hinn skyni skroppna þvætting um kommúnistagrýluna. Það er á hinn bóginn jafn eftirtektarvert, að þeir vinstri menn, sem ekki sögðu orð á móti kommúnist- um í kosningahríðinni, jafnvel gerðu við þá samfylk- ingu eins og Guðmundur Hagalín gekkst fyrir á ísafirði, og földu eða eyðilögðu hið svívirðilega níð- rit Stefáns Péturssonar um Kommúnistaflokkinn í kjördæmum sínum, eins og Ilaraldur ráðherra gerði fyrir austan, Finnur á Isafirði, Sigfús Sigurhjartarson í Gullbringu- og Kjósarsýslu, — þeir standa föstustum fótum í kjördæmum sínum, já, bæta meira að segja við sig atkvæðum. Grýlumenn héldu því fram, að allt samband þeirra við kommúnista, hvað lítið sem væri, mundi aðeins fæla kjósendur burt frá þeim. Hvernig stóðst þessi kenning próf veruleikans? I kjördæmum, þar sem kommúnistum hafði verið skipað opinberlega að greiða atkvæði með frambjóðendum Alþýðuflokks- ins og Framsóknarflokksins, m.ö.o. í þeim kjördæm- um, sem samkvæmt kenningum grýlumanna hefðu átt að fæla frá þeim kjósendurna, þeim kjördæmum, þar 162

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.