Réttur - 01.07.1937, Page 7
því að senda þrjá kommúnista á þing. Fréttirnar af
kosningaúrslitunum standa á fremstu síðu Alþýðu-
blaðsins, — ,,fjandmenn alþýðusamtakanna“ hafa
sigrað, segir blaðið. Og hverjir eru þessir fjandmenn
alþýðusamtakanna? það er ,,hið nazistiska íhald og
bandamenn þess kommúnistar“. Með öðrum orðum,
það á að halda áfram að hræða fólk út úr Alþýðu-
flokknum með geðveiku ofstækisbulli á móti kommún-
istum þangað til enginn maður verður lengur uppi-
standandi í þessum flokki annar en forstjóri breska
olíuhringsins á íslandi, Héðinn Valdimarsson.
LÉLEGAR ÚRBÆTUR.
Við samfylldngarmenn sögðum með fullri vissu fyr-
ir fram að Kommúnistaflokkurinn mundi vinna þessar
kosningar fyrst og fremst vegna samfylkingarstefnu
sinnar. Við segjum nú fyrir með jafn mikilli vissu, að
ef Héðinn Valdimarsson og blað hans heldur enn á-
fram baráttunni gegn samfylkingu við Kommúnista-
flokkinn eins og hingað til, þá mun Kommúnistaflokk-
urinn fá miklu hærri atkvæðatölu en Alþýðuflokkur-
inn við næstu bæjarstjórnarkosningar í Reykjavík.
Það hættulegasta sem minkandi flokkur eins og Al-
þýðuflokkurinn getur gert, er að fara aftur og aftur
út í kosningabaráttu við ungan hraðvaxandi flokk
eins og Kommúnistaflokkinn.
Ef örfáum forustumönnum í Alþýðuflokknum er
látið haldast uppi að reka sömu æsingapólitík gegn
kommúnistum áfram, þá hlýtur flokkurinn að kvarn-
ast niður á fáeinum misserum.
í hinum fullkomna skorti á hæfileik til að skilja
hvað er að gerast, skrifar H. V. grein í Alþýðublaðið
fám dögum eftir kosningar, þar sem hann lýsir yfir
því að eftir ófarirnar í Reykjavík álíti hann nú væn-
legast til nýrrar ef lingar f lokksins að sem flestir gangi
í Jafnaðarmannafélagið, einmitt það félag þaðan sem
Héðinn lætur reka menn, ef þeir halda fram þeirri
167