Réttur - 01.07.1937, Page 14
Saga þín í viðskiptaheiminvim er ekki orðin sérlega
löng, en hún er ákaflega viðburðarík, og þeir viðburð-
ir hafa allir fleytt þér áfram að hinu mikla takmarki
þínu að verða ríkur.
Margur hefir kvartað undan þér; þótt þú óvæginn
og áleitinn. Það hefir verið sagt um þig, að þú hefðir
engar mannlegar tilfinningar, tækir aldrei tillit til
neins og gætir ekki sett þig í annarra spor. En sam-
vizka þín hefir jafnan verið góð, því þú varst þá ekki
að aðhafast neitt annað, en grípa og hagnýta þér þau
tækifæri, sem öllum stóðu til boða, en menn létu ganga
úr greipum sér, af því þá skorti framtak og hagsýni.
Þú hélzt þig alltaf innan endimarka lagafyrirmæl-
anna, en þú tókst það sem þú náðir í á þann hátt,
því þú varst að koma þér áfram í heiminum. Þú hlauzt
brátt mikið orð fyrir dugnað og kænsku í fjármálum
og stóðst þig vel í hinni frjálsu samkeppni. Eftir
nokkrar misheppnaðar tilraunir annarra fjárplógs-
manna til þess að ráða þig af dögum (fjárhagslega
meint) tóku ýmsir þeirra að leita eftir samvinnu við
þig, flykktust að þér og vörpuðu sinni fjárhagslegu
kreppu á herðar þér, eða afhentu þér auð sinn til um-
ráða, af því þeir treystust ekki lengur til að standa í
baráttunni við þitt vaxandi vald. Þú tókst að þér
forustuna, en heimtaðir rífleg laun fyrir starf þitt og
klókindi. Þeir borguðu þegjandi, því þeir vissu, að þeir
voru að kaupa sig undan tortýmingu.
Þú auðgaðist sífellt, en margir urðu fátækir við það
og sumir fóru á hausinn. Þú varst hataður af verka-
lýðnum, sem þú kúgaðir og arðrændir, og keppinautar
þínir formæltu þér. En þú hafðir góða samvizku, því
samkvæmt lífsskoðun þinni getur fjöldinn ekki orðið
ríkur eða átt tilkall til gæða lífsins. Það eru bara fáir
einstaklingar, sem sakir dugnaðar síns eru kjörnir til
þess, eftir úrvali náttúrunnar.
Þú fékkst aldrei við stjórnmál, en þú borgaðir fyrir
174