Réttur


Réttur - 01.07.1937, Síða 24

Réttur - 01.07.1937, Síða 24
verja að einhverju leyti til verðlauna fyrir frábæran dugnað í jarðabótum. Ársvextir voru aðeins 3% og mátti lána til jarðabótanna allt að % kostnaðar. Upp- haflega var ákveðið, að lánin mætti aðeins veita gegn veði í jarðeignum, en 1902 er það upptekið að lána megi einnig gegn ábyrgð.sveita- bæja- og sýslufélaga og með því reynt að bæta aðstöðu þeirra, sem ekki höfðu jarðeignir að veði fram að bjóða. Og 1905 er síðan ákveðið að úr sjóðnum megi einnig lána til á- býlakaupa og leiguliðar með því styrktir að festa kaup á býlum sínum. . En um leið og hugsað er til aukinnar ræktunar, þá verður ein fyrsta nauðsyn sú, að friða hina ræktuðu bletti. Og 1903 er farið mjög myndarlega af stað með lög um túngirðingar. Á tímabilinu frá 1905—1909 átti að lána úr landssjóði 100 þús. krónur til að kaupa galvnísérað girðingarefni. % hluta girðingarefnisins átti að lána bændum, og væri hlaðið undir, svo að ekki þyrfti nema 3 girðingastrengi, þá átti að taka það allt. Lán þetta átti að greiðast á 41 ári með 5% jöfnum vöxtum og afborgunum. Auk þess var sýslusjóðnum gert að skyldu að greiða allan kostnað við uppskipun, geymslu og afhendingu efnisins. — En lög þessi kom- ust aldrei til íramkvæmda. Því að 1905 voru samþykkt lög um frestun þessara laga á f járhagstímábilinu 1906 — 1907 og 1907 er sú frestun framlengd að nýju. Fram yfir aldamótin, og meira að segja fram yfir 1920 er hér á landi ekki til neitt er geti heitið land- búnaðarlöggjöf. Svo má heita, að styrkveitingar þær og þau önnur sérstöku ákvæði viðvíkjandi landbúnað- inum, er þegar hafa verið nefnd, sé sú eina löggjöf, er landbúnaðinn snertir á þessu tímabili. Þingið lítur ekki á sig sem leiðandi kraft um úrlausnarefni land- búnaðarmálanna. Lögin um nýbýli, frá 1897 myndu hafa þótt fátækleg og bágborin nú á tímum. Þau eru eingöngu um skilyrði, sem sett eru fyrir veitingu ný- býlisleyfis, og skyldur, sem nýbýlingum eru á herðar 184

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.