Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 31
að sýna afrek sín, ekki aðeins afrekanna vegna, heldur
íyrst og fremst í þágu vísinda og menningar. Þeir hafa
lagt flugleið frá Moskva til San-Fransisco, — yfir
Norðurpólinn, og með því hafa þeir eigi aðeins vígt
nýja flugleið milli fjarlægra heimsálfa, heldur hafa
þejr unnið rannsóknum Norðurheimsskautsins fast
land undir fætur, ef svo mætti að orði kveða og gert
að veruleika drauma hinna vondjörfustu landkönn-
uða og vísindamanna.
Heimskautsflugið hefir verið mál málanna um allan
heim undanfarnar vikur. Allt vekur jafna aðdáun:
flugvélarnar sjálfar, flugmennirnir og þá ekki síst
hinn tryggilegi undirbúningur leiðangursins, sem tali-
inn hafa verið svo fullkominn, að betur eða öruggar
sé ekki hægt að undirbúa neinar framkvæmdir.
,,Réttur“ hefir vonir um að geta innan skamms flutt
ýtarlega grein um flug þetta, ritaða af sérfróðum
manni.
191