Réttur


Réttur - 01.01.1984, Side 2

Réttur - 01.01.1984, Side 2
ASÍ og BSRB tilkynntu ríkisstjórn að vinnandi fók myndi hvorki tala við hana né atvinnurekendur, nema samningsrétti væri tafarlaust skilað til baka. Og ríkisstjórnin var fljót að renna á rassinn og afhenda fólkinu þann samn- ingsrétt, er burgeisar hugðust stela. Hún skildi málið, þegar valdið, vald verkalýðsins, var sýnt. Ríkisstjórnin hélt sig sleppa ódýrt í samningunum, er hún lét skína í að hún ætlaði sér að koma á atvinnuleysi — og jafnvel löngum verkföllum, ef til átaka kæmi. En sterk verkalýðsfélög svo sem Dagsbrún, hinn forni brautryðjandi, verka- lýðsfélögin á Húsavík og í Vestmannaeyjum sýndu atvinnurekendum og ríkisstjórn að þeim væri best að hækka tafarlaust kaup og kjör, ef ekki ætti verra af að hljótast. ísinn var brotinn. Og um allt land tók hið vinnandi fólk að rísa upp í félögum sínum — og jafnvel mynda áhugasamtök gegn þræla- lögunum utan þeirra. Útivinnandi konur, kennarar o.fl. o.fl. risu upp. Meiri og öflugri þátttaka almennings í stéttarbaráttunni varð en þekkst hefur í mörg ár. Það er uppreisn gegn þrælalögum og kaupráninu mikla í aösigi. Krafan um uppsögn samninga 1. september varð almenn. — Og ekki minnkaði reiði fólksins, er ríkisstjórnin hugðist stela af launafólki með tekjuskattshækkunum kauphækkunum þess á sama tíma og hún lækkar skatt á bröskurum. ASÍ og BSRB létu strax til sín heyra hvað slíkar aðfarir myndu leiða af sér. Samtímis öllum ránsskapnum sýnir svo ríkisstjórnin sig ófæra um að hag- nýta auðlindir landsins, lætur vitleysuna og ringulreiðina í fjárfestingu og við- skiptum viðgangast og aukast — og heldur að alþýða landsins muni fást til þess að greiða allan kostnaðinn af bandvitlausri og svívirðilegri óstjórn þess- ara vesælu kerfiskarla. 1942 urðu sterkari og meiri menn en þeir, sem nú stýra íhaldi og Framsókn, að gefast upp við þræla- og kaupránslög. Nú 1984 er auðséð að alþýða fslands er að rísa upp gegn enn verra atferli þessara kaupránsflokka. — Og alþýðan þarf að sýna þeim í tvo heimana jafnt í kaupgjaldsbaráttu sem í þeirri kosningabaráttu, er væntanleg er að ári og koma þessum kaupránsflokkum í minnihluta á Alþingi. — íslensk alþýða er ekki vön að kyssa á vöndinn — og krjúpa fyrir ræningjum, sem féfletta hana, — heldur brjóta þá á bak aftur. Því hún er meirihlutinn í landinu, jer hún öll stendur saman, konur sem karlar.

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.