Réttur


Réttur - 01.01.1984, Side 36

Réttur - 01.01.1984, Side 36
barna, því slíkar kenningar stofni mann- félagi gróðafíkninnar og auðdrottnunar í hættu. Frá þessum blindu ofstækis- mönnum auðs og gróða stafar hættan á útrýmingu mannkynsins í atómstríði. Vitfirrt auðvaldsskipulag verður að víkja, öll atómvopn jarðar verður að eyðileggja og allar þjóðir taka höndum saman um að útrýma hungri, fátækt, sjúk- dómum úr heiminum. Mannkynið stendur á þröskuldi nýrrar stórkostlegrar aldar tækniundra og upp- götvana, — örtölvur, lífefnabylting o.s.frv. geta gert þessa jörð að gósenlandi réttlætis, þar sem þrældómur og allt illt, er fylgt hefur stéttaþjóðfélaginu, ei lengur þekkist. En til þess svo megi verða, þarf hver einasti hugsandi maður að gera skyldu sína til að vekja alla til meðvitundar um hættuna og skyldur þeirra. Frelsun mannkynsins frá voða auð- valdsdauðans, tortímingar þess í atóm- stríði og öðrum afleiðingum þess, verður að vera verk mannkynsins sjálfs, fyrst og fremst hinna sjáandi á meðal þess, er forða þannig meðbræðrum og -systrum frá tortímingu. Ef enginn sá, er hættuna sér, liggur á liði sínu, þá á mannkynið skilið að lifa af — og mun frelsast á mestu hættustund í lífi þess. „AHe Menschen werden Briider“ (allir menn verða brœður“ er boðskapur 9. Symphoniu Beethovens.) (Myndin eftir J.W. Wassiljew) 36

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.