Réttur


Réttur - 01.01.1984, Síða 46

Réttur - 01.01.1984, Síða 46
Grafreitur 470000 Leningradbúa Wasja frændi* andaðist 13.4 1942 um klukkan tvö um nóttina. Ljoscha frændi* dó 10.5 1942 um kl. fjögur síðdegis. Mamma dó 13.5 1942 um kl. 7.30. Sawitschew-fólkið er dáið. Allir eru dánir. Tanja er ein eftir.“ * frændi er notað hér, en átt er við móð- ur- eða föðurbróður. Þannig tæmdust heilu húsin af íbúum, fjölskyldur hurfu burt af sviði lífsins. En einnig í þessum ægilega sorgleik gerðust furðuverk. Nafn litlu Tönju lifir, en mörgum árum eftir stríðið fannst gröf hennar í grennd við Volgu. Litlu stúlk- unni hafði verið bjargað eftir að umsát- ursherinn beið lægri hlut fyrir rauða hern- um og varð að hverfa á brott. Tanja hafði verið flutt suður á bóginn, en hungrið hafði leikið litla líkamann svo grátt að hún lést nokkru síðar. En þar bjó frænka hennar og bróðir þeirrar frænku, svo Sawitschew-frændfólkið hafði ekki allt dáið út. Sagan af hetjuskap varnarliðsins og samhjálp allra, er vettlingi gátu valdið, við vörn borgarinnar er eins stórfengleg og sagan af einstæðingnum og þeim, sem minnstan höfðu mótstöðukraftinn er átakanleg. En hún verður ekki sögð í stuttu máli. Þann 27. janúar 1944 fengu skelfingar hinna eftirlifandi Leningrad-búa enda. Rauði herinn hafði utan frá sprengt um- sáturshring nasistahersins, rekið hann á flótta og sameinast varnar-hetjum Len- ingrad og eftirlifandi íbúum stórborgar- innar. Sá dagur varð ógleymanlegur, eigi aðeins þeim íbúum Leningrad, er eftir lifðu, heldur og Sovétríkjunum öllum. SKÝRINGAR: Peim, sem þýsku lesa og fræðast vilja meir um Leningrad-umsátrið ægilega, skal af nýjustu grein- um þarum bent á tvennt: „SowjetIiteratur“, tímaritið, 1. h. 1984, margar greinar á bls. 87-114 og „Neue Zeit“, tímaritið, 5. h. 1984, grein eftir D. Chrenkow: „Leningrads Heldentum". Er stuðst við bæði heftin hér og myndir þaðan. 46

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.