Réttur - 01.01.1984, Page 49
Heinrich Kau
þeirri hörku og samheldni, er duga til að
hnekkja áformum slíkrar harðstjórnar og
illu valdi hennar.
III.
„Réttur“ vill fyrir sitt leyti gjarnan
varðveita slíkar minningar, jafnt um að-
farir yfirstétta sem baráttu einstaklinga
og heilda. Væri okkur kærkomið, ef
menn vildu skrifa honum slíkar frásagnir.
Eins væri það mikilsvert að geta bjargað
frá gleymsku myndum af mönnum og at-
burðum er snerta þessa baráttu alþýðu.
— Einnig er hægt að geyma slíkt til síðari
tíma hjá okkur, ef menn ekki kærðu sig
um að fá það birt nú þegar.
f>að er lífsnauðsyn að sú kynslóð, er
nú vex upp og hefur mestmegnis lifað við
góð kjör, fái að vita hverskonar þjóðfé-
lagsmisrétti henni var forðað frá og hvaða
baráttu það kostaði. Og menn skulu
minnast þess að helmingur núlifandi ís-
lendinga er fæddur eftir baráttuárin miklu
1955 og 1956.
Einnig heitir „Réttur" á þá, sem kunna
að þekkja með nafni þá menn, er myndir
birtust af í fjöldahópum og höfundar eigi
gátu nafngreint, að skrifa „Rétti“, er þeir
vita hið sanna. Þannig þætti okkur sér-
staklega vænt um ef gamlir, góðir Akur-
eyringar gætu greint fyrir okkur nöfn fé-
laganna í Karlakór Akureyrar á myndinni
á bls. 79 í „Kraftaverki einnar kynslóðar“.
Alfred Neumann
49