Réttur - 01.01.1984, Side 64
Út frá teikningu Anton Hansens
Auðmaðurinn skapar sér sinn
guð í sinni mynd og segir svo við
mennina: Sjá, ég er skapaður í
guðs mynd, — hlýðið mér. — Og
hann tilbiður og þjónar Mammoni
á laun — og oft opinberlega.
Og auðmaðurinn er spurður
hvað hann álíti um þann Jesú frá
Nasareth, er sagði unga ríka
manninum að gefa allar eigur sín-
ar fátækum og koma svo til sín.
Og auðmaðurinn svaraði:
Ég frábið mér allan kommún-
isma, — (og hugsar í laumi: því
hann er á móti veldi Mammons.
Það er ekki furða, þó yfirvöldin hafi
drepið svona áróðursmann í Jer-
úsalem forðum daga.)
Ronald Reagan, æðsti prestur
„Mammons-ríkis Ameríku", sagði
fyrir nokkru: Satan býr í Moskvu
þar er ríki hins illa („the Kingdom
of Evil“), og það verður að útrýma
því illa í heiminum, — (með eld-
flaugum og atómsprengjum, hugs-
aði hann, því kommarnir eru á
móti útbreiðslu mammonsríkis
míns um allan hnöttinn).
NEISTAR
Og þegar þessi boðskapur
æðstaprestins barst til hins neðra,
þá var hlegið dátt í helvíti og
klappað. Þar sáu djöflar í draum-
sýn alla jörðina eitt logandi víti.
Organistinn í
„Atómstöðinni“ sá
ránsaðferð
ríkisstjórnarinnar fyrir
(Þegar Ugla í Atómstöðinni er
að tala við organistann út af þjófn-
aði manns síns, er hann sat í tugt-
húsi fyrir, kveður organistinn að-
farir hans mikla sveitamennsku og
segir m.a.):
„Ef menn vilja stela í þjófafé-
lagi, þá verður að stela sam-
kvæmt lögum; og heist að hafa
tekið þátt í því að setja lögin
sjálfur."
Kommúnisminn
í frum-kristninni
„En í hinum fjölmenna hóp
þeirra, er trú höfðu tekið, var eitt
hjarta og ein sál, og enginn þeirra
taldi neitt vera sitt, er hann átti,
heldur var þeim allt sameiginlegt.
Postulasagan, 4. 32
64