Réttur


Réttur - 01.04.1989, Qupperneq 3

Réttur - 01.04.1989, Qupperneq 3
 ÍSLAND OG UMHEIMURINN Hjörleifur Guttormsson, alþingismaður: Hvert stefnir í viðræðum við EB? Staða mála í Evrópu er í mikilli deiglu. Evrópubandalag ríkjanna 12 (EB) sem gengist hafa undir ákvæði Rómarsáttmálans er að þróast í eina ríkisheild. Sam- eiginlegur innri markaður á að komast á innan bandalagsins ekki síðar en á árinu 1992. Knúið er á um sameiginlegan gjaldmiðil og sameiginlega utanríkisstefnu sem vegvísa að myndun eins ríkis. Stjórntækni þessa væntanlega stórveldis með 330 milljónir íbúa eru næsta ólýðræðisleg, vald framkvæmdastjórnar og ráðherra- ráðs með aðsetri í Brússel yfirgnæfir Evrópuþingið í Strassbúrg, sem aðeins er ráðgefandi stofnun. Evrópudómstóll með aðsetri í Lúxemborg sker úr deilumál- um og á þátt í að móta yfirþjóðleg lög fyrir löndin 12. Efnahagslegar forsendur eru driffjöðr- ln á bak við innri markaðinn, von um nokkurra prósenta hagvöxt á bandalags- svæðinu og bætta samkeppnisstöðu gagn- Ví>rt iönaðarframleiðslu keppinauta, aðal- *ega Bandaríkjanna og Japans. Pað er Urst í kjölfar þessara ákvarðana um óheft streymi fjármagns, þjónustu, vöru og Vlnnuafls á öllu EB-svæðinu, sem byrjað er að huga að félagslegum þáttum (social dimension) og umhverfismálum og enn er *átt á hreinu um þau efni. EB-ríkin ætla sér að halda fast við Rómarsáttmálann frá 1957 með síðari breytingum. í viðræðum við önnur ríki um tengsl og samskipti er hann óhaggan- legur og þær reglur sem mótaðar hafa verið á grundvelli hans. Petta heitir á máli EB, að miða verði við þegar mótaðar reglur eða „aquis communautaire“. Pað eru skilmálar gagnvart EFTA-ríkjunum í þeim viðræðum, sem nú standa yfir og fjallað verður um hér á eftir. 51

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.