Réttur


Réttur - 01.04.1989, Side 4

Réttur - 01.04.1989, Side 4
Samstarf EFTA og EB frá 1984 (Lúxemborgaryfirlýsingin) Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA) eru samtök 6 fullvalda ríkja um fríversl- un, með skrifstofu og framkvæmdastjóra í Genf. Ráðherraráð EFTA tekur engar bindandi ákvarðanir og enginn dómsóll er til að skera úr um ágreiningsefni. Samráð hefur lengi verið nokkurt á sviði fríverslunar milli EFTA og EB, en samningar verið milli hvers og eins af að- ildarríkjum EFTA við EB, það er tví- hliða sem kallað er. Fríverslunarsamning- ur íslands við EB var gerður 1972 og gekk í gildi ári síðar, nema svonefnd bókun 6 varðandi sjávarafurðir, sem fyrst gekk í gildi 1976 eftir lok deilna vegna útfærslu íslensku fiskveiðilögsögunnar. Árið 1984 var tekið upp skipulegt sam- starf EFTA og EB á allmörgum sviðum. Ákvörðun um þetta var tekin á sameigin- legum ráðherrafundi í Lúxemborg og yfirlýsing fundarins er síðan kennd við fundarstaðinn. Hún tók til ýmissa þátta til að greiða fyrir fríverslun, samvinnu um rannsóknir og þróun, menntamál, um- hverfismál og samráð í alþjóðastofnunum eins og GATT og OECD. Mikil vinna hefur síðan farið fram á grundvelli Lúx- emborgaryfirlýsingarinnar, t.d. um sam- ræmingu staðla og afnám svonefndra tæknilegra viðskiptahindrana. Alls hafa verið í gangi um 20 samstarfs- verkefni milli aðila og eru þau misjafn- lega á vegi stödd. Um þetta samstarf hef- ur ekki staðið neinn pólitískur styrr og það hefur farið hljóðlátlega fram, enda má segja að það breyti litlu um eðli sam- skipta EB og EFTA. Við athugun á nú- verandi samskiptum er nauðsynlegt að greina á milli þessarar samvinnu og þeirra nýju hápólitísku atriða, sem komu til sögunnar snemma árs 1989. Lagt inn á nýjar brautir: Oslóaryfirlýsingin í Lúxemborgaryfirlýsingunni frá 1984 er rætt almennum orðum um aukið efna- hagslegt samstarf EFTA og EB svo að mynda mætti síðar samstætt og öflugt evr- ópskt efnahagssvæði (EES). Fáir lögðu merkingu í þetta orðalag og það var fyrst 5 árum síðar, í byrjun árs 1989, að það fékk pólitískt innihald. Á síðasta ári þreifuðu nokkrir forystu- menn innan EB og EFTA á möguleikum til að breyta verulega um áherslur í sam- skiptum jDessara aðila. Þrýstingur iðnrek- enda í EFTA-ríkjunum vegna innri mark- aðar EB fór vaxandi og samtök iðnrek- enda í Svíþjóð, Noregi og fleiri EFTA- ríkjum kröfðust aðlögunar og jafnvel að- ildar að EB. Noregur fór með forystu í EFTA um þær mundir og Gro Harlem Brundtland ræddi við ýmsa krataleiðtoga í EB um viðbrögð. Eftir slíkar áþreifingar að tjaldabaki setti forseti framkvæmda- stjórnar EB, Frakkinn Jacque Delors, fram hugmyndir í ræðu 17. janúar 1989 sem beint var til EFTA, þess efnis að EFTA-ríkin tækju sig á sameiginlega og reyndu að nálgast markmið EB um innri markað. Tveimur mánuðum seinna, þann 15. mars 1989, undirrituðu forystumenn EFTA svonefnda Oslóaryfirlýsingu, þar sem þeir lýstu sig reiðubúna til að kanna með EB möguleika á að koma á sameig- inlegu efnahagssvæði ríkjanna 18 (12 EB- lönd + 6 EFTA-lönd). í þessu skyni muni EFTA-ríkin m.a. leitast við að koma á hjá sér forsendum innri markaðarins með óheftu streymi á vörum, þjónustu, fjár- magni og vinnuafli. Einnig verði athugað gaumgæfilega að koma á skipulegri sam- skiptum með sameiginlegri ákvarðana- töku og stjórnsstöðvum til að gera sam- 52

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.