Réttur


Réttur - 01.04.1989, Page 6

Réttur - 01.04.1989, Page 6
viðræður. Niðurstaða úr embættismanna- viðræðum sumarsins kemur ekki inn á borð ríkisstjórna fyrr en um næstu mán- aðamót og komið verður fram í nóvember þegar Alþingi fær skýrslu um málið. Samt er það ætlun ráðamanna að skera úr um það jafnvel fyrir jól, hvort taka skuli upp samningaviðræður, en sameiginlegur fundur EFTA og EB er dagsettur 19. des- ember. Pað kann heldur ekki lukku að stýra að íslenski utanríkisráðherrann hefur nú þegar kveðið upp úr um það, áður en heildarniðurstaða liggur fyrir frá embættis- mönnum EFTA, að öll efni standi til að ganga til formlegra samningaviðræðna. Utanríkisráðherra ráðfærir sig ekki við eigin ríkisstjórn, áður en hann básúnar út þetta álit á fundum erlendis og sendir frá sér fréttatilkynningar þar að lútandi. Stefnumörkun Alþingis ólokið Á fundi með Evrópustefnunefnd Al- þingis og utanríkismálanefnd þann 19. september sl. gaf utanríkisráðherra yfir- lýsingu um að hann myndi leita eftir formlegu umboði Alþingis til samninga- viðræðna á vegum EFTA við Evrópu- bandalagið, áður en ákvarðanir þar að lútandi yrðu teknar. Þetta er mikilvæg afstaða, ekki síst í ljósi þess að mikið vantar á að stefnumörkun sé lokið af hálfu þingsins. í stórmáli eins og því sem hér er á ferð- inni, sem snertir undirstöðuþætti efna- hagsstarfsemi í landinu, mega menn ekki misstíga sig. Fjölmörgum spurningum er ósvarað um forsendur hugsanlegra samn- ingaviðræðna við EB með öðrum EFTA- ríkjum, áður en menn gera það upp við sig, hvort út í þær skuli haldið. Það er líka mikilvægt að átta sig á, að við eigum ann- arra kosta völ, m.a. með tvíhliða viðræð- um, en um þá möguleika hefur alltof lítið verið fjallað til þessa. Hagsmunir íslands og Evrópskt efnahagssvæöi Markmiðið með viðræðunum milli EFTA og EB í framhaldi af Óslóarfundi EFTA í mars sl. er að undirbúa formlegar viðræður sem leitt gætu til samnings um ofangreind atriði. Liður í því er að koma á kerfisbundnu samstarfi um löggjöf og stofnanir, sem tekið geti sameiginlega ákvarðanir. Að mati þeirra sem knýja á um slíka samninga ætti niðurstaðan að verða Evrópskt efnahagssvæði (EES), þar sem giltu sem næst sömu reglur og um innri markað Evrópubandalagsins. Undantekningar frá þessu væru samn- ingsatriði og eru hugsaðar sem fæstar. Þær væru aðallega tímabundnar, þ.e. að samið yrði um ákveðinn aðlögunartíma. EFTA-ríkin sem gengju inníþetta sam- eiginlega efnahagssvœði með EB þyrftu ekki að gerast formlegir aðilar að Rómar- sáttmálanum, þ.e. stjórnarskrá Evrópu- bandalagsins, en vœru í öllum meginatrið- um á sama spori og aðeins herslumunur- inn eftir að formlegri aðild. Þau pólitísku og hagsmunalegu öfl, sem í raun eru farin að gæla við beina að- ild að EB en telja ekki tímabært að leggja þau spil á borðið, líta á „aðlögun“ að EB í formi Evrópsks efnahagssvæðis sem þægilega inngönguleið bakdyramegin inn í stórríkið. Helstu þættir efnahagssvæðisins (EES) Hér verður á eftir gerð grein fyrir helstu þáttum Evrópska efnahagssvæðis- ins eins og hugmyndir liggja fyrir um það 54

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.