Réttur


Réttur - 01.04.1989, Side 10

Réttur - 01.04.1989, Side 10
Óskilgreind aðlögun Yfirstandandi viðræður um samninga við Evrópubandalagið um Evrópskt efna- hagssvæði fela í sér miklar hættur. Sára- lítil viðleitni hefur verið í þá átt að skilgreina í hverju íslenskir hagsmunir eru fólgnir að því er varðar megininntak þessara viðræðna. Litlar sem engar rann- sóknir eru í gangi varðandi líkleg áhrif á íslenskt efnahagslíf. Enginn vitrænn samanburður hefur farið fram á því, hvaða kostir og áhættur felast í því að gera tilraun til samninga í samfloti með öðrum EFTA-ríkjum í stað þess að búa sig undir tvíhliða viðræður við EB til að tryggja okkar hagsmuni. Peir sem ákveðið mæla með EFTA- samflotinu hafa ekki sagt til um, hversu langt þeir eru reiðubúnir að ganga í að- lögun að EB og hvar takmörkin liggja. Pótt talað sé um að engar yfirþjóðlegar ákvarðanir og valdaafsal komi til greina í sambandi við Evrópskt efnahagssvæði, er vandséð hvernig komist verði hjá því í reynd. Það sýnir kannski best hversu veikur sá ís er, sem verið er að draga menn út á í EFTA-samflotinu, að margt bendir nú til þess að til viðbótar við Austurríki verði Svíþjóð og Noregur komin með formlega umsókn um aðild að Evrópubandalaginu innan fárra ára! Eftir stæðu þá ísland, Finnland og Sviss. Hvaða vit er í því að ætla að binda viðræður um hagsmunamál okkar samfloti með hópi ríkja, sem telja sér betur borgið með því að skipa sér hin- um megin við markalínuna? Viðskiptahagsmunir íslands: Nýjar leiðir Pað hefði í för með sér miklar og var- hugaverðar breytingar fyrir íslenskt sam- félag að bindast Evrópubandalaginu. 58 Jafnframt er það vart í samræmi við hags- muni íslands að fylgja þeirri stefnu, sem flest EFTA-ríki virðast nú vilja taka upp í samskiptum við Evrópubandalagið. Af- leiðingar þess gætu m.a. orðið: ■ Sjálfstæði þjóðarinnar, pólitískt og efnahagslegt yrði skert. ■ Verulegt nettó fjármagnsstreymi yrði frá landinu. ■ Erlent fjármagn næði tangarhaldi í sjávarútvegi. 1 Evrópubandalaginu væri ísland jaðar- svæði og ætti örðugt með að halda hlut sínum gagnvart miðsæknum kröftum í efnahagslífi og stjórnmálum. ísland yrði í slíku bandalagi fyrst og fremst hráefna- gjafi og bandalagið myndi nýta íslenskar náttúruauðlindir fyrst og fremst tii úr- vinnslu nálægt markaði. Nú er rætt um mun nánari samvinnu EFTA og EB, m.a. í formi tollabandalags, og slíkt væri að lík- indum aðeins áfangi að sömu niðurstöðu. ísland er á margan hátt í öðru vísi stöðu landfræðilega, viðskiptalega og menningarlega en önnur EFTA-ríki, svo sem Austurríki, Sviss og Svíþjóð og jafn- vel Noregur. Ætla má að íslendingar eigi annarra og betri kosta völ en þessar þjóðir. Við hljótum því að setja spurning- armerki við það hvort við eigum að fara inn á braut sem felur í sér verulega skerð- ingu á sjálfsákvörðunarrétti, eins og nú er rætt um innan EFTA. Virk samskipti utan bandalaga Það virðist einboðið að íslendingar leiti annarra leiða til að tryggja hagsmuni þjóðarinnar í bráð og lengd. Svarið gæti verið fólgið í því, að ísland stæði utan viðskiptabandalaga en leitaði eftir samn- ingum við bandalög og einstök ríki um fríverslun og félagsleg og menningarleg samskipti. J

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.