Réttur


Réttur - 01.04.1989, Qupperneq 17

Réttur - 01.04.1989, Qupperneq 17
Þingflokkur Alþýöubandalagsins ásamt formanni flokksins. 2. Að ekki verði gerðar breytingar á nú- verandi skipan á flutningi fjármagns, þjónustu og vinnuafls, nema Ijóst sé að það hafi jákvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf og samfélag. Jafnframt er nauðsynlegt að allar breytingar sem gerðar kunna að verða byggist á ná- kvæmri skoðun á raunverulegum ís- lenskum aðstæðum. 3. Að kröfur annarra EFTA-ríkja um aðlögun að innri markaði EB og um náin tengsl við bandalagið verði ekki til að binda hendur íslendinga, m.a. varðandi samskipti við aðra heims- hluta. Þingflokkur Alþýðubandalagsins legg- ur áherslu á, að íslendingar athugi nú stöðu sína í samskiptum við umheiminn sem best. Varast ber að landið sogist inn í stórar heildir og glati efnahagslegu sjálfs- forræði í alþjóðlegu peninga- og fjár- magnskerfi. Fyrir lítið land eins og ísland eru ýmis vandamál sem geta fylgt óheftum fjár- magnshreyfingum. Þar má nefna: ■ Óheftar fjármagnshreyfingar tak- inarka verulega möguleikann á að reka sjálfstæða peningastefnu. Þetta þýðir að ekki verður lengur hægt að stjórna bæði vöxtum og gengi. Ef gengið er fast ákvarðast vextirnir á alþjóðlegum fj ármagnsmörkuðum. ■ Óheftar fjármagnshreyfingar geta með fjármagnsflótta og gjaldeyriskreppu grafið undan efnahagsstefnu, sem að öðru leyti gæti fullkomlega staðist. 65

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.