Réttur


Réttur - 01.04.1989, Qupperneq 19

Réttur - 01.04.1989, Qupperneq 19
ÍSLAND OG EVRÓPUBANDALAGIÐ Stefanía Traustadóttir, félagsfræðingur: Fræðslusamtök um Island og Evrópubandalagið „Fyrir dyrum standa örlagaríkar ákvarðanir, sem varða alla framtíð þjóðarinn- ar. Þegar þannig stendur á hefði sérhver heiðarleg ríkisstjórn talið það skyldu sína, að gera þjóðinni hlutlæga grein fyrir því máli, sem til umræðu er. Núver- andi ríkisstjórn íslands hefur ekki haldið þannig á málum. Hún hefur verið hlutdræg. I stað þess að upplýsa þjóðina um, hvað um er að ræða, er farið í felur með hið raunverulega innihald málsins. í stað þess að segja satt og rétt frá, eru hrein falsrök framborin.“ Fyrirsögn þessa texta er; „Feitur þjónn er ekki mikill maður.“ Og lokaorðin eru; „Barður þræll er mikill maður, því í hans brjósti á frelsið heima“. Þessi orð voru skrifuð 1962 af Hauki Helgasyni hagfræðingi í fræðsluriti um ís- land og Efnahagsbandalag Evrópu sem ASI gaf út. Það má spyrja sig hvort þessi orö eigi við í dag 27 árum síðar. Það hefur ekki farið fram hjá mörgum að þekking okkar íslendinga á málefnum EFTA, Evrópubandalagsins og á sam- skiptum okkar viö þessi tvö bandalög er vægst sagt lítill. Við erum að taka afstöðu með eða á móti án þess að vita hvað það er sem við erum að taka afstöðu til! Frétt- ir um samskipti og samningaviðræður EFTA-ríkjanna við Evrópubandalagið hafa tekið talsvert pláss í fjölmiðlum undanfarnar vikur og mánuði — en því miður hafa þeir látið undir höfuð leggjast að fræða okkur um forsendur þessara samskipta og um hvað er verið að semja. Þann 11. maí 1989 var haldinn fundur í Norræna húsinu þar sem norskur prófessor Kristen Nygaard, flutti erindi um Noreg og EB. Þar var sagt frá norrænum fræðslusamtökum um Evrópubandalagið 67

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.