Réttur


Réttur - 01.04.1989, Blaðsíða 22

Réttur - 01.04.1989, Blaðsíða 22
sanni segja að hér sé um nokkurs konar yfirríkjastofnanir að ræða. Lykilstaða ríkisstjórnanna Pað er þó nauðsynlegt að hafa hér einn mikilvægan fyrirvara á þegar rætt er um valdaframsal aðildarríkjanna til stofnana Evrópubandalagsins. Staðreyndin er sú að meðferð þess sameiginlega valds er endanlega að mestu Ieyti í höndum full- trúa ríkisstjórna aðildarríkjanna er sitja í ráðherraráði Evrópubandalagsins. Þetta byggist á því að í ráðherraráðinu, sem fer með æðsta ákvörðunarvald bandalagsins, hefur sú regla gilt að ekki eru teknar bindandi ákvarðanir án þess að fyrir liggi samstaða og samþykki allra aðildarríkja bandalagsins. Hvert ríki hefur þannig haft neitunarvald um málefni Evrópu- bandalagsins og fulltrúar aðildarríkjanna með því getað tryggt að ekki verði gengið gegn „grundvallarhagsmunum" einstakra aðildarríkja við ákvörðunartöku í banda- laginu. Þetta breytir því þó ekki að í þeim fjölmörgu málum er heyra undir sátt- mála Evrópubandalagsins geta aðildar- ríkin ekki tekið ákvarðanir upp á eigin spýtur og þrátt fyrir neitunarvald sitt verða þau að ná samkomulagi á vettvangi stofnana bandalagsins vilji þau að Evrópu- bandalagið starfi á eðlilegan hátt í sam- ræmi við markmið sín. Þó að neitunar- valdið hafi að vísu verið afnumið hvað varðar ákvarðanir er lúta að því að hrinda í framkvæmd hinum svokallaða „innri markaði“ bandaiagsins þá er ekkert sem bendir til þess að ríkisstjórnirnar muni á næstunni verða reiðubúnar til að fallast á að einstök aðildarríki afsali sér þeirri lykil- aðstöðu sem þau hafa við ákvörðunar- töku innan ráðherraráðsins. Það er miklu líklegra að eftir því sem umsvif Evrópu- bandalagsins aukast og því eru falin fleiri verkefni, að ríkisstjórnir vilji að áhrif þeirra séu tryggð í ákvörðunartöku bandalagsins. Sú staðreynd að hið sameiginlega ákvörð- unarvald Evrópubandalagsins er í hönd- um fulltrúa ríkisstjórna aðildarríkjanna beinir athyglinni að því að í reynd hefur ekki svo mjög verið um að ræða tilfærslu ákvörðunarvalds frá aðildarríkjunum til bandalagsins heldur tilfærslu á valdi frá löggjafarstofnunum aðildarríkjanna til ríkisstjórnanna. Evrópubandalaginu hef- ur verið falin meðferð tiltekinna mála- flokka og jafnframt veitt vald til lagasetn- ingar um þau mál sem eru bindandi fyrir aðildarrfkin án þess að koma þurfi til staðfesting eða samþykki þjóðþinga að- ildarríkjanna. Þar sem fulltrúar ríkis- stjórnanna fara með þetta vald í ráðherra- ráðinu þá má segja að stjórnskipan Evr- ópubandalagsins hafi leitt til þess að ríkis- stjórnirnar hafi enn frekar eflst á kostnað þjóðþinga landanna eða með öðrum orð- um að það hafi orðið tilfærsla á valdi frá þjóðþingunum til framkvæmdavaldsins. Ríkisstjórnir aðildarríkjanna hafa auðvit- að um langan aldur haft sterk tök á þjóð- þingum sínum en þær hafa þó ætíð þurft að leggja löggjöf fyrir þau til samþykktar og þingin því formlega og oft í reynd get- að haft síðasta orðið um þau efni. Með tilkomu Evrópubandalagsins er hins veg- ar sú staða komin upp að ríkisstjórnirnar hafa fengið beint lagasetningarvald í ráð- herraráði Evrópubandalagsins um þau mál er heyra undir bandalagið, og þeim málaflokkum fer fjölgandi. Þjóðþingin geta aðeins haft takmörkuð áhrif á þessi mál og því eru nú ýmsir málaflokkar í reynd utan valdsviðs þjóðþinganna. Þetta valdaafsal þjóðþinganna hefur ekki nema að takmörkuðu leyti verið bætt upp með því að veita hinum kjörnu fulltrúum, er 70

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.