Réttur


Réttur - 01.04.1989, Blaðsíða 24

Réttur - 01.04.1989, Blaðsíða 24
herra frá hverju aðildarríki Evrópu- bandalagsins en mismunandi fagráðherr- ar sitja fundi ráðsins eftir því hvaða mála- flokkur er til umfjöllunar hverju sinni. Undir ráðherraráðið heyrir mikilvæg stofnun, sem er nefnd fastafulltrúanna. þ.e. sendiherrar aðildarríkjanna hjá Evr- ópubandalaginu. Meginstarf fastafulltrú- anna er fólgið í því að athuga tillögur framkvæmdastjórnarinnar, en allar tillög- ur sem ráðherraráðið fjallar um koma frá framkvæmdastjórninni, áður en ráðherra- ráðið tekur þær til umfjöllunar og af- greiðslu. I þriðja Iagi er um að ræða fram- kvæmdastjórn Evrópubandalagsins (the Commission). í framkvæmdastjórninni eiga sæti 17 menn skipaðir af ríkisstjórn- um aðildarríkjanna. Framkvæmdastjórn- in hefur margþættu hlutverki að gegna, m.a. fylgist hún með framkvæmd á sátt- málum bandalagsins og lögum sem sett hafa verið af bandalaginu, undirbýr stefnumótun fyrir bandalagið og leggur tillögur þar að lútandi fyrir ráðherraráð- ið, kemur oftlega fram sem fulltrúi Evr- ópubandalagsins á alþjóðavettvangi m.a. við gerð viðskiptasamninga, og sinnir þar að auki ýmsum stjórnunarstörfum. í fjórða lagi er að nefna Evrópuþingið (e. the European Parliament). Evrópu- þingið er skipað 518 þingmönnum kjörn- um í hlutfalli við íbúafjölda einstakra að- ildarríkja. Pað er ráðgefandi um löggjaf- armál og fer með hluta fjárstjórnarvalds bandalagsins. Að vísu hefur þingið fengið ákveðna hlutdeild í vissum þáttum lög- gjafarvaldsins með samþykkt hinna svo- kölluðu evrópsku einingarlaga 1986, en sé um samstöðu að ræða innan ráðherra- ráðsins við afgreiðslu mála þá hefur ráðiö ætíð úrslitavaldið. Hvað fjárlög banda- lagsins varðar þá hefur þingið aðeins meiri áhrif á því sviði en um löggjafar- málefnin, t.d. getur þingið hafnað fjár- lögunum í heild, auk þess sem það hefur lokaorðið varðandi afgreiðslu ýmissa út- gjaldaliða sem nú nema um fjórðungi út- gjalda þess. Pessi stutta lýsing á meginvaldastofn- unum Evrópubandalagsins hefur væntan- lega gert mönnum ljóst að það eru ríkis- stjórnir aðildarrfkjanna, í gegnum leið- togaráðið og ráðherraráðið, sem eru aðalvaldaaðilarnir innan Evrópubanda- lagsins. Staðreyndin er sú að á sama tíma sem Evrópubandalagið hefur verið að breytast úr því að vera fyrst og fremst „efnahagsbandalag“ í vísi að alhliða ríkja- bandalagi þá hafa völd ríkisstjórna aðild- arríkjanna farið vaxandi í stjórnun bandalagsins, en hins vegar hefur lítið verið gert til að efla stöðu þeirra stofnana er teljast yfirþjóðlegastar eins og fram- kvæmdastjórnina og Evrópuþingið. Báð- ar þessar síðast nefndu stofnanir eiga undir högg að sækja þegar samskiptin við ríkisstjórnir aðildarríkjanna eru annars vegar og því eðlilegir bandamenn. Báðar stofnanirnar eiga það sammerkt að líta á sig sem „evrópskar“ stofnanir sem hafi fyrst og fremst skyldur viö bandalagið sem heild en ekki „þrönga sérhagsmuni“ einstakra ríkja. Pað er fátt sem bendir til þess að valdahlutföllin milli þeirra stol'n- ana sem eru fulltrúar ríkisstjórnanna inn- an Evrópubandalagsins og þeirra sem eru fulltrúar frekari evrópskar sameiningar muni breytast á næstunni. Þar sem helstu stofnanir Evrópubanda lagsins ber æ oftar á góma í fjölmiðlum og menn eiga orðið aukin samskipti viö bandalagið þá vil ég að síðustu draga fram nokkur atriði sem rétt er að hafa í liuga í því sambandi. 72

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.