Réttur


Réttur - 01.04.1989, Side 29

Réttur - 01.04.1989, Side 29
Á árinu 1986 voru 16 milljónir manna atvinnulausir í lönduin Evrópubandalagsins. hækkun launa á íslandi eða að íslenskt at- vinnulíf muni í vaxandi mæli verða að sjá af best menntaða vinnuaflinu til annarra landa. Til langs tíma ræðst launaþróunin á ís- landi bæði af almennri hagþróun á íslandi og af almennri launaþróun í þessum stækkandi viðskiptaheildum eins og EB. Hvað íslenska hagþróun varðar tel ég lík- ur á að bæði í Evrópu og Asíu muni vaxa fram sterkari og stærri viðskiptaheildir en við þekkjum nú og að þessar aðstæður muni geta haft talsverð áhrif á íslenska þróun. Ég vil þó engu að síður koma með þá íhaldssömu kenningu að í nálægri framtíð — sem fyrr — skipti okkur mestu máli hvernig tii tekst um skipulagningu og rekstur íslenskra fyrirtækja í íslenskum sjávarútvegi og íslenskum iðnaði þegar sainkeppni á sölu-, hráefna- og vinnu- mörkuðum harðnar. Ef illa tekst til mun íslensku vinnuafli varla bjóðast atvinna hjá íslenskum fyrirtækjum en ég hygg að atvinnutækifærum muni engu að síður I jölga og launin hækka. Hvað almenna launaþróun í EB-lönd- um varðar vil ég litlu spá. Þau stéttarfélög opinberra starfsmanna sem ég hef upplýs- ingar frá og starfa innan EB-landa Ijúka upp einum rómi um að starfsemi þeirra sé í vaxandi mæli torvelduð af stjórnvöldum og vinnuveitendum, heildarsamningar oftar brotnir, ítrekað reynt að. ráðast gegn hefðbundnum réttindum launa- manna og stéttarfélaga o.sv.frv. Ég dreg þetta saman og segi: Ekki er augljóst að launakjör í stórum bandalögum muni verða launamönnum á íslendi eftirsókn- arverð í framtíðinni. En ég vil einnig bæta hinu við, að margt bendir til að sá launamunur sem ríkir utan Norðurlanda falli ekki að íslenskri þjóðfélagsgerð. 2. Hver er staða stéttarfélaga og kjarasamninga í stækkandi viðskiptabandalögum eins og EB? Starfsemi stéttarfélaga er með talsvert öðru móti í EB-löndum en við þekkjum. 77

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.