Réttur


Réttur - 01.04.1989, Blaðsíða 30

Réttur - 01.04.1989, Blaðsíða 30
Hlutfallslega lítill hluti vinnuaflsins er virkjaður í starfi stéttarfélaga. Og félögin eru oft bundin við fyrirtæki eða starfs- greinar og samningar á síðustu árum taka oftar en ekki aðeins til tiltekins fyrirtækis eða svæðis. EB hefur á margan hátt ögrað starf- semi stéttarfélaganna í aðildarlöndunum. Evrópusamtök kennara hafa dregið sam- an eftirfarandi atriði um starfshætti EB í þessum efnum. EB hefur reynt: 1 að knýja á um samdrátt í sköttum og útgjöldum aðildarríkja til að brjóta á bak mennta-, félags- og heilbrigðiskrefi í opinberum rekstri og hleypa þar að einkavæðingu og fjárplógsstarfsemi á þeim sem minnst mega sín, 2 að takmarka rétt stéttarfélaga til heild- arkjarasamninga og brjóta þá á bak og færa samningsgerð til einstaklinga og fyrirtækja, 3 að takmarka almenn réttindi stéttarfé- laga og ögra hefðbundnum réttindum stéttarfélaga (dæmisagan af aðferðum Flugleiða er beint úr EB-kokkabókum), 4 að ýta undir breytingar á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur til að tak- marka samningsrétt launamanna og stéttarfélaga þeirra, 5 að tengja saman aðgerðir stjórnvalda í aðildarríkjunum og herfræði vinnuveit- enda í því skyni að draga úr áhrifum stéttarfélaga og launafólks. Ef þessi lýsing er sönn, dreg ég þá ályktun að íslenskum launamönnum sé nóg að glíma á heimavelli við Vinnuveit- endasambandið, fjármálaráðherra og Verslunarráðið. Ég á erfitt með að ímynda mér að sundurleitri hreyfingu launamanna Evrópu takist betur að þjappa sér saman í flóknum fjölþjóðleg- um slagsmálum við fyrirtæki og hagsmun- asamtök þeirra, EB, en hverju stéttarfé- lagi á heimavelli. 3. Munu stéttarfélög í stækkandi viðskiptaheildum fá tilstyrk bandalaga til að byggja upp fjölþjóðleg samtök launafólks? Svarið við þessari spurningu er senni- lega neikvætt. Pegar menn gera sér grein fyrir því að EB er í aðalatriðum bandalag utan um peningalega og viðskiptalega hagsmuni fyrirtækja, verður líka ljóst að ekki er að vænta neins stuðnings frá stofnunum EB við málefni stéttarfélaga og allra síst framlög til að skapa jafnræði milli þeirra og öflugra samtaka fyrir- tækja. 4. Mun vinnuumhverfi launafólks og umhverfisvernd batna? Embættismenn Norðurlandaráðs hafa ítrekað bent á að reglur EB-landa leyfa fyrirtækjum mun meira í þessum efnum er almennt gildir á Norðurlöndum og gott getur talist. í Rómarsáttmálanum eru settir vissir lágmarksstaðlar og einstökum aðildarríkjum leyfist að setja strangari reglur svo fremi sem þær ganga ekki á skjön við meginsjónarmið sáttmálans. En einmitt þessi meginsjónarmið eru t.d. að ekkert aðildarríki megi setja upp skilyrði gagnvart atvinnurekstri sem telja má samkeppnishamlandi. Nú liggur til úr- skurðar hjá EB hvort ströng umhverf- isverndarskilyrði í Danmörku teljast sam- keppnishamlandi fyrir dönsk fyrirtæki í samkeppni við önnur EB-fyrirtæki. Dönsku háskólamannasamtökin, AC, hafa bent BHMR á mikilvægi þess að Norðurlöndin komi sameigjnlega fram í umhverfis- og vinnuverndarmálum gagn- 78

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.