Réttur


Réttur - 01.04.1989, Síða 36

Réttur - 01.04.1989, Síða 36
stafar einfaldlega af því, að innlendir lántakendur (aðallega fyrirtæki) eru stór- um ótryggari greiðendur en traust, erlend fyrirtæki. Við ríkjandi aðstæður á erlend- um fjármagnsmörkuðum er þess því ekki að vænta, að óheftar fjármagnshreyfingar muni leiða til lægri raunvaxta. Þvert á móti.2 Nú virðist ekki um auðugan fjárfesting- argarð að gresja á Islandi. Af því leiðir, að ekki verður unnt að halda hér til lengdar uppi jafnháum eða hærri raun- vöxtum en tíðkast í Evrópu eða Amer- íku. Talsmenn atvinnuveganna hafa fullyrt, að fyrirtæki hér á landi geti ekki greitt slíka vexti. Séu fjármagnshreyfing- ar óheftar, er því tvennt til. Annaðhvort verður að skerða raunlaun hér á landi verulega, t.d. með gengisfellingum, eða verulegt fjármagnssteymi verður úr land- inu. Þegar til lengri tíma er litið, eru efna- hagslegar afleiðingar hvort tveggja svip- aðar. Sé reynt að halda jafnvægi í fjármagns- streymi með kjaraskerðingum, munu Is- lendingar vafalaust flytjast frá landinu í stórum stíl og fæðingatíðni lækka. Efna- hagsþróun síðustu áratuga sýnir glögg- lega, að þessir tveir lykilþættir fólksfjölda- þróunar hér á landi eru næmir fyrir lífs- kjörum. Verði á hinn bóginn verulegt fjármagnssteymi frá landinu, munu fjár- festingar innanlands dragast saman og ís- lensku atvinnulífi mun hnigna. Þá verður ekki unnt að halda uppi þeim lífskjörum, sem þjóðin hefur vanist og bjóðast er- lendis. Al eiðingarnar yrðu svipaðar og áður. Fólkið mun flytja frá landinu. Að því er varðar efnahagslegar af- leiðingar óheftra fjármagnsflutninga, get- um við dregið lærdóm af reynslu land- svæða, sem um margt eru áþekk íslandi að náttúrugæðum. Má þar t.d. nefna 84 Norður-Noreg, Norður-Skotland og aust- urströnd Kanada. Efnahagsleg staða þessara landsvæða innan sinna þjóðlanda er afar veik og ekki svipur hjá sjón, mið- að við það, sem áður var. Fáir íslendingar mundu vilja skipta á sætum við íbúa þess- ara héraða. Vert er að taka það fram, að þessi ' framtíð þarf ekki að þýða það, að íslend- ingar nútímans beri skarðan hlut frá borði, ef tekið verður upp skipulag óheftra fjármagnshreyfinga hér á landi. Sú skipu- lagsbreyting leiðir eflaust til betri ávöxt- unarmöguleika en nú bjóðast og því hags- bótar fyrir eigendur fjármagns, a.m.k. þegar til skamms tíma er litið. Samkvæmt ofansögðu þýðir skipulag óheftra fjár- magnsflutninga á hinn bóginn, að ísland framtíðarinnar verður verulega frabmgð- ið því, sem við þekkjum, og sennilega miklu fámennara og fátækara en flestir Is- lendingar gera ráð fyrir. SKÝRINGAR: 1 l’ess er þó að geta, að slík skipan brýtur alger- lega í bága við meginröksemdirnar fyrir óheftum fjármagnshrevfingum yfirleitt. 2 I Bandaríkjunum eru raunvextir til traustustu fvrirtækjanna nú um 6-7%. Dæmigerð fyrirtæki hér yrðu vafalaust að greiöa 10-12% raunvexti fyrir lánsfé þar. Svipaða sögu má segja um breska peningamarkaðinn. (Flutt á stofnfundi Fræðslusamtaka um Islarid og Evrópubandalagið 7. júní 1989). 1

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.