Réttur - 01.04.1989, Page 39
Frá fiskiþingi.
verður framkvæmd, þegar litið er til nú-
verandi styrkjakerfis í sjávarútvegi
Norðmanna, og reyndar sjávarútvegi
annarra EFTA-þjóða. EFTA-þjóðirnar
hafa sett fram þá skoðun í viðræðum sín-
um við Evrópubandalagið að viðskipti
með sjávarafurðir skuli vera frjáls. Evr-
ópubandalagið hefur svarað því til að það
sé ekki reiðubúið til að breyta sameigin-
legri sjávarútvegsstefnu sinni. Þeir hafa á
þann hátt undirstrikað, að þó þeir séu
reiðubúnir í viðræður við EFTA-löndin,
og reyndar við aðrar þjóðir um aukna
fríverslun með iðnaðarvörur, ætli þeir að
viðhalda þeim tollamúrum sem umlykja
Evrópubandalagið og styrkjakerfinu á
sviði landbúnaðar- og sjávarútvegsmála
og aðskilja umræðuna um þessa mála-
flokka í sérstökum viðræðum. Þetta er sá
raunveruleiki sem við okkur blasir og
jafnframt þær hindranir sem ryðja verður
úr vegi.
Sérstaða íslendinga
Hin sameiginlega sjávarútvegsstefna
Evrópubandalagsins virkar í reynd eins
og hin sameiginlega landbúnaðarstefna
bandalagsins þar sem bandalagið er girt
með tollamúrum til að hindra samkeppni
utan frá og er hún notuð sem tæki til þess
að beina miklum styrkjum til sjávarút-
vegs innan bandalagsins. í umræðunni við
Evrópubandalagið um landbúnaðar- og
sjávarútvegsmál hefur komið fram að
ekki gilda sömu rök og í viðskiptum með
aðrar vörur. Þessi stefnumörkum EB er í
87