Réttur - 01.04.1989, Page 45
„Frelsið“ hjá EB snýst um frelsi í viðskiptum með iðnaðarvörur. EB vill að landbúnaðarvörur og sjávarafurðir
verði undanskildar og um þær samið sérstaklega.
ar sem verða á samskiptum íslensks sjá-
varútvegs og Evrópubandalagsins, við til-
komu innri markaðarins 1992. Ég hef
hins vegar valið þann kostinn, að leggja
megináherslu á sérstöðu íslendinga í
þessum viðræðum við Evrópubandalagið,
þar sem hugmyndafræðin og umræðan
snýst fyrst og fremst um iðnaðarvörur.
Það er rétt að ítreka þessa sérstöðu
okkar, vegna þeirrar umræðu sem fram-
undan er á vettvangi innlendra stjórn-
mála, í þeim tilgangi að menn gleymi ekki
þessu grundvallaratriði í hafsjó frelsisum-
ræðu um allt nema sjávarafurðir.
Fimmta frelsið
Það er sannfæring mín, að ýmsar ná-
grannaþjóðir okkar hafa skilning á sér-
stöðu okkar og gera sér grein fyrir því, að
vilji menn búa hér norður í hafi, verða
menn að geta búið fólkinu viðunandi lífs-
skilyrði. Að þeir geri sér betur og betur
grein fyrir því að til þess að íslendingar
geti verið virkir þátttakendur í auknu
samstarfi Evrópuþjóða duga ekki frelsin
fjögur, heldur verða þau að vera fimm. í
viðbót við frelsi í viðskiptum með vöru og
þjónustu, fjármagnsstreymi og fólksflutn-
inga, verður frelsi með sjávarafurðir að
bætast við.
Ég treysti því að sú mikla vinna, sem
ráðamenn þjóðarinnar hafa lagt í til að
kynna málstað okkar á undanförnum
árum, muni bera árangur og innan ekki of
langs tíma munum við hafa fundið viðun-
andi lausn á samskiptum okkar við Evrópu-
bandalagið á sviði viðskipta með sjávar-
afurðir.
(Ræða, örlítið stytt, flutt
á fiskiþingi 30. okt. 1989).
93