Réttur


Réttur - 01.04.1989, Page 47

Réttur - 01.04.1989, Page 47
• Framsókn hýsir fæsta fylgjend- ur aðildar að EB. Aðeins 27% töldu aðild æskilega, en 29% á móti. Norræna efnahags- áætlunin Það eru ekki bara lönd EB sem búa sig undir innri markaðinn 1992. Bæði innan EFTA og í nor- rænu samstarfi eru þessi mál tek- in upp. Eitt nýjasta dæmið um þetta er norræna efnahagsáætl- unin fyrir árin 1989-1992, sem nýlega var samþykkt af fjármála- ráðherrum Norðurlanda. Þessi áætlun hefur nú öðlast aukið vægi í íslenskri pólitík og efnahagsmál- um, því til hennar er vitnað i sam- þykkt ríkisstjórnarinnar um stefn- una í vaxta- og peningamálum. Þegar gengið var frá kaflanum um fjármagnsmarkað í norrænu efnahagsáætluninni, var settur inn almennur fyrirvari varðandi Island. í áætluninni er gert ráð fyrir að Norðurlöndin muni „að lágmarki gera eftirfarandi fjármagnsvið- skipti frjáls: ■ Kaup á erlendum hlutabréfum, skráðum sem óskráðum, þar með talin skírteini gefin út af verðbréfasjóðum, sem fjárfesta í hlutabréfum. ■ Kaup útlendinga á innlendum hlutabréfum, skráðum og óskráðum, þar með talin skír- teini gefin út af verðbréfa- sjóðum, sem hafa fjárfest í hlutabréfum. ■ Kaup á fasteignum erlendis. ■ Lántökur innlendra fyrirtækja í erlendri mynt til lengri tíma en eins árs. ■ Lánveitingar í innlendri og er- lendri mynt til eins árs eða skemur vegna innflutnings og útflutnings. ■ Lánveitingar gjaldeyrisbanka í erlendri mynt til útlendinga. ■ Heimild fyrirtækja til að eiga innstæður á erlendum bankar- eikningum í takmarkaðan tíma í tengslum við eignamyndun erlendis." Jafnframt þessu er gert ráð fyrir að fyrir 1990 muni metið hvort út- víkka eigi skyldur til aukins frjáls- ræðis á þessu sviði. (Már Guðmundsson, á ráðstefnu AB í febrúar 1989) 95

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.