Fréttablaðið - 05.03.2009, Page 4
4 5. mars 2009 FIMMTUDAGUR
SAMKEPPNISMÁL Hagar skulu greiða
315 milljónir króna í stjórnvalds-
sekt fyrir stórfellda misnotkun á
markaðsráðandi stöðu. Þetta er
niðurstaða áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála sem staðfestir þar
með úrskurð Samkeppniseftirlits-
ins (SE) frá því í desember.
Um er að ræða brot sem fram-
in voru í verðstríði á milli Bón-
uss og annarra lágvöruverðs-
verslana, einkum Krónunnar, á
árunum 2005 til 2006. Verðstríð-
ið hófst þegar Krónan kynnti allt
að fjórðungs verðlækkun á mjólk-
urvörum. Verðstríðið vatt mjög
upp á sig og þegar hæst stóð seldi
Bónus mjólkurvörur á nánast ekki
neitt. Verslanir Bónuss voru vegna
þessa reknar með hundruða millj-
óna tapi.
SE komst að þeirri niðurstöðu að
slík undirverðlagning fyrirtækis í
markaðsráðandi stöðu hafi verið til
þess fallin að hindra samkeppni og
koma þeim skilaboðum til keppi-
nauta á markaði að engum líðist til
frambúðar að bjóða lægra verð en
gengur og gerist hjá Bónus. Áfrýj-
unarnefndin fellst á öll rök SE.
„Þetta eru mikil vonbrigði og við
munum fara með þetta áfram fyrir
dómstóla,“ segir Finnur Árnason,
forstjóri Haga. Verið sé að refsa
Högum fyrir það að selja ódýrt.
„Þessi úrskurður gefur það í skyn
að Samkeppniseftirlitið vinni
markvisst að því að draga úr sam-
keppni,“ segir hann. - sh
Forstjóri Haga segir Samkeppniseftirlitið vinna að því að draga úr samkeppni:
315 milljóna sekt Haga staðfest
VERÐSTRÍÐ Bónus seldi mjólk á sama
og ekki neitt til að laða að viðskiptavini.
Tap varð á rekstrinum vegna þess.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
www.ellingsen.is
TB
W
A\
RE
YK
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
35–50
%
AFSLÁ
TTUR
AF
ÖLLU
M CO
LUMB
IA
FATNA
ÐI
COLUMBIA-
DAGAR
5.–14. mars
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
16°
7°
6°
9°
5°
7°
5°
4°
4°
4°
19°
6°
7°
23°
1°
7°
13°
2°
Á MORGUN
8-13 m/s á Vestfjörðum
annars 3-8 m/s
LAUGARDAGUR
8-13 m/s á Vestfjörðum
annars hæg breytileg átt
ÁGÆTT SYÐRA
Sé horft á veðurhorf-
urnar fram yfi r helgi
eru þær góðar fyrir
sunnanvert landið.
Heildrænt séð verður
þar yfi rleitt bjart veður
en snjókoma eða
él norðanlands og
austan. Það verður að
líkindum ekkert mjög
sólríkt á laugardaginn
en vindurinn verður
hægur og úrkomulítið.
Hann mun hins vegar
blása á Vestfjörðum í
dag og næstu daga.
-3
-4
-5
-4 -4
-2
-2
0
-2
0
-8
6
10
12
9 5
8
8
15
5
6
8
-1
-6
-4
0-3
-5
-2 -3
-4
-5
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
RÚSSLAND Í bréfi frá Barack Obama
Bandaríkjaforseta bauð hann
Rússum að falla frá áformum um
eldflaugavarnir í Póllandi og Tékk-
landi gegn því
að Rússar starfi
með Ba nda-
ríkjamönnum að
því að tryggja
að Íranar komi
sér ekki upp
kjarnorkuvopn-
um.
Natalíja
Timakova,
talsmaður
Dmitrís Medvedevs Rússlands-
forseta, segir að vísu ekkert hæft
í því, að einhver skilyrði hafi
verið sett í bréfinu eða ákveðin
tilboð gerð um samstarf.
Reiknað er með því að
utanríkisráðherrar Bandaríkj-
anna og Rússlands, þau Hillary
Clinton og Sergei Lavrov, muni
ræða þessi mál þegar þau hittast
í Genf á föstudaginn. - gb
Bréf frá Obama til Rússa:
Vill samstarf
gegn Írönum
SKATTAMÁL Þegar illa statt fyrir-
tæki er selt í gegnum svokallað
söluferli hjá bönkum ætti félagið
að greiða full-
an tekjuskatt
af niðurfelldum
skuldum, miðað
við þær fregnir
sem berast úr
bönkunum.
Fyrirtækin
virðast ekki
uppfylla þau
skilyrði sem
víkja þeim ann-
ars frá skatt-
skyldu: þau eru
ekki í nauða-
samningum,
gjaldþroti eða í
greiðsluaðlög-
un. Þetta er mat
Símons Jóns-
sonar, forstöðu-
manns skatta-
sviðs KPMG.
Sem dæmi má
nefna fyrirtæki sem skuldar 500
milljónir. Kaupandinn greiðir 50
milljónir í nýtt hlutafé og tekur
yfir 200 milljónir af skuldunum.
Eftir standa 250 milljónir króna
af skuldum, og eru sagðar niður-
felldar.
Nýir eigendur að fyrrgreindu
fyrirtæki þurfa því að greiða
fimmtán prósenta skatt af 250
milljónum, en tekjuskattshlut-
fall fyrirtækja var í fyrra lækk-
að úr átján prósentum af ríkis-
stjórn Geirs H. Haarde. En væri
hið sama gert við einstaklinga
þyrftu þeir að greiða 37,2 pró-
senta skatt.
Fimmtán prósent af 250 milljón-
um króna gera 45 milljónir, nærri
því jafnmikið og lagt er í nýtt
hlutafé ímyndaða fyrirtækisins.
Spurður hvort þessi niðurfell-
ing skulda sé hagkvæmasta leið-
in fyrir bankann og kaupandann,
segir Símon að það þurfi að meta
í hverju tilfelli. Önnur leið væri
til að mynda niðurfærsla skulda.
Þá eru skuldirnar metnar lægra í
bankanum, en þær má svo hækka
aftur, ef fyrirtækið kemst á beinu
brautina. Á meðan sé skuldarinn
ekki skattskyldur að þessu leyti.
Hins vegar gagnist niðurfelling-
in líklega ekki bönkunum, skatta-
lega séð. Þeir hafi ofgnótt frá-
dráttarmöguleika við núverandi
aðstæður og séu ef til vill þegar
búnir að eyða tekjuskattstofni
sínum.
Skúli Eggert Þórðarson ríkis-
skattstjóri vill ekki úttala sig um
þessi mál að svo stöddu en segir
þó: „Í þessu umróti sem nú er í
íslensku þjóðlífi mun ríkisskatt-
stjóri fylgjast mjög vel með að
allar upphæðir séu gefnar upp til
skatts.“ klemens@frettabladid.is
Gætu borgað álíka í
skatt og í nýtt hlutafé
Þau fyrirtæki sem bankarnir setja í söluferli frekar en nauðasamninga eða gjald-
þrot eiga að greiða fullan tekjuskatt af niðurfellingu skulda sinna, þegar nýir
eigendur hafa tekið við. Ríkisskattstjóri segist fylgjast mjög vel með öllu þessu.
DMITRÍ MEDVEDEV
NIÐURFELLING GÆTI ORÐIÐ DÝR Það gæti komið við pyngjuna að kaupa illa stödd
félög í gegn um bankana. Miðað við upplýsingar sem borist hafa frá bönkum og
skattayfirvöldum þurfa þeir að greiða fimmtán prósent skatt af niðurfelldum skuld-
um.
SÍMON JÓNSSON
SKÚLI EGGERT
ÞÓRÐARSON
SKATTAMÁL Þeir starfsmenn Kaup-
þings sem fengu eina fimmtíu
milljarða króna lánaða til hluta-
bréfakaupa í bankanum þurfa
líklega að gefa upp til tekna á
skattframtali það hagræði sem
þeir nutu af láninu.
Þegar launagreiðandi veit-
ir starfsmanni lán, skal miðað
við fjórtán prósenta vexti og
verðbætur. Séu vextir á láninu
lægri en þetta, skal starfsmað-
urinn telja sér mismuninn til
tekna á skattframtali. Sama á við
um greiðslufresti og afborganir
af kaupum á hlutabréfum eða
öðrum eignum. Af fyrrgreindum
mismuni á þessu öllu skal greiða
tekjuskatt.
Lán starfsmannanna stendur
enn óbreytt í nýja bankanum.
- kóþ
Starfsmenn Kaupþings:
Greiða skatt af
vaxtahagræði
VÍMUEFNI Þeir kannabisneytendur
sem leituðu aðstoðar SÁÁ í síð-
asta mánuði velja fremur gras,
maríúana, oft framleitt innan-
lands, en inn-
flutt kannabis-
efni, svo sem
hass. Þetta má
lesa á vef SÁÁ.
Þar er birt
ný verðkönnun
28 sjúklinga
og kemur fram
að vímuefni
hækki nokk-
uð í verði. Mest hækkar kóka-
ín, úr 11.500 í janúar og í 14.750
og hefur aldrei mælst dýrara.
Grammið af amfetamíni hefur
verið um og yfir 5.000 krón-
ur síðustu fjóra mánuði. Grasið
kostar 3.380 og hækkar um 530
krónur milli mánaða. Hass kost-
ar 2.670 grammið.
Heróín mun hafa kostað 30.000
krónur grammið. - kóþ
Vímuefnamarkaðurinn:
Kannabisfólk
velur íslenskt
EFNAHAGSMÁL Öflug fyrirtæki
sem skapa verðmæti og stuðla að
vexti eru frumforsenda þess að
þjóðin geti haldið áfram að vaxa
og dafna. Þetta kemur fram í rit-
inu Vöxtur og verðmæti - mótum
eigin framtíð sem verður lagt
fram á Iðnþingi Samtaka iðn-
aðarins. Ritið fjallar um efna-
hagsvandann sem þjóðin stendur
frammi fyrir.
Þingið verður haldið á Grand
Hótel Reykjavík og hefst með
aðalfundi SI klukkan 10. Klukk-
an 13 hefst opinn fundur þar sem
Össur Skarphéðinsson og Helgi
Magnússon formaður SI taka til
máls meðal annarra. - sls
Iðnþing Samtaka iðnaðarins:
Öflug fyrirtæki
forsenda vaxtar
KANNABISPLÖNTUR
STJÓRNMÁL Óbreytt uppröðun
verður í þrjú efstu sætin á lista
Vinstri grænna í Norðausturkjör-
dæmi. Talningu í forvali flokks-
ins lauk í gær. Steingrímur J.
Sigfússon, formaður flokksins,
fékk afgerandi kosningu í fyrsta
sætið.
Þuríður Backman hafnaði í
öðru sæti, Björn Valur Gíslason í
þriðja og Bjarkey Gunnarsdóttir
í því fjórða. Alls var kosið í átta
sæti.
Heimildir Fréttablaðsins
herma að nokkur óánægja sé
meðal flokksmanna í kjördæm-
inu með að ekki hafi orðið nein
endurnýjun í þremur efstu sæt-
unum. - bj
Forval í Norðausturkjördæmi:
Þrjú efstu sætin
hjá VG óbreytt
GENGIÐ 04.03.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
176,426
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,14 114,68
160,71 161,49
142,81 143,61
19,164 19,276
15,926 16,02
12,391 12,463
1,1487 1,1555
166,27 167,27
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR