Fréttablaðið - 05.03.2009, Síða 25

Fréttablaðið - 05.03.2009, Síða 25
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 NETVERSLANIR.IS er vefsíða þar sem má finna tengla á fjölda íslenskra netverslana eftir flokkum. Meðal flokka eru fatnaður og skór, barnavörur og leikföng, heimilið og viðburðir og farartæki og samgöngur. „Ég er tiltölulega nýbyrjuð að búa til spangir en ég byrjaði fyrir um þremur mánuðum á þeirri fyrstu,“ segir Lára Björk Curtis, deildar- stjóri hjá Hagkaupum í Holtagörð- um og spangagerðardama. „Þetta byrjaði þannig að mig langaði í skrautlega spöng eins og svo margir eru að gera en fann aldrei neina sem var nákvæmlega eins og ég vildi þannig að ég brá á það ráð að búa hana bara til sjálf. Svo var þetta bara svo skemmti- legt að ég hélt áfram,“ útskýrir Lára og brosir. Spangirnar eru að mestu skreyttar með leðri en stundum bætir Lára tjulli, perl- um og efni við. „Ég hef að mestu gert þetta fyrir sjálfa mig, vini og kunningja, en þar sem margir hafa spurt mig út í spangirnar þá ætla ég að opna heimasíðu með þeim á laruspangir.skipasund.com, en þar verður hægt að skoða spangir og panta,“ segir Lára áhugasöm. Sumar spangirnar eru nánast orðnar eins og hattar þegar þær eru hvað mest skreyttar. „Ég bjó til dæmis til eina með köflóttri blúndu í grunninn, þar sem ég er hálfur Skoti og var á leiðinni á skoskt kvöld og vantaði eitthvað í staðinn fyrir skotapils,“ segir Lára og nefnir að þegar hún búi til spangir fyrir aðra þá reyni hún að útfæra spangirnar eftir óskum hvers og eins. Lára er að eigin sögn gefin fyrir skart og fylgihluti og henta spang- irnar því fullkomlega. „Ég lít á þær eins og skartgripi, jafnvel eins og stórt hálsmen eða eitthvað í þá veru. Ég er forfallinn skartgripa- fíkill,“ segir Lára og viðurkenn- ir að hún sé mikill föndrari í sér. „Ég geri öll kort, skrappa og svona þannig að ég nýt mín í þessu.“ hrefna@frettabladid.is Lítur á spangir sem skart Lára Björk Curtis dó ekki ráðalaus þegar hana langaði í fallega skreytta spöng til að setja punktinn yfir i-ið. Hún einfaldlega bjó hana til og síðan þá hafa margar spangir bæst í safnið. Lára Björk býr til spangir í fjölbreyttum útfærslum en hér er hún með fremur látlausa spöng úr svörtu leðri, tjulli og perlum. „Ég geng yfirleitt í frekar látlausum fötum en skreyti mig svo bara með fylgihlutum,“ segir hún. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Mikil traffík Stór salur VIÐ LEYSUM MÁLIÐ Viltu losna við notaða bílinn fljótt? BÍLAOUTLET NOTAÐIR BÍLARUMBOÐSSALA Bílaoutlet - Korputorgi Opið: mán-fös kl. 11-19, lau kl. 12-16 Við höfum enga heimasíðu og svörum ekki í síma Þú bara mætir á staðinn Hvar á maður eignlega að byrja? Langar þig til þess að breyta mataræðinu til batnaðar en veist ekki hvar þú átt að byrja? Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti D.E.T. leiðir ykkur í allan sannleikann um hversu auðvelt það er í raun að breyta mataræðinu til batnaðar. Farið verður með einföldum hætti yfir: • Hvernig við getum náð stjórn á blóðsykrinum • Hvernig verðum við okkur úti um rétt næringarefni • Hvernig við getum öðlast meiri orku, vellíðan & heilbrigði Þriðjudaginn 10. mars eða 31. mars kl: 20-22 í Heilsuhúsinu Lágmúla. Þriðjudaginn 17.mars kl:20-22 í Heilsuhúsinu á Selfossi. Upplýsingar og skráning í síma: 899 5020 eða á eig@heima.is Verð pr. mann: 3.500 kr. Hentugt, Hagkvæmt, Hollt og Gott! Auður Ingibjörg Konráðsdóttir heilsukokkur með meiru heldur matreiðslunámskeið í Heilsuhúsinu. Auður mun sýna fram á hversu einfalt, fljótlegt og budduvænt það er að útbúa gómsæta rétti úr heilsusamlegu hráefni. Fimmtudaginn 18. mars kl: 19:30 - 22:00 í Heilsuhúsinu í Lágmúla. Upplýsingar og skráning í síma 865 5576 eða á heilsukokkur@gmail.com. Verð pr mann: 5.200 kr. Innifalið er uppskriftamappa og sitthvað gott að smakka fyrir alla. Meirapróf Næsta námskeið byrjar 11. mars 2009 Upplýsingar og innritun í síma 5670300

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.