Fréttablaðið - 05.03.2009, Blaðsíða 28
5. mars 2009 FIMMTUDAGUR4
Forstof-
ur urðu
fyrst áber-
andi í húsum á
Viktoríutímanum.
Hatta- og regn-
hlífastandar urðu
þar með stöðluð
húsgögn. Í for-
stofum var einnig
töluvert lagt í val
á húsgögnum til
að ganga í augun
á gestum.
wikipedia.com
Nytjamarkaður Samhjálpar verð-
ur sífellt vinsælli segir Vilhjálm-
ur Svan Jóhannsson, sem sér um
Nytjamarkaðinn meðal annarra
starfa hjá Samhjálp. „Það er tölu-
verð umferð hjá okkur á markaðn-
um og hún hefur aukist dag frá
degi. Við höfum ekkert auglýst en
orðið spyrst út og þetta fréttist.“
Vilhjálmur segir mest vera af
áhöldum og tækjum fyrir heimil-
ið á markaðnum. „Við erum mikið
með vörur frá sjöunda áratugn-
um núna til sölu en við fengum
gamlan lager og gjafir frá versl-
un Þorsteins Bergmann í töluverðu
magni. Við erum líka með mikið af
leirtaui og handverkfærum en auk
þess eru gamlir og notaðir hlutir
til sölu á markaðnum.“
Vilhjálmur segist taka eftir mik-
illi aukningu á gjöfum til mark-
aðarins og er mjög þakklátur því
fólki sem hefur lagt Samhjálp lið.
Hann segir enn fremur gott vöru-
úrval og spennandi verð vera lyk-
ilinn að því að markaðurinn hafi
gengið svona vel.
Samhjálp opnaði Nytjamarkað-
inn til að létta undir með rekstri
kaffistofu Samhjálpar, sem gefur
bágstöddum frítt að borða. „Það
vantar alltaf pening í reksturinn
þrátt fyrir örlæti birgja. Við fáum
gjafir og góðan afslátt af þeirri
vöru sem við fáum til reksturs
kaffistofunnar og við finnum fyrir
auknum stuðningi við kaffistofuna
frá fólki, enda koma fleiri til okkar
nú en nokkru sinni fyrr og því
fleiri að tala um starfið okkar.“
Nytjamarkaður Samhjálpar
er til húsa í kjallara höfuðstöðva
Samhjálpar að Stangarhyl 3 og er
gengið inn að austanverðu. Mark-
aðurinn er opinn þriðjudaga til
laugardaga frá klukkan 13 til 18 og
tekið er á móti gjöfum alla daga
nema sunnudaga frá klukkan 9 til
18. Samhjálp sækir líka gjafir til
fólks sem á ekki hægt um vik að
komast með hlutina sjálft. - rlf
Gamalt og nýtt í bland
Heimilistæki og -áhöld eru í meirihluta þess sem er í boði á Nytjamarkaði Samhjálpar, þar sem hægt er
að fá nýja hluti í bland við gamla. Að sögn rekstraraðila markaðarins nýtur hann sívaxandi vinsælda.
Vilhjálmur segir gjöfum hafa fjölgað mikið til markaðarins og er mjög þakklátur því
fólki sem hefur lagt Samhjálp lið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DAGSBIRTAN er hressandi og um að gera að
hleypa henni inn þegar hún er í boði. Nú þegar daginn
er farið að lengja er jafnvel möguleiki á smá birtu að
vinnudegi loknum og um að gera að nýta það.
VANDAÐAR DANSKAR
BÓKAHILLUR
VIÐARTEGUNDIR
LJÓS - EIK. HLYNUR.
COFFEE OG KISUBERJA
HÚSGAGNAVERSLUN V/HALLARMÚLA - 108 REYKJAVÍK
SÍMI 553 8177 & 553 1400 heimilispriði.is hallarmuli@islandia.is
OG KIR J
Skráðu þig inn – drífðu þig út
www.fi .is
Ferðafélag Íslands
Ísland er landið – njótum og upplifum
Æfi ng í Esjunni
Fimmtudagur kl. 18
Fararstjóri: Ólafur Örn Haraldsson
Þátttaka ókeypis – allir velkomnir
Takið með ykkur góðan útbúnað.
bfo.is
Bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar ehf
SMIÐJUVEGI 22 (GRÆN GATA) · 200 KÓPAVOGI · SÍMI: 567 7360
bfo@bfo.is
BGS VOTTUÐ ÞJÓNU
STA
BGS
VOTTUÐ ÞJÓNUSTA
Þjónustuverkstæði fyrir
eftirtaldar bifreiðar
reynsla – þekking – góð þjónusta
!""# $%
&!''(%#)*+
,
-. /00-#0*
,
-.