Fréttablaðið - 05.03.2009, Page 46
30 5. mars 2009 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Kl. 12.00
Diddú heldur einsöngstón-
leika í Hafnarborg í dag. Á
efnisskránni eru aríur eftir
Bellini, Donnesetti og Dvor-
ak. Undirleik annast Ant-
onía Havesi.
> Ekki missa af …
Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór
Gunnarsson halda tónleika í
Borgarneskirkju í kvöld kl. 20. Á
efnisskrá eru ýmis þekkt lög af
ferli Ellenar í bland við þjóðlög,
sálma og nýtt efni af væntan-
legum diski sem Ellen vinnur
að þessa dagana.
Íslenskur symbólismi er yfirskrift
fyrirlestra, umræðna og ljóða-
lesturs sem skáldið og sýningar-
stjórinn Sjón mun standa fyrir
í Hafnarhúsinu í tengslum
við sýninguna Skuggadrengur
- Alfreð Flóki í kvöld kl. 20. Tveir
framsögumenn flytja erindi, þeir
Benedikt Hjartarson og Guðni
Elísson, og einnig verður lesið
úr ljóðum og textum Sigfúsar
Blöndal, Huldu, Sigurðar Nordal,
Jóhanns Gunnars Sigurðssonar,
Davíðs Þorvaldssonar og fleiri. Hálfri klukku-
stund fyrir dagskrána, kl. 19.30, mun Sirra
Sigurðardóttir, verkefnastjóri fræðsludeildar, vera
með leiðsögn um sýningu Alfreðs Flóka.
Benedikt kallar erindi sitt „Unaðssemdir menn-
ingar á fallanda fæti: Alfreð Flóki og fagurfræði
dekadensins.“ Hann segir fáa íslenska listamenn
hafa unnið jafn markvisst með hugmyndalegan
og fagurfræðilegan arf þeirra
strauma sem koma fram í evr-
ópskri menningu um aldamótin
1900 og Alfreð Flóki og skyggn-
ist inn í táknheim listamannsins
og uppsprettur hans í sjónrænni
menningu og bókmenntum
evrópsks symbólisma og dekad-
ens kannaðar. Sjónum verður
beint sérstaklega að slagorðinu
„hnignun“ eða „dekadens“ sem
kemur upphaflega fram sem
níðyrði um nýjungar í bók-
menntum og listum um miðja 19. öld.
Guðni Elísson segir frá fulltrúum þeirrar hreyfing-
ar sem kennd er við aldarlokin í Evrópu (fin de
siècle) sem koma fram á sjónarsviðið á Íslandi
á öðrum áratugi aldarinnar. Þetta er lokaskeið
íslenskrar nýrómantíkur og er þróuninni frá
appollonískri viljahyggju umbótaskáldanna til
díónýsíkrar nautnahyggju nú lokið. - pbb
Flækjur symbólismans greiddar
Alli Nalli er kominn á svið. Sögur
Vilborgar Dagbjartsdóttur af
drengnum komu fyrst út árið 1959.
Það var fyrsta barnabókin sem Vil-
borg Dagbjartsdóttir skrifaði og
jafnframt fyrsta bókin sem kom út
eftir hana. Það er því fimmtíu ára
afmæli hennar sem höfundar sem
hleypir leiksýningunni af stað en
Möguleikhúsið frumsýnir á sunnu-
dag verk sem byggist á sögunum
þremur um Alla Nalla. Frumsýn-
ingin er á sunnudag kl. 14 í Gerðu-
bergi.
Pössunarpíurnar Ólína og Lína
eru mættar til að stytta ykkur
stundir næstu þrjá stundarfjórð-
ungana. Þær vita fátt betra en að
vera með börnum, fara með þeim
í leiki og gera annað skemmti-
legt. Þær hafa líka ýmsar sögur
að segja af honum Alla Nalla,
sem var fyrsti krakkinn sem þær
pössuðu. Þótt Alli Nalli væri oftast
góður og þægur átti hann stund-
um til að vera pínulítið óþekkur
eins og aðrir krakkar. Eins og til
dæmis þegar hann harðneitaði að
borða grautinn sinn á kvöldin. Þá
gaf mamma hans tunglinu graut-
inn og tunglið stækkaði og stækk-
aði …
Bókinni um Alla Nalla og tungl-
ið fylgdu barnabækurnar Sögur
af Alla Nalla og Labbi pabbakút-
ur, en það eru einkum þessar þrjár
sem leiksýningin byggist á. Í ann-
arri útgáfu fyrstu bókanna tveggja
voru þær myndlýstar að nýju af
Gylfa Gíslasyni myndlistarmanni.
Vilborg hafði þá um langt árabil
haldið úti barnasíðu í Þjóðviljan-
um en sögurnar af litlu strákun-
um hennar eru sérstakur kapituli
í höfundarverki hennar.
Frumsýningin markar einnig
upphafið á samstarfi Menning-
armiðstöðvarinnar Gerðubergs
og Möguleikhússins en leikhúsið
missti húsnæði sitt í fyrra.
Sýningin er ætluð áhorfend-
um á aldrinum 1 til 8 ára og tekur
45 mínútur í flutningi. Leikstjóri
er Pétur Eggerz, tónlist er eftir
Kristján Guðjónsson en leikmynd
og búningar eftir Messíönu Tóm-
asdóttur. Leikarar eru Alda Arn-
ardóttir og Anna Brynja Baldurs-
dóttir. pbb@frettabladid.is
Alli Nalli og tunglið
Í dag verða nýjar sýningar opnað-
ar í galleríinu Start Art á Lauga-
vegi. Þar eru á ferðinni Arnar
Herbertsson í Forsal, Guðrún
Öyahals á Loftinu, Björk Vigg-
ósdóttir í Austursal niðri og þær
Anna Eyjólfsdóttir, Ragnhildur
Stefánsdóttir og Þuríður Sigurð-
ardóttir í Austur- og Vestursal
uppi.
Mestum tíðindum sætir sýn-
ing á nýjum verkum Arnars
Herbertssonar en hann hóf feril
sinn á sjöunda áratugnum í skjóli
SUM.
Arnar fæddist á Siglufirði árið
1933 og stundaði nám í Mynd-
listaskólanum í Reykjavík frá
1959-1967.
Myndir Arnars hafa þróast til
nokkuð sérstæðs myndheims.
Í þeim er oft að finna sálræn-
an þankagang, þar sem mynd-
ir eru innan og utan við tíma
og rúm og notkun tákna er ríkj-
andi. Súrrealískur myndheimur
og andrúmsloft tímaleysis ein-
kennir verk Arnars sem hefur
haldið fáar einkasýningar á ferl-
inum en tekið þátt í þeim mun
fleiri samsýningum hérlendis og
erlendis. Aðalsteinn Ingólfsson
skrifar inngang að sýningu Arn-
ars og segir þar meðal annars: „Í
heimi myndlistarlegrar ofgnótt-
ar er sem betur fer enn hægt að
finna verk sem eru svo sérstök
– eða hreint og beint sérvisku-
leg – að þau koma manni fyrir
sjónir eins og sendingar frá ann-
arri plánetu. Í þeim flokki eru
tvímælalaust verk Arnars Her-
bertssonar, sem illu heilli verð-
ur að teljast einn af huldumönn-
um íslenskrar nútímamyndlistar.
Ekki svo að áhorfandinn velkist
í vafa um meginþætti þessara
verka, sjálfa tæknilegu hliðina
eða grunneiningar þeirra. Hér er
um að ræða nostursamlega mál-
aðar olíumyndir á panel, þar sem
myndmálið dregur dám af ýmsu
því sem við könnumst við, til að
mynda úr strangflatamálverki
sjötta og sjöunda áratugarins og
úr draumaveröld symbólista og
súrrealista, kannski líka úr vél-
tæknilegum fantasíum Eduardos
Paolozzi.
Nýting Arnars á þessari arf-
leifð – eða efniviði – er hins
vegar fordæmalaus; minnir helst
á aðferðir sundurgreinandi (ana-
lýtískra) kúbista. Í verkum hans
sem byggjast upp á samspili ein-
tóna flata eru allir möguleikar
uppi á borðinu og nýttir til hins
ítrasta: hefðbundin árétting tví-
víðra flata, umritun flatanna í
þrívídd, svif þeirra um ómælis-
víddir eða skipan þeirra í óhagg-
anleg mynstur sem minna um
margt á mynsturmálverk áttunda
áratugarins.“
pbb@frettabladid.is
Arnar sýnir í Start Art
LEIKLIST Anna Brynja Baldursdóttir og
Alda Arnardóttir í Alla Nalla og tunglinu.
MYNDLIST Eitt verka Arnars á sýningunni
í Start Art.
Hart í bak
Þrettándakvöld
Skoppa og Skrítla í söng-leik
Eterinn
Kardemommubærinn
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is