Fréttablaðið - 19.03.2009, Side 6
6 19. mars 2009 FIMMTUDAGUR
EFTIRLAUNASJÓÐUR
SLÁTURFÉLAGS SUÐURLANDS
Boðað er til ársfundar Eftirlaunasjóðs
Sláturfélags Suðurlands.
Fundurinn verður haldinn að Fosshálsi 1,
3. hæð, fi mmtudaginn 2. apríl
n.k. kl. 17:00.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Kynning ársreiknings, tryggingafræðilegrar úttektar
og fjárfestingastefnu.
3. Önnur mál.
Stjórnin
SJÁVARÚTVEGSMÁL Íslendingar
verða að fá rannsóknarkvóta á
makríl og rannsaka hversu mikið
sé af honum í þeirra lögsögu áður
en þeir hefja hefðbundnar markíl-
veiðar, segir Audun Maràk, fram-
kvæmdastjóri Sambands norskra
útvegsmanna, í samtali við Frétta-
blaðið.
Hann er afar ósáttur við það að
Íslendingar hafi ákveðið einhliða
að hefja veiðar á 112 þúsund tonn-
um af makríl. Þar af verða 20 þús-
und tonn veidd á alþjóðlegu haf-
svæði utan lögsögu ríkja.
Hann segir slíkt mikla ögrun við
Rússa sem þeir hljóti að bregðast
við, en hefð er fyrir því að rússn-
esk skip veiði makríl á þessu
alþjóðlega svæði.
Hann ætlar að mælast til þess
að norsk stjórnvöld banni innflutn-
ing á lýsi og mjöli úr makríl frá
Íslandi líkt og hann gerði á síðasta
ári. Yfirvöld urðu ekki við þeim
tilmælum þá en hann er bjartsýnn
á að á því verði breyting nú.
„Við Norðmenn höfum þurft
að lúta ströngu aðhaldi í þessum
efnum í 30 ár,“ segir hann. „Heim-
ildir okkar í ár eru um 180 þúsund
tonn en ef við viðhefðum vinnu-
brögð Íslendinga myndum við
veiða milljón tonn.“
Norðmenn, Færeyingar og Evr-
ópusambandið sjá um stjórnun á
veiðum úr makrílstofninum en
Íslendingar hafa ekki fengið að
koma að henni. „Á fundi okkar í
Lundúnum [þar sem rætt var um
stjórn makrílveiða] í haust komum
við þeim skilaboðum til áheyrnar-
fulltrúa Íslendinga að við værum
verulega ósáttir við framferði
þeirra,“ segir Maràk. „Við vorum
því afar óhressir þegar við sáum
að Íslendingar höfðu ekki skilið
þau skilaboð.“
Hann segir
Íslendinga hafa
ve r i ð mj ö g
ósamvinnuþýða
í gegnum tíðna.
„Þeir hafa verið
afar hrokafull-
ir; þegar þeir
fyrst lentu í
útistöðum við
önnur yfirvöld,
á níunda ára-
tugnum, var framferði þeirra með
ólíkindum. Viðkvæðið hefur í raun
oftast verið að ef þeir fái ekki sínu
framgengt þá slíti þeir allri sam-
vinnu. Og það er satt best að segja
ótrúlegt hvað þeir hafa náð góðum
samningum þegar samið hefur
verið við þá. Ég man til dæmis
þegar búið var að semja um norsk-
íslensku síldina um miðjan síðasta
áratug þá kom einn fulltrúi Íslend-
inga að máli við mig og sagði „ef
ég væri Norðmaður hefði ég aldrei
sætt mig við þetta samkomulag.“
En nú tel ég að norsk yfirvöld séu
farin að skilja að slík undanláts-
semi gagnvart Íslendingum geng-
ur ekki lengur.“
Ekki náðist í Steingrím J. Sig-
fússon, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra.
jse@frettabladid.is
Segir makrílveiðar
vera ögrun við Rússa
Framkvæmdastjóri Sambands norskra útgerðarmanna er afar ósáttur við fyrir-
hugaðar makrílveiðar Íslendinga. Hann hefur mælist til þess að Norðmenn kaupi
hvorki mjöl né lýsi frá Íslendingum. Hann segir veiðarnar ögrun við Rússa.
AUDUN MARÀK
FRÁ VEIÐUM Sátt ætlar ekki að nást um makrílveiðar Íslendinga sem ögra norskum
útgerðarmönnum.
SJÁVARÚTVEGSMÁL „Konungssátt-
málinn frá því 1262 er löngu
genginn úr gildi svo Audun hefur
ekkert um þetta að segja,“ segir
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, um gagnrýni
Auduns Maràk, framkvæmda-
stjóra Sambands norskra útgerð-
armanna, á makrílveiðar Íslend-
inga.
„Ísland hefur fullveldisrétt
í efnahagslögsögunni og hefur
því fulla heimild til að stjórna
veiðum á fiskistofnum hérna.
Það sem við viljum er að koma að
fiskveiðistjórninni með þeim en
meðan við fáum það ekki úthlut-
um við okkur einhliða eins og
Norðmenn gera reyndar líka því
þeir úthluta sér viðbót við það
sem þeim er úthlutað í samkomu-
laginu við Færeyinga og Evrópu-
sambandið.“ - jse
Friðrik J. Arngrímsson:
Viljum komast
að stjórnuninni
DÓMSTÓLAR Ung kona hefur verið
dæmd í þriggja mánaða fangelsi
fyrir stórþjófnaði og fíkniefna-
brot. Þá var hún dæmd til að greiða
tryggingafélagi 1,4 milljónir
króna.
Konan braust í febrúar inn í íbúð
manns og bar þaðan út yfir í eigin
íbúð í sama fjölbýlishúsi, skart-
gripi, hárblásara, sléttujárn, gler-
augu, hárkollu, íþróttadót, snyrti-
vörur, fjögur glös af ilmvötnum,
sjö kjóla og annan kvenfatnað, tólf
pör af skóm; yfirfatnað og skíða-
fatnað. Einnig heimabíókerfi af
tegundinni LG, heimasíma, far-
tölvu, GSM-farsíma, 32 tommu
plasmasjónvarpstæki, antíksverð,
veski með öllum skilríkjum, 10
þúsund krónum í reiðufé og inn-
eignarnótu frá GP-húsgögnum. Þá
tók hún iPod-spilara, spegil, tvær
sængur og fjóra kodda og stafræna
myndavél. Enn fremur karlmanns-
fatnað, jakkaföt, útiföt, spariskó og
þrjú pör af skóm, tvö glös af rak-
spíra og rakvél. Hún sló eign sinni
á allt góssið,
Auk þessa fann lögregla heima
hjá konunni tölvu og höggborvél
sem hún mátti vita að væru stolin.
Þá var konan dæmd fyrir tvö fíkni-
efnabrot og skemmdarverk á úti-
dyrum fjölbýlishúss.
Konan á nokkurn sakaferil að
baki, þar á meðal dóm fyrir hús-
brot, frelsissviptingu, rán og fíkni-
efnabrot. - jss
Ung kona dæmd í þriggja mánaða fangelsi fyrir stórþjófnað og fíkniefnabrot:
Hreinsaði út úr íbúð nágranna
HÁRKOLLA Meðal munanna sem konan
tók úr íbúð nágrannans var hárkolla.
DÓMSMÁL Orkuveita Reykjavíkur
á að borga Hafnarfjarðarbæ 7,6
milljarða króna í samræmi við
samning um kaup á 15 prósenta
hlut bæjarins í Hitaveitu Suður-
nesja. Þetta er niðurstaða Héraðs-
dóms Reykjavíkur.
Fulltrúar OR og Hafnarfjarð-
ar skrifuðu í júlí 2007 undir vilja-
yfirlýsingu um að OR myndi
kaupa allan hlut bæjarins í Hita-
veitu Suður nesja. Gengið skyldi
frá kaupunum innan sex mánaða
samkvæmt ákvörðun bæjarstjórn-
arinnar. Kaupverð fyrir um 15 pró-
senta hlut átti að vera 7,6 milljarð-
ar króna.
Í mars 2008 sagðist OR telja að
samningurinn væri í andstöðu við
samkeppnislög og því yrði ekki af
kaupunum. Héraðsdómur hafnar
þessari túlkun sem og öðrum hjá
lögmanni OR í málinu, sem reyndar
var sjálfur forstjóri fyr- ir-
tækisins, Hjörleifur
Kvaran.
Héraðsdómur bend-
ir á að OR hafi ekki
fyrr en seint og um
síðir ýjað að
því að samn-
ingurinn um
kaupin væri
ógildur:
„Stefnandi
[Hafnar-
fjarðarbær] mátti því treysta því að
full alvara væri hjá stefnda [OR) að
efna samninginn.“ Auk kaupverðs-
ins á OR að greiða dráttarvexti
sem nú nema ríflega hálfum öðrum
milljarði króna.
„Þetta er það sem við
áttum alla tíð von á,
enda tekur dómurinn
alfarið undir okkar
málflutning,“ segir
Lúðvík Geirsson, bæj-
arstjóri í Hafnar-
firði. Hjörleifur
Kvaran hefur
sagt að OR
muni áfrýja
dómnum. - gar
Orkuveitan greiði Hafnarfjarðarbæ 7,6 milljarða fyrir hlut í Hitaveitu Suðurnesja:
Hafnfirðingar voru í góðri trú
LÚÐVÍK
GEIRSSON
HJÖRLEIFUR
KVARAN
CALGARY, AP George W. Bush,
fyrrum Bandaríkjaforseti, ósk-
aði Barack Obama velfarnaðar, í
fyrstu opinberu
ræðu sinni frá
því hann lét af
forsetaembætti,
í Calgary í Kan-
ada í gær.
„Obama fær
enga gagnrýni
frá mér, ég
elska land
mitt meira en
pólitík,“ sagði Bush. Hann lýsti
því einnig yfir að hann hygðist
skrifa bók um tólf erfiðustu
ákvarðanirnar sem hann þurfti að
taka á forsetastóli. „Ég vil að fólk
geti gert sér í hugarlund hvernig
það er að sitja á forsetaskrifstof-
unni og þurfa að taka allar þessar
ákvarðanir,“ segir Bush. - alþ
Fyrsta ræða óbreytts Bush:
Mun ekki gagn-
rýna Obama
GEORGE W. BUSH
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur karl-
maður hefur verið ákærður af
ríkissaksóknara fyrir líkamsárás
og rán.
Honum er gefið að sök að hafa
í október á síðasta ári ráðist á
mann, slegið hann nokkrum sinn-
um í andlitið þannig að hann féll
í jörðina og tekið af honum seðla-
veski, sem í voru 100 þúsund
krónur, og farsíma. Þjófurinn
gerði þetta í félagi við annan
mann sem komst undan. Fórnar-
lambið hlaut mikla áverka við
árásina. Hann krefst þess að
árásarmaðurinn verði dæmdur til
greiðslu miskabóta og fjártjóns
upp á 2,1 milljón króna. - jss
Ríkissaksóknari ákærir:
Réðst á mann
og rændi hann
Fylgist þú með fréttum af níð-
ingnum Josef Fritzl í Austurríki?
Já 61%
Nei 39%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er rétt að banna kaup á vændi?
Segðu skoðun þína á Vísir.is.
KJÖRKASSINN