Fréttablaðið - 19.03.2009, Blaðsíða 54
38 19. mars 2009 FIMMTUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
16
16
L
16
L
12
L
L
MARLEY AND ME kl. 5.50 - 8 - 10.10
ÆVINTÝRI DESPERAUX kl. 5.50
VILTU VINNA MILLJARÐ kl. 8
FROST/NIXON kl. 10.10
L
L
12
14
WATCHMEN D kl. 5 - 8 - 10.30
WATCHMEN LÚXUS D kl. 5 - 8
MARLEY AND ME kl. 5.30 - 10.30
THE INTERNATIONAL kl. 8 - 10.30
ÆVINTÝRI DESPERAUX kl. 3.40
VILTU VINNA MILLJARÐ kl. 5.30 - 8
THE PINK PANTHER 2 kl. 4 - 6
SKÓGARSTRÍÐ 2 kl. 3.45
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
L
L
L
12
14
14
L
LAST CHANCE HARVEY kl. 5.50 - 8 - 10.10
MARLEY AND ME kl. 5.30 - 8 - 10.30
ÆVINTÝRI DESPERAUX kl. 6
MILK kl. 8
THE WRESTLER kl. 10.30
THE READER kl. 8 - 10.20
VICKY CRISTINA BARCELONA kl. 5.50
5%
SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000
16
12
L
L
THE INTERNATIONAL kl. 5.30 - 8 - 10.30
HE´S JUST NOT THAT INTO YOU kl. 6 - 9
THE PINK PANTHER 2 kl. 6 - 8 - 10
FANBOYS kl. 5.50 - 8 - 10.10
600kr.
fyrir börn
750kr.
fyrir fullorðna
MYNDIN ER BYGGÐ Á SÖGU SEM TIMES HEFUR M.A. VALIÐ SEM
EINA AF BESTU ENSKU SKÁLDSÖGUM SÍÐUSTU ALDAR
ALLT SEM HÚN ÞRÁÐI VAR BARA SMÁ YFIRDRÁTTUR
BYGGT Á METSÖLUBÓKINNI
★★★★
S.V Mbl.
★★★★
empire
STÆRSTA OPNUN Í USA Á ÞESSU ÁRI!
FRÁ LEIKSTJÓRA 300 KEMUR FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS 2009!
MYNDIN ER BYGGÐ Á SÖGU SEM TIMES HEFUR M.A. VALIÐ
SEM EINA AF BESTU ENSKU SKÁLDSÖGUM SÍÐUSTU ALDAR.
Óskarsverðlaunaleikararnir
Penélope Cruz og Ben
Kingsley fara á kostum
ásamt Dennis Hopper
og Patricia Clarkson í
þessari mögnuðu mynd
frá spænska leikstjóranum
Isabel Coixet.
WATCHMEN kl. 5D - 8D - 10:30D 16
WATCHMEN kl. 5 - 8 VIP
ELEGY kl. 5:50 - 8 - 10:10 12
GRAN TORINO kl. 8 12
SHOPAHOLIC kl. 5:50 - 8 L
DESPEREAUX m/ísl. tali kl. 5:50 L
FRIDAY THE 13TH kl. 10:10 16
CHIHUAHUA m/ísl. tali kl. 5:50 L
BENJAMIN BUTTON kl. 8:30 7
WATCHMEN kl. 6D - 9D 16
GRAN TORINO kl. 5:30D - 8D - 10:30D 12
SHOPAHOLIC kl. 6 - 8:10 L
DEFIANCE kl. 10:20 16
WATCHMEN kl. 8 16
MARLEY AND ME kl. 8 L
GRAN TORINO kl. 10:20 12
WATCHMEN kl. 8 16
GRAN TORINO kl. 8 12
BENJAMIN BUTTON kl. 8:30 örfáar sýningar 7
HE´S JUST NOT THAT INTO YOU kl. 8 12
DEFIANCE kl. 10:30 16
- bara lúxus
Sími: 553 2075
WATCHMEN - POWER kl. 7 og 10 16
ÆVINTÝRI DESPEREAUX kl. 6 - Ísl.tal L
HE’S JUST NOT THAT INTO YOU kl. 8 og 10.30 12
VILLTU VINNA MILLJARÐ kl. 5.45, 8 og 10.15 12
★★★★★
- S.V., MBL
★★★★★
- L.I.L., Topp5.is/FBL
★★★
- S.V. MBL
POWERSÝNING
KL. 10
Á STÆRSTA TJALDI
LANDSINS MEÐ DIGITAL
MYND OG HLJÓÐI
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 19. mars 2009
➜ Opnanir
17.00 Opnaðar verða tvær sýningar
með verkum eftir Elínu Hansdóttur og
Jeannette Castioni í Listasafni Reykja-
víkur við Tryggvagötu. Safnið er opið til
kl. 22 á fimmtudögum.
➜ Hönnun og tíska
17.00 Norræni tískutvíæringurinn
opnar í Norræna húsinu við Sturlugötu.
Tíska og skartgripahönnun frá Færeyj-
um, Grænlandi og Íslandi. Nánari upp-
lýsingar og dagskrá á www.nordice.is.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Margrét Rósa Jochumsdóttir
þróunarfræðingur flytur erindið „Þróun
í þágu kvenna – allra hagur: Saga og
starfsemi landsnefndar UNIFEM á Íslandi
í tuttugu ár“ í stofu 104 á Háskólatorgi
við Sæmundargötu 4.
20.00 Rannsóknarkvöld hjá Félagi
íslenskra fræða í húsi Sögufélags við
Fischerssund. Aðalheiður Guðmunds-
dóttir flytur erindið „Góðæri og kreppa
hjá Völsungum og Gjúkungum“. Allir
velkomnir.
➜ Málþing
20.00 Frambjóðendurnir Bjarni Harð-
arson, Lúðvík Geirsson, Valgeir Skag-
fjörð, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
Höskuldur Þórhallsson og Ögmundur
Jónasson verða á málþingi í Strand-
bergi, Safnaðarheimili Hafnarfjarðar-
kirkju við Strandgötu. Umræðum stjórna
Ævar Kjartanson ásamt prestum kirkj-
unnar, Sr. Kjartan Jónsson og Gunnþór
Þ. Ingason. Allir velkomnir.
➜ Pub Quiz
20.00 Pub Quiz verður haldið á Dillon
Sportbar við Trönuhraun 10 í Hafnarfirði.
➜ Tónlist
18.00 Nemendur í Tónlistarskólanum
á Akureyri við Hvannavelli 14, halda
tónleika. Allir velkomnir og aðgangur
ókeypis.
20.00 Pontiak Pilatus spila á Fimmtu-
dagsforleik í kjallara Hins Hússins við
Pósthússtræti 3-5 (gengið inn Austur-
strætismegin. Allir allsgáðir 16 ára og
eldri velkomnir. Aðgangur ókeypis.
20.00 Félagar í Kór Bústaðakirkju
verða með einsöngstónleika þar sem
á efnisskránni verða aríur og dúettar
úr þekktum óratoríum. Aðgangur er
ókeypis.
21.00 Jazzklúbburinn Múlinn stendur
fyrir tónleikum í kjallara Cafe Cultura
við Hverfisgötu. Fram koma Tríó Sunnu
Gunnlaugs og Kvartett Leifs Gunnars-
sonar.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Ritstjóri Verzlóblaðsins var
skammaður af skólastjóra
skólans fyrir myndatexta
sem birtist í blaðinu. Hefði
aldrei átt að birtast, segir
ritstjóri blaðsins.
„Það eru atriði í blaðinu sem ekki
samræmast okkar reglum og það
hefur verið tekið á því,“ segir Ingi
Ólafsson, skólastjóri Verzlunar-
skóla Íslands. Nýtt Verzlóblað leit
dagsins ljós fyrir nokkru og er
venju samkvæmt ákaflega íburðar-
mikið og glæsilegt. Hins vegar hafa
margir hnotið um myndatexta og
myndaþátt sem er að finna í blað-
inu. Myndatextinn er með þeim
hætti að borgaralegt blað á borð við
Fréttablaðið getur ekki haft slíkt
eftir og myndaþátturinn þykir ýta
undir kvenfyrirlitningu. Ingi segir
að ekki hafi verið gripið til neinna
harðra aðgerða enda hafi ritstjóri
blaðsins séð að sér og beðist afsök-
unar áður en málið kom inn á borð
til hans. „Þetta er auðvitað ömur-
legt því margir geyma slík blöð til
minningar. Við leyfum nemendum
okkar hins vegar að hafa frjálsar
hendur og þá getur þetta stundum
farið svona,“ segir Ingi.
Birgir Þór Harðarson, ritstjóri
blaðsins, harmar að þessi mynda-
texti skuli hafa ratað í blaðið. Hann
hafi verið settur þarna í einhverj-
um hálfkæringi og hafi alls ekki átt
að standa í endanlegri útgáfu. Þrátt
fyrir að hafa lesið blaðið allt saman
yfir fimmtán sinnum þá hafi þeir
þó ekki komið auga á þessi mistök
fyrr en blaðið var farið í prentun.
„Okkur fannst þetta fyrst fyndið en
svo áttuðum okkur á því að þetta
væri það alls ekki,“ segir Birgir
og bætir því við að þeir hafi verið
fljótir að biðja hlutaðeigandi afsök-
unar og sá hafi tekið þeirri afsök-
unarbeiðni. Hvað kvenfyrirlitningu
í myndaþætti varðar segir Birgir
að hann hafi aldrei átt að koma
svoleiðis út. Sjálfur líti hann ein-
mitt á myndaþáttinn sem ádeilu á
kynjahlutverk. „Með því að magna
þau upp þá sést kannski hvað best
hversu asnaleg þau eru.“ Skólablað
Verzló hefur árum saman vakið
mikla athygli fyrir glæsilegt og
metnaðarfullt útlit. Stórfyrirtæki
hafa jafnan séð sér hag í að aug-
lýsa í blaðinu og alla jafna hafa for-
stjórar ausið úr viskubrunni sínum
á síðum blaðsins. Nemendur Verzl-
unarskólans hafa aftur á móti á
undanförnum mánuðum orðið fyrir
barðinu á fordómum í garð skólans
vegna bankahrunsins og lýsti rit-
höfundurinn Andri Snær Magna-
son því meðal annars yfir að efna-
hagskreppan væri gjaldþrot fyrir
SUS, Heimdall og Verzló. Það er því
kannski í takt við tíðarandann að
eitt af aðalviðtölum blaðsins skuli
vera við byltingarhetjuna Hörð
Torfason og að blaðið skuli vera
selt gegn vægu gjaldi.
„Þegar Geir H. Haarde kom í
sjónvarpið og sagði allt vera að fara
til fjandans þá vorum við að fara í
auglýsingasöfnun þannig að sú yfir-
lýsing var ansi mikið högg,“ segir
Birgir. Af þeim sökum hafi verið
gripið til þess ráðs að selja blaðið.
„Og í fyrsta skipti í langan tíma er
blaðið ekki að skila tapi fyrir nem-
endafélagið heldur stöndum við
á sléttu og það er kannski helsta
afrekið.“ - fgg
Skólastjóri Verzló hneyksl-
aður á dónaskap í skólablaði
SÖGULEGT VERZLÓBLAÐ Birgir Þór Harðarson kom sjálfur á skrifstofu skólastjórans í
Verzló og greindi frá mistökum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Já, þetta er bara nýtt lag frá
hljómsveitinni. Ég ætla að brosa,“
segir Björn Jörundur söngvari í
hljómsveitinni Ný dönsk.
Ávallt heyrir til tíðinda þegar
hljómsveitin Ný döns sendir frá
sér nýtt efni og í gær var dreift
nýju lagi eftir Björn á útvarps-
stöðvarnar þannig að hlustend-
ur ættu að geta heyrt „Ég ætla að
brosa“ á einhverri útvarpsbylgju-
lengdinni.
„Ef þú smælar framan í heim-
inn þá smælar heimurinn fram-
an í þig eru svona beisikklí skila-
boðin. Sú gamla vísa,“ segir Björn
sem samdi lagið fyrir um mánuði.
Sem fjallar um að vera bjartsýnn
og brosa framan í heiminn. „Já, og
að það dýrmætasta sem við eigum
er hvort annað. Þetta er klassískt
popplag. Adölt kontemporarí eins
og það heitir á útlensku. Við Daníel
Ágúst syngjum þetta saman. Ekta
Ný danskur slagari.“
Hljómsveitin Ný dönsk verð-
ur starfandi í sumar og er með
spennandi og sérstætt verkefni í
gangi. „Við erum að taka upp nýtt
efni en dreifum því yfir árið. Eitt
lag í senn og þetta er það fyrsta í
röðinni. Það verður á næstu plötu
sem kemur út þegar nóg af lögum
er komið sem við erum ánægðir
með. Pælingin er að fara til Eyja
og taka næsta lag upp þar. Svo fara
í Tankinn á Vestfjörðum og taka
eitt lag þar. Svo klára eitt lag á
Akureyri og annað fyrir Austan.
Og í hverri slíkri ferð ætlum við að
halda tónleika á viðkomandi stað.
En verðum á laugardaginn á Sel-
fossi, á 800 bar, þar sem við ætlum
að frumflytja lagið og brosa fram-
an í sunnlendinga.“ - jbg
Björn Jörundur með splunkunýtt lag
NÝR NÝDANSKUR SLAGARI Hljómsveitin
ætlar að fara um allt land og taka upp
eitt nýtt lag á hverjum stað fyrir næstu
plötu sína.