Fréttablaðið - 19.03.2009, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 19.03.2009, Blaðsíða 34
Eitt af grundvallaratriðum í velgengni nýsköpunarfyrir- tækja er aðgangur að fjár- magni. Ýmsar leiðir eru færar í því tilliti en þó eru margir um hituna. „Eitt af því sem stendur í vegi fyrir því að nýsköpunarfyrirtæki nái flugi er aðgangur að fjár- magni. Í upphafi er það aðallega V-hópurinn, fyrir utan frumkvöð- ulinn, sem kemur með fjármagn en í V-hópnum eru vinir, vanda- menn og velunnarar,“ segir Egg- ert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks, sem hélt fyrirlestur um fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja á nýafstöðnu Nýsköpunarþingi. Að sögn Eggerts hafa stjórnvöld byggt upp veglega innviði til að styðja við nýsköpunarfyrirtæki, þótt vissulega megi alltaf gera betur. „Þar ber fyrst að nefna styrkjakerfið og stuðning eins og þann sem hægt er að fá hjá Ný- sköpunarmiðstöðinni. Síðan eru styrkir Rannís og er þá aðallega um að ræða Tækniþróunarsjóð,“ segir hann og heldur áfram: „Þegar kemur að því að fá inn hlutafé eru það svokallaðir við- skiptaenglar og nokkrir sjóðir sem koma til greina.“ Viðskipta- englar eru oftar en ekki einstakl- ingar sem hafa verið í hlutverki frumkvöðla og atvinnustjórnenda en hættir störfum og einbeita sér að því að taka þátt í skemmtileg- um verkefnum með von um góðan arð. „Þetta eru oft kallaðir pen- ingar með sál, því viðkomandi viðskiptaengill kemur ekki aðeins með fjármagn heldur einnig sína persónulegu reynslu og tengsl,“ segir hann. Ýmsir sjóðir standa nýsköpunar- fyrirtækjum til boða. „Í sjóðaflór- unni er fyrstur Nýsköpunarsjóð- ur atvinnulífsins sem fjárfestir í sprotafyrirtækjum og síðan er það Frumtak, sem er sjóður sem fjárfestir í nýsköpunarfyrirtækj- um sem komin eru af svokölluðu klakstigi enda liggi fyrir ítarlegar viðskiptaáætlanir. Frumtak er í eigu Nýsköpunarsjóðs, sex af stærstu lífeyrissjóðum landsins og nýju bankanna þriggja. Einnig eru starfandi tveir aðrir fjárfest- ingasjóðir, Auður Capital og Brú II, en þessir sjóðir fjárfesta í fyr- irtækjum sem eru lengra komin. Þá er rétt að minnast á Bjark- arsjóðinn sem er í umsjá Auðar Capital, en þeim sjóði er ætlað að fjárfesta í sprotafyrirtækjum þar sem sjálfbærni og orka er í hávegum,“ útskýrir Eggert áhuga- samur. Því er ljóst að nokkrir koma að fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja en samt sem áður skortir mörg þeirra fjármagn. „Í góðærinu undanfarin ár virtumst við missa jarðtenginguna í grasrót nýsköp- unarinnar en atburðir síðustu mánaða hafa aftur beint sjónum manna á mikilvægi þess að við byggjum upp lítil og meðalstór fyrirtæki í sem flestum geirum til að skapa sem flest störf og minnka þannig þjóðhagslega áhættu okkar en auka um leið þjóðhagslega hag- sæld,“ segir Eggert ákveðinn. - hs 19. MARS 2009 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● nýsköpun Byggja þarf upp fjölbreytt fyrirtæki Eggert Claessen er framkvæmdastjóri Frumtaks, sjóðs sem fjárfestir í nýsköpunar- fyrirtækjum sem komin eru af svokölluðu klakstigi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Nýtt fyrirtæki, 3G-local ætlar að hefja leigu á 3G netlyklum til ferðamanna í vor í nánu samstarfi við Nova, Icelandair og 10/11 versl- anirnar. Mennirnir á bak við 3G-local eru þeir Páll Kr. Svansson og Jón Sigurðsson sem báðir stunda MBA nám við Háskóla Íslands. „Þessi hugmynd vaknaði í fyrravor milli okkar Jóns en þá hafði ég í nokkra mánuði verið með netlykil, eða 3G pung, frá Nova til að komast á netið,“ segir Páll sem starfar sem ráðgjafi og kann vel að meta að komast á netið hvar sem er, enda mikið á flakki. „Jón kom þá með þá hugmynd að leigja slíka netlykla, eða punga, til útlendinga,“ útskýr- ir Páll sem gerði sér strax grein fyrir að aðalatriðið væri að koma upp góðri dreifileið. Þeir höfðu því samband við Icelandair sem tók strax vel í hugmyndina. Páll segir að margir ferðamenn sem leggi leið sína til Íslands hafi fartölvu meðferðis. Hins vegar sé dýrt að greiða fyrir nettengingar á hótelum og erfitt að komast í net- samband á ferðalögum. „Útreikn- ingar sýna að með því að leigja 3G pung geti ferðamenn sparað að meðaltali tæplega sex þúsund krónur miðað við sjö megabæta notkun á dag,“ útskýrir Páll en sala á þjónustunni mun fara fram í flugvélum Icelandair og verð- ur fyrirkomulagið svipað því og þegar bíll er leigður. Ætlunin er að hefja rekstur þjón- ustunnar á vormánuðum 2009. - sg Leigja netlykla til ferðamanna Páll Kr. Svansson og Jón Sigurðs- son hafa stofnað fyrirtækið 3G local og hyggjast leigja svokall- aða 3G punga til ferðamanna. FR ÉT TA BL A Ð IÐ /V A LL I HVAR ER ÞÍN AUGLÝSING ? É g er á leið til Bútan. Það eru ekki margar leiðir sem liggja þang- að því enn er þetta ríki, sem liggur klemmt á milli stórveld- anna tveggja, Kína í norðri og Indlands í suðri, eitt það einangraðasta í heimi. Ég flýg frá heimalandi mínu Taílandi þar sem ríkisflugfélag Bútan, Druk Air, hefur lent annarri af tveimur flugvélum sínum til að sækja mig, nokkra Bútana og Bangladessa. Ég uppgötva þegar ég innrita mig að ég hef aldrei áður hitt Bútana. Ætli þeir séu ekki vandfundnari en Íslendingar? Ég hef svo lengi beðið þess að komast til Bútan að ég er ögn uppnuminn, líkt og að hitta popp- stjörnu. Áberandi myndarlegur og karl- mannlegur stöðvarstjórinn er mættur til að fylgjast með því að innritun gangi rétt fyrir sig. Minn fyrsti Bútani. Smjörþefur af karl- mennsku Bútans. Beinvaxinn, dökkleitur, sterklegur og með friðsæld Himalajafjalla í augunum. Seinna á ég eftir að hitta munka og bændur sem eru myndrænni en heims- fræg módel og kvikmyndastjörnur. Hverjir eru skyldleikarnir við Ísland? Í Bútan, þessu síðasta konungsríki Hima- lajafjalla, eru samkvæmt opinberum upp- lýsingum, um 600.000 þegnar en til flug- vélaflotans teljast tvær flugvélar sem AÐ ANDA AÐ SÉR BÚTAN FRAMHALD Á BLS. 4 [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] ferðalög FEBRÚAR 2009 Vistvænn lúxus Glænýtt heilsulindarhótel á partí - eyjunni Ibiza BLS 2 Í tilefni af tískuviku Þrennt sem þú verður að gera í París BLS 6 1 Neytendastofa VIGTARMENN Námskeið til löggildingar vigtarmanna verður haldið á Neytendastofu, Borgartúni 21, dagana 6., 7. og 8. október nk. Endurmenntunarnámskeið verður haldið 13. október. Allar nánari upplýsingar um verð og skilmála, svo og aðstoð við skráningu þátttakenda, eru veittar í síma 510 1100 og á heimasíðunni www.neytendastofa. is/mælifræðisvið/löggilding vigtarmanna/námskeið vigtarmanna. Skráningu lýkur föstudaginn 19. september nk. Suðurlandsbraut - sími 588 3031 - www.stra.is30 Tölvuumsjón Rekstrarfélag Stjórnarráðsbygginga Starfið Hæfniskröfur Umsóknarfrestur Vinsamlega athugið að fyrirspurnum verður eingöngu svarað hjá STRÁ MRI. Guðný Harðardóttir STRÁ MRI stra@stra.is óskar eftir að ráða tölvu- og/eða kerfisfræðing til starfa. Rekstrarfélagið sér um notendaþjónustu gagnvart starfsmönnum flestra ráðuneytanna ásamt miðlægum tölvubúnaði þeirra. Fjöldi útstöðva er um 550. felst í notendaþjónustu og meðal helstu verkefna er viðhald og uppsetningar á Windows útstöðvum, þjónusta við Málaskrár/GoPro, Lotus Notes, Office og önnur forrit. eru að umsækjendur séu menntaðir á sviði tölvutækni, s.s. tölvufræði, kerfisfræði, tölvunarfræði og/eða með sambærilega menntun. Þekking á Lotus Notes og GoPro er æskileg. Áhersla er lögð á faglegan metnað, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum auk sveigjanleika í mannlegum samskiptum. er til og með 22. september nk. Laun verða skv. kjarasamningi starfsmanna Stjórnarráðsins og fjármálaráðherra. Gengið verður frá ráðningu fljótlega. (gudny@stra.is) hjá veitir nánari upplýsingar. Vinsamlega sendið umsóknir/starfsferilskrár og meðfylgjandi prófgögn til . Viðtalstími er alla virka daga frá kl.13-15 meðan á umsóknarferlinu stendur. Fagmennska í yfir ár20 www.stra.is REKSTRARFÉLAG STJÓRNARRÁÐSBYGGINGA fasteignir 15. SEPTEMBER 2008 Fasteignasalan Perla Investments og RE/MAX Bær eru með til sölu íbúðir við Punta Prima strönd á Spáni. Í búðirnar eru í blokk við Punta Prima-strönd, sem hefur notið mikilla vinsælda og er bæði í 30 mínútna akstursfjarlægð frá Alicante-flugvelli og Murcia-flugvelli. Íbúðin á myndinni til hliðar skiptist niður í opið eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðher- bergi og verönd. Íbúðunum fylgir sameiginlegur garður með tveimur sundlaugum auk sameiginlegs púttvallar. Þær eru í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá ströndinni, þar sem óviðjafnanlegt útsýni er út á Miðjarðarhafið. Þá er öll þjónusta innan seilingar. Hægt er að rölta á nærliggjandi veitingastaði og eins eru kjörbúðir, veitingastaðir, apótek, barir og fleira staðsett í þjónustukjarna í tíu mínútna göngufjarlægð. Að auki er stutt í ýmiss konar afþreyingu fyrir alla fjölskylduna, þar á meðal golf, tívolíferðir, vatnagarð og fleira. Þess skal getið að íbúðirnar kosta frá 201.160 evrum. Þessi eign ásamt fleirum verður kynnt í opnu húsi á Spánareignum hjá Remax Bæ Malarhöfða 2, helg- ina 20. og 21. september á milli klukkan 12 til 16 báða daga. Nánari upplýsingar veitir RE/MAX Bær, um- boðsaðili Perla Investments á Íslandi. Snorri Sig- urfinnsson í síma 864 8090, ss@remax.is. Magnús Ninni Reykdalsson í síma 694 9999, maggi@remax. is. Frekari upplýsingar um fasteignakaup á Spáni eru fáanlegar á vefsíðunni www.perla.is. Fyrsta flokks íbúðir fáanlegar á Spáni Íbúðin í blokkinni skiptist í opið eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og verönd. Íbúðunum fylgir sameiginlegur garður með tveimur laugum auk sameiginlegs púttvallar. Öll þjónusta og afþreying eru innan seilingar frá þeim. Fr um LAUGARDAGUR 21. mars LAUGARDAGUR 21. mars MÁNUDAGUR 23. mars föstudagur KRAFTMIKIL OG TIL Í ALLT Íris Björk Tanya Jónsdóttir seldi verslunina GK í vikunni og einbeitir sér að öðrum verkefnum FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS DAGVAKTIN Á HVÍTA TJALDIÐ? Þótt landinn elski Dag- vaktina ætla höfundar ekki að gera fleiri þætti STRÁKUR MEÐ SINN EIGIN STÍL Baldur Rafn Gylfason er kominn aftur í hár- greiðslubransann STJÖRNU- BRÚÐKAUP ÁRSINS Birgitta Haukdal gekk að eiga Benedikt Einarsson um helgina 17. október 2008 ULTRATONE FÖSTUDAGUR 20. mars Föstudagur: Vikulegt sérrit á léttu nótunum. Viðtöl við þjóðþekkta einstaklinga, allt það nýjasta í tísku, heilsu og hönnun svo dæmi sé tekið. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir í síma 512-5462 eða sigridurdagny@365.is heimili&hönnun LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2008 INNLIT Útsýni til allra átta JÓHANN MEUNIER EIGANDI LIBORIUS Notagildi í hávegum haft Í ALDANNA RÁS Gerður Helgadóttir LAUGARDAGUR 21. mars Heimili & hönnun: Vikulegt sérrit um heimili & hönnun, hugmyndir fyrir öll rými heimilisins sem og áhugaverðar fréttir úr heimi hönnunar jafnt innanlands sem utan. Nánari upplýsingar veitir Hlynur Þ. Steingrímsson í síma 5125439 eða hlynurs@365.is Atvinnublaðið: Mest lesna atvinnublað landsins – alla laugardaga. Nánari upplýsingar veitir Viðar Ingi Pétursson í síma 512-5426 eða vip@365.is Smærri fjármálafyrirtæki Þrengingar kalla á samþjöppun Sögurnar... tölurnar... fólkið... H E L S T Í Ú T L Ö N D U M Óli Kristján Ármannsson og Björn Ingi Hrafnsson skrifa Seðlabanki Íslands ætti að lækka stýrivexti um 0,25 prósentustig á vaxtaákvörðunardegi sínum á morgun, samkvæmt áliti skuggabankastjórnar Markaðarins. Að þessu sinni voru skiptar skoðanir innan bankastjórnarinnar. Tveir vildu fremur horfa til væntinga erlendra greinenda og hættunnar á frekara gengisfalli og halda vöxtum óbreyttum. Hinir vildu hefja lækkunarferli stýrivaxta nú þegar og forða með því frekara kreppuástandi. Sameiginleg niðurstaða er svo varfærnisleg lækkun sem undirbyggja þarf rækilega með gögn- um, svo sem með því að birta nýjan stýrivaxtaferil. Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykja- vík, segir stöðuna í efnahagslífinu einkennast af mikilli óvissu og hættu, meðal annars vegna skorts á lánsfé. Þá hafi ekki tekist að styrkja gjaldeyris- forða Seðlabankans nema að takmörkuðu leyti. „Það lán sem tilkynnt var um í síðustu viku, en hefur reyndar ekki enn verið tekið, er auðvitað aðeins sem lítið skarð í stórri ísaldarstæðunni og var af kurteisisástæðum ekki hlegið beint út af borðinu,“ segir hann. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir mestu skipta nú að vega saman verðbólgu- hættuna annars vegar og hættuna á kreppu hins vegar. Hann horfir meðal annars til reynslunnar af fyrri samdráttarskeiðum, svo sem þegar lækkun stýrivaxta hófst síðla árs 2001, skömmu áður en verðbólga náði hámarki. Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Glitnis, segir verðbólguhorfur jafnframt góðar og líkur á að verðbólgumarkmiði Seðlabankans verði náð á þriðja fjórðungi næsta árs. „Í þessu háa vaxtaumhverfi og í ljósi þessarar verðbólguspár tel ég rétt að bankinn lækki vexti sína í nokkuð stórum stökkum á næstu mánuðum,“ segir hann. Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings, telur einnig að Seðlabankinn þurfi að bregðast hratt við með örum stýrivaxtalækkunum þegar verðbólgan tekur að hjaðna og þá jafnvel með fjölgun vaxtaákvörðunardaga. Lækkunarferlið segir hann hins vegar kalla á góðan undirbúning og telur vart hægt að hefja það nema í tengslum við útgáfu Peningamála, efnahagsrits Seðlabankans, á vaxtaákvörðunardegi í nóvember. Þar hafi bankinn vettvang til að skýra ákvörðun sína og sýn á efna- hagsframvinduna. Skuggabankastjórnin vill 25 punkta lækkun Skuggabankastjórn Mark aðarins áréttar að tími sé kominn á lækkun stýrivaxta. Hættara sé við kreppu en verðbólgu. Olíuverð lækkar | Verð á hrá- olíu hefur lækkað nokkuð hratt upp á síðkastið og lá við 102 dali á tunnu þegar best lét í gær. Í júlí stóð verðið í hæstu hæðum, fór í rúma 147 dali á tunnu. Kauphöllin sprakk | Fjárfestar í Bretlandi komu að lokuðum dyrum hjá Lundúnamarkaðn- um í Bretlandi á mánudag. Tvö- falt meiri velta með hlutabréf en aðra daga varð til þess að kaup- hallarkerfið brann yfir. Þetta er alvarlegasta kerfisbilun á bresk- um hlutabréfamarkaði í átta ár. Þjóðnýting gleður | Gengi hlutabréfa tók kipp upp á við víða um heim á mánudag eftir að Henry Paulson, fjármálaráð- herra Bandaríkjanna, greindi frá yfirtöku ríkisins á hálfopinberu fasteignalánasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac á sunnu- dag. Þetta eru umfangsmestu björgunaraðgerðir í sögu fjár- málageirans. Mikið atvinnuleysi | Atvinnu- leysi mældist 6,1 prósent í Bandaríkjunum í síðasta mánuði, samkvæmt nýjustu tölum banda- rísku vinnumálastofnunarinnar. Atvinnuleysi hefur ekki verið meira í tæp fimm ár. Óbreyttir vextir | Bæði Eng- landsbanki og evrópski seðla- bankinn ákváðu í síðust viku að halda stýrivöxtum óbreyttum. Að- stæður í efnahagslífinu og yfir- vofandi samdráttur í hagvexti lá til grundvallar ákvörðununum. Þóra Helgadóttir Verðleiðrétting ekki alslæm 6 Starfsmenn vilja kaupa Heitt í holunum hjá Enex 2 2 Hlutabréf í Eimskipafélaginu voru færð á athugunarlista í Kauphöllinni í gær, vegna um- talsverðrar óvissu varðandi verð- myndun vegna hættu á ójafnræði meðal fjárfesta, líkt og segir í til- kynningu. „Þetta er ábending til fjárfesta um að verðmyndun sé óvenju óviss um þessar mundir og felur því í sér hvatningu til þeirra að kynna sér málið vel áður en ákvarðanir eru teknar,“ segir Þórður Frið- jónsson, forstjóri Kauphallar- innar, í samtali við Markaðinn. Verð á hlutabréfum í Eimskip hefur nánast verið í frjálsu falli síðustu vikur og mánuði. Á einni viku hefur gengi bréfanna til að mynda lækkað um ríflega þriðj- ung. Fyrir um ári var gengið um 43, en var komið niður fyrir 10 kr. á hlut í gær. Eins og fram hefur komið í Markaðnum situr Eimskip enn uppi með ábyrgð upp á 25 millj- arða króna vegna sölu á bresku ferðaskrifstofunni XL Leisure Group fyrir tveimur árum. Unnið hefur verið að endurfjármögnun, en henni er ekki lokið og herma heimildir Markaðarins að skyndi- legt fall nú geti tengst óvissu um lyktir þeirrar vinnu. - bih Eimskip í frjálsu falli www.trackwell.com Vistvænn kostur! MIÐVIKUDAGUR 25. mars Markaðurinn: Vikulegt sérrit um allt er snýr að viðskiptum og efnhagsmálum – alla miðvikudaga. Nánari upplýsingar veitir Laila Awad í síma 512-5451 eða laila@frettabladid.is Eftirfarandi sérblöð fylgja Fréttablaðinu á næstunni Allt sem þú þarft... ... alla daga Ferðalög: Mánaðarlegt sérrit um ferðalög. Ferðir er líflegt, fróðlegt og um fram allt skemmtilegt tímarit fyrir ævintýraþrána sem blundar í okkur öllum Nánari upplýsingar veitir Benedikt Freyr Jónsson í síma 512 5411 eða Benediktj@365.is Fasteignir: Fasteignablað Fréttablaðsins - alla mánudaga. Auglýsendur athugið að panta þarf auglýsingar fyrir klukkan 12 föstudaginn 20. mars. Nánari upplýsingar veitir Viðar Ingi Pétursson í síma 512-5426 eða vip@365.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.