Fréttablaðið - 19.03.2009, Blaðsíða 16
16 19. mars 2009 FIMMTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Varnarþörf Íslands
Varnarmálastofnun er
ekki orðin eins árs en nú
þegar eru uppi raddir um
að hún verði lögð niður.
Deilt er um hver þörfin er
fyrir stofnunina og hvort
hægt sé að sinna vörnum
landsins á hagkvæmari
máta. Utanríkisráðherra
hefur lýst því yfir að hann
sé með málefni stofnunar-
innar til rækilegrar endur-
skoðunar.
Varnarmálastofnun tók til starfa
1. júlí í fyrra samkvæmt varnar-
málalögum. Helsta hlutverk henn-
ar er að sjá um ratsjárkerfið sem
Nató hafði umsjón með áður, en
þar að auki rekur hún fjarskipta-
og samskiptakerfi, auk þess að
sjá um öryggisgagnagrunna og
rekstur Nató-mannvirkja.
Þegar bandaríski herinn hvarf
af landi brott gerbreyttist stað-
an í varnarmálum landsins. Kall-
að var eftir því að sjálfstætt mat
færi fram á varnarþörf landsins.
Áður en það var gert var samið
við Atlantshafsbandalagið um
loftrýmiseftirlit, sem skyldi fara
fram fjórum sinnum á ári. Haust-
ið 2007 skipaði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, þáverandi utanríkis-
ráðherra, starfshóp til að meta
varnarþörfina, undir forystu Vals
Ingimundarsonar sagnfræðings.
Sá hópur hefur nú skilað niður-
stöðu sinni. Í skýrslunni er hvatt
til innbyrðis samstarfs stofnana,
en margir hafa kvartað yfir því,
sérstaklega eftir tilkomu Varnar-
málastofnunar.
Togstreita
Georg Lárusson, forstjóri Land-
helgisgæslunnar, er ekkert að
skafa utan af því og segir bein-
línis að stofnun Varnarmála-
stofnunar hafi verið til óþurftar.
„Samstarf okkar við systurstofn-
anir hefur verið mikið, ekki síst
á Norðurlöndunum. Þær eru
af hernaðarlegum toga, en við
áttum bein og milliliðalaus sam-
skipti við þær. Það að vera með
þennan millilið sem heitir Varn-
armálastofnun gerir þetta sam-
starf ómarkvisst og óöruggt,“
segir Georg.
Hugmyndin um Varnarmála-
stofnun verður til í utanríkisráðu-
neytinu. Í undirbúningi stofnun-
arinnar voru þau rök notuð að
öryggisreglur Nató krefðust þess
að stofnun sú sem sæi um ratsjár-
eftirlitið væri ekki borgaraleg.
Björn Bjarnason, fyrrum dóms-
málaráðherra, þvertekur fyrir
að Nató gerir kröfur í þessum
efnum. „[A]llt tal um, að NATO
eigi að ákveða, hvaða stofnunum
hér á landi sé heimilt að taka á
móti upplýsingum frá bandalag-
inu byggist á viðleitni til að auka
mikilvægi sitt á kostnað annarra
stofnana, sem eru jafnfærar til að
taka á móti þessum upplýsingum,
enda uppfylli þær kröfur banda-
lagsins um meðferð hernaðar-
legra leyndarupplýsinga.“
Hver er þörfin?
„Engar vísbendingar eru um
að Íslandi stafi hernaðarógn af
nokkru ríki eða ríkjabandalagi
í náinni framtíð. Þetta álit er í
samræmi við hættumat annarra
ríkja Atlantshafsbandalagsins.“
Svo segir í áhættumatsskýrslu
fyrir Ísland. Þar er hins vegar
sagt að fylgjast þurfi með flugi
herflugvéla, heræfingum og
ferðum kjarnorkuknúinna skipa
nálægt Íslandi.
Í skýrslunni er ekki tekið til-
lit til þess hvort nauðsynlegt sé
að halda úti loftrýmiseftirliti
og Valur Ingimundarson hefur
aðspurður sagt það vera pólit-
ískt spursmál. Utanríkisráðherra
segir fullt tilefni til að skoða
hvort loftrýmisgæslan hafi hlut-
verk við landvarnir og skýrslan
bendi ekki til að svo sé. Þessi mál
séu til skoðunar í ráðuneytinu.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, fagnar
mjög skýrslunni. Hann segir að
með henni sé tilburðum til að
byggja upp hernaðarlega ógn
sem bregðast þurfi við slátrað og
ljóst sé að ekki sé neinn að fara
að ráðast á okkur. Kötlugos sé
alvarlegri ógn við öryggi okkar
en hugsanleg hernaðarleg ógn.
„Í skýrslunni er sterk und-
irbygging að því að slá megi
Varnarmálastofnun af, sem og
heræfingar og loftrýmiseftirlit.
Enda er þetta bara rugl og nær
væri að spara fjármuni sem fara
í þetta.“
Kostnaður
Varnarmálastofnun hlaut á árinu
2009 1,227 milljarða króna á
fjárlögum og hafði framlagið þá
verið skorið niður um 257 millj-
ónir vegna efnahagsástandsins.
Í minnihlutaáliti utanríkismála-
nefndar, sem Steingrímur stóð
að, var lagt til að öllum fjárút-
látum til hernaðarlegra verkefna
yrði hætt og fjármagninu frek-
ar varið í þróunarsamvinnu og
hjálparstarf.
Við venjulega flugumferð eru
notaðar svarratsjár sem nema
merkjasendingar flugvéla. Hjá
Varnarmálastofnun er einnig
frumratsjá, en hún nemur alla
umferð á svæðinu, jafnvel þó
slökkt hafi verið á merkjasend-
ingum flugvéla.
Í úttekt sem Neyðarlínan vann
um kostnað við að taka ratsjár-
eftirlitið yfir er gert ráð fyrir
kostnaði upp á 476 milljónir
króna. Ratsjárstofnun, sem sá
um eftirlitið, fékk á fjárlögum
2008 822 milljónir króna og nefnt
hefur verið að um 830 milljónir
fari í eftirlitið innan Varnarmála-
stofnunar. Ljóst er því að tölu-
verður sparnaður næðist væri
verkið flutt til Neyðarlínunnar.
Björn Bjarnason talaði strax við
brotthvarf Bandaríkjahers fyrir
því að það yrði gert, eða til Flug-
stoða.
Varnarmálastofnun hefur
hins vegar borið brigður á
þessar tölur og dregið í efa að
mögulegt sé að reka kerfið í
vaktstöðinni við Skógarhlíð. Þór-
hallur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Neyðarlínunnar, segist
standa við kostnaðarmatið.
Skipt upp
Össur Skarphéðinsson hefur sagt
að málefni Varnarmálastofnunar
séu í miklum forgangi hjá honum.
„Ég tel að það séu miklir mögu-
leikar á því að spara fé með því
að sameina ýmsa þætti sem eru
hjá henni og öðrum stofnunum. Í
þeirri stöðu sem Íslendingar eru
nú þarf að velta hverri krónu
fyrir sér og gera allt sem hægt
er til að spara og hagræða.“
Georg Lárusson hefur talað
fyrir því að Landhelgisgæslan
taki yfir vissa þætti Varnarmála-
stofnunar og telur það nauðsyn-
legt til að hægt sé að rækja hlut-
verk gæslunnar. Friðrik Jónsson,
verkefnisstjóri hjá Varnar-
málastofnun, segir sjálfsagt að
skoða möguleika til hagræðing-
ar. „Verkefnin sem við erum að
sinna skipta máli, ekki endilega
ramminn utan um þau.“ Hann
neitar því þó að flækjustig hafi
aukist með stofnuninni, þvert á
móti séu bandalagsþjóðir ekki
lengur í neinum vafa við hvern
eigi að ræða varnarmál.
Ragna Árnadóttir dómsmála-
ráðherra hefur sagst vilja skoða
málefni stofnananna. Eðlilega
hafi menn áhuga á öllum hagræð-
ingarmöguleikum í ríkisrekstri.
Þá hefur Árni Þór Sigurðsson,
formaður utanríkismálanefnd-
ar, talað fyrir því að stofnunin
verði lögð niður.
Úr þessu er varla líklegt að
núverandi ríkisstjórn taki varn-
armál til rækilegrar endurskoð-
unar. Líklegra er að þau bíði
næstu stjórnar. Ljóst er hins
vegar að krafan um hagræðingu
verður ekki minni hjá þeirri
stjórn og ekki ólíklegt að fregna
verði að vænta í þessum efnum.
Menn geta hins vegar spurt sig
hver raunveruleg varnarþörf er
ef staða ríkissjóðs hverju sinni
segir til um hvernig henni skuli
sinnt.
Deilur um varnarþörf
RATSJÁREFTIRLIT
Lofthelgi landsins er 12
mílur en loftumferðar-
svæði mun stærra, að
meðaltali um 150 mílur.
Að meðaltali eru um
50 til 60 flugvélar inni á
svæðinu í einu og stýra
Flugstoðir umferð þeirra.
Rætt hefur verið um
að færa ratsjárkerfi undir
Flugstoðir, eða jafnvel til
Neyðarlínunnar.
FRÉTTASKÝRING
KOLBEINN
ÓTTARSSON PROPPÉ
kolbeinn@frettabladid.is
Lofthelgi
12 mílur
Loftumferðarsvæði
150 mílur
Allt stefnir í deilu við Norðmenn vegna makrílveiða Íslendinga í eigin fiskveiði-
lögsögu. Samtök norskra útvegsmanna gagnrýna þessar veiðar og segja þær
óábyrgar og óafsakanlegar. Þau hvetja enn fremur önnur strandríki til að
standa saman gegn þessum veiðum Íslendinga.
■ Hvað er makríll?
Makríll er fremur feitur fiskur. Hann er skyldur túnfiski og er algeng fæða víða
um heim. Hér á landi hefur hann einkum fengist niðursoðinn, oft og tíðum
baðaður tómatsósu.
■ Hversu mikið veiða íslensk skip af makríl?
Heildaraflinn í ár má ekki fara yfir 112.000 tonn. Þar af mega 20.000 tonn
veiðast á alþjóðlegu hafsvæði utan lögsögu ríkja. Meira er veitt af makríl nú
en áður, árið 2007 veiddust 36.500 tonn. Ekki er langt síðan makríll fór að
ganga í auknum mæli upp að ströndum
Íslands, ástæðan er talin vera hlýnandi
umhverfi.
■ Hverjir veiða makríl?
Heildarmakrílkvótinn í Norðaustur-
Atlantshafi í ár er um 625.000
tonn. Hann skiptist á milli
Evrópusambandsins, Norðmanna
og Færeyinga. Veiðar Íslendinga
eru ekki inni í þessari tölu, en
Ísland hefur farið fram á það í
mörg ár, án árangurs, að koma
að samningaborðinu þegar
makrílkvótanum er skipt. Því
hafa veiðiheimildir á makríl í
íslenskri lögsögu verið settar
einhliða af Íslendingum.
Evrópusambandið hefur
gagnrýnt makrílveiðar Íslend-
inga og Norðmenn halda því
fram að þær séu óábyrgar.
FBL-GREINING: MAKRÍLL
Norðmenn gagnrýna
veiðar á makríl
VARNARMÁLASTOFNUN
1,227 millijarðar á fjárlögum 2009
Fjarskiptakerfið Samskiptakerfið Ratsjárkerfið Öryggisgagna-
grunnar
NATO-mannvirki
Lagt niður. Næg
önnur kerfi á
landinu.
Ljósleiðari í eigu
ríkisins opnaður
fyrirtækjum í fjar-
skiptarekstri. Mundi
auka samkeppni.
Flutt til Neyðarlín-
unnar eða samein-
að Flugstoðum.
Fluttir til greininga-
deildar ríkislög-
reglustjóra.
Fara til fjármála-
ráðuneytisins eins
og aðrar eigur
ríkisins.
Hugmyndir eru uppi um að leggja Varnarmálastofnun niður, eða sameina öðrum stofnunum, og færa verkefni annað.
Verði það að veruleika væri hægt að flytja verkefnin eins og hér er sýnt. Ekkert liggur þó fyrir í þeim efnum.
Auglýsingasími
– Mest lesið