Fréttablaðið - 19.03.2009, Page 22

Fréttablaðið - 19.03.2009, Page 22
22 19. mars 2009 FIMMTUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] Fjöldi viðskipta: 24 Velta: 60 milljónir OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6 225 +1,57% 576 +1,66% MESTA HÆKKUN EIMSKIPAFÉLAGIÐ 33,33% FØROYA BANKI 1,89% MESTA LÆKKUN ICELANDAIR -30% MAREL FOOD SYS. -2,32% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 2,80 +0,00% ... Atlantic Airways 171,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 235,00 +0,00% ... Bakkavör 1,45 +0,00% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið 1,00 +33,33% ... Føroya Banki 108,00 +1,89% ... Icelandair Group 7,00 -30,00% ... Marel Food Systems 46,40 -2,32% ... SPRON 1,90 +0,00% ... Össur 73,30 +0,00% Núverandi kreppa á engan sinn líka. Aðstoðarfram- kvæmdastjóri Alþjóðagjald- eyrissjóðsins (AGS) segir ólíklegt að vænta megi uppsveiflu eftir að botnin- um nái. Ný bráðabirgðaspá sjóðsins er enn svartsýnni en sú sem gefin var út í byrjun árs. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) telur líkur á að kreppan muni draga alþjóðlegt efnahagslíf neðar á þessu ári en reiknað var með í byrjun árs. Samkvæmt nýjustu bráðabirgðaspá sjóðsins er gert ráð fyrir samdrætti upp á 0,6 prósent á árinu samanbor- ið við væntingar um 0,5 prósenta hagvöxt í byrjun árs. Þetta er í samræmi við það sem fram kom á fundi með Mark Flanagan, yfirmanni sendinefnd- ar AGS á Íslandi, á fundi hans hér í síðustu viku. Þar kom fram að samdráttur í hagkerfinu hér verði allt að 10,5 prósent á árinu í stað 9,6 prósenta líkt og fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. AGS hafði áður gefið út að ólík- legt væri að fyrri spá myndi halda lengi. Fréttastofa Reuters vitnar til þess í gær, að haft hafi verið eftir Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra AGS, að efna- hagsþrengingarnar nú megi kalla kreppuna miklu. John Lipsky, aðstoðarfram- kvæmdastjóri AGS, sagði á fundi í Vínarborg í Austurríki í gær það eiga að vera forgangsmál ríkis- stjórna að tryggja stöðugleika á fjármálamörkuðum og leggja út björgunarpakka með þeim hætti að þau dragi ekki úr styrki hins opin- bera til að standa af sér utanaðkom- andi áföll. Takist það ekki sé hætta á að þau verði viðkvæmari en áður gagnvart áhrifum fjármálakrepp- unnar. „Kreppan nú á engan sinn líka,“ sagði Lipsky og bætti við að aðstæð- ur væru slíkar að ekki megi vænta uppsveiflu eftir að botninum nái líkt og eftir netbóluna á árabilinu 2003 til 2007. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur sjö stærstu iðnríkja heims dragist að meðaltali saman um 3,2 prósent á þessu ári. Til betri vegar horfi á næsta ári en vonir standa til að hagvöxtur verði þá jákvæður um 0,2 prósent. Bretland verður verst úti af löndunum sjö en hætt er við að hagvöxtur þar verði neikvæður fram á þarnæsta ár. Næsta spá AGS um horfur í alþjóðlegu efnahagslífi verður birt fyrir fund með Alþjóðabankanum undir lok næsta mánaðar. jab@markadurinn.is FJÁRMÁLAKREPPAN RÆDD Í ÞAULA Dominique Strauss Kahn, framkvæmdastjóri AGS, ásamt Kofi Annan, fyrrverandi aðalritara Sameinuðu þjóðanna, og Jakaya Mrisho Kikwete, forseta Tansaníu, á ráðstefnu um áhrif fjármálakreppunnar á Afríku, í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Horfur versna enn í hagkerfum heimsins SAMANBURÐUR Á SPÁM UM HAGVÖXT Á ÁRINU* Land / hagsvæði janúar ný spá Alþjóðlegt hagkerfi 0,6% -0,5% Bandaríkin -1,6% -2,6% Kanada -1,2% -2,0% Evrusvæðið -2,0% -3,2% Bretland -2,8% -3,8% Asía Indland 6,25% 5,25% Japan -2,6% -5,0% Kína* 7,5% 6,5% Víetnam 5,0% 4,75% *Spá Alþjóðabankans HEIMILD: ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐURINN Greining Íslandsbanka og IFS Greining spá varfærinni lækkun stýrivaxta í dag. Íslandsbanki 0,50 til 1,0 prósentustigs og IFS 1,50 prósentustigum. „Verkefni Seðlabankans er nokk- uð vandasamt þar sem vextir mega ekki vera svo lágir að þeir veiki til- trú en einnig er óæskilegt að stýri- vextir séu svo háir að þeir valdi efnahagslífinu verulegum skaða,“ segir í umfjöllun IFS Greiningar. Greining Íslandsbanka telur for- sendur komnar til vaxtalækkunar enda er fátt sem haldi verðbólgu uppi um þessar mundir. „Af mála- flutningi sendinefndar Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins sem var hér að störfum í upphafi mánaðar er ekki annað að skilja en að AGS muni leggja blessun sína yfir þá ákvörð- un að lækka vexti á morgun. Mark Flanagan yfirmaður sendinefndar sagði á blaðamannafundi í síðustu viku að svigrúm hafi skapast til hóflegrar vaxtalækkunar. Flanag- an sagði þó einnig að ekki væri útlit fyrir að hægt yrði að aflétta höftum á gjaldeyrismarkaði fyrr en síðar á þessu ári en þegar það yrði gert yrðu vextir enn að vera allháir. Þetta styður þá skoðun að hóflega verður farið í vaxtalækk- anir til að byrja með,“ segir í áliti greiningardeildarinnar. Skuggabankastjórn Markaðar- ins mælir hins vegar með heldur veglegri vaxtalækkun og bendir á að hér hafi áður verið farið skarpt í lækkunarferli stýrivaxta með góðum árangri í kjölfar þjóðar- sáttarsamninga á níunda áratugn- um. Mælir hún með allt að 4,0 pró- sentustiga lækkun. - óká Lækkunarferli vaxta að hefjast SVEIN HARALD ØYGARD Nýr seðlabankastjóri kynnir væntanlega í dag fyrstu ákvörðun nýrrar peningastefnunefndar Seðlabankans um stýrivexti. Almennt er búist við vaxta- lækkun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Facebook fyrir ríkisbubba Ef marka má umfjöllun Børsen í Danmörku eru um 20 þúsund „svínslega ríkir“ einstaklingar skráðir á samskiptavefinn Affluence.org, en honum hefur verið lýst sem Facebook fyrir ríkis- bubba. Þeir sem vilja fá að vera með á vefnum verða að uppfylla eitt þriggja skilyrða, eiga eignir upp á þrjár milljónir dala (nálægt 350 milljón- um króna), hafa árstekjur upp á 300 þúsund dali (tæplega 2,9 milljónir króna á mánuði), eða þekkja einhverja fimm sem fyrir eru í klúbbnum og vilja bjóða viðkomandi að vera með. Þarna eiga svo svipað þenkjandi einstaklingar að geta átt í netsamskiptum án þess að „sauðsvart- ur almúginn“ þvælist þar fyrir. Líkast til hafa svo aðstandendur vefsvæðisins ætlað að hagnast vel á að selja auglýsingar á vefinn sérsniðnar að þessum efnamikla hópi. Óheppileg tímasetning? Affluence.org vefurinn var hins vegar stofnaður í september í fyrra og má setja nokkur spurn- ingarmerki við þá tímasetningu. Þetta er enda rétt fyrir hrun Lehman Brothers og einhverjar yfirgengilegustu hörmungar sem gengið hafa yfir fjármálakerfi heimsins í manna minnum. Aðstandendur síðunnar hafa því líkast til mátt hafa sig alla við að fylgjast með því hvort þeir sem skráðir eru í klúbbinn hafi glatað svo miklu af virði sínu að gera verði þá brottræka. Børsen segir að aðstandendur vefsins hafi ekki gefið upp neinar tölur í þessum efnum, en áætlar að brottfall kunni að vera nálægt 30 prósentum. Kannski er það tímanna tákn að í gær lá vefur Affluence.org niðri, um leið og hrakspár birtust um að efnahagssamdráttur heimsins kynni að verða enn meiri en búist hefur verið við. Peningaskápurinn ... Óttar Pálsson hefur verið skipaður forstjóri Straums-Burðaráss fjár- festingabanka. Skipunin tók gildi frá og með gærdeginum að því er fram kom í tilkynningu bankans. Óttar var áður yfir lögfræðisviði bankans. William Fall, fyrrverandi forstjóri bankans, lét af störf- um þegar Fjármálaeftirlitið tók Straum yfir í byrjun síðustu viku, vék stjórninni frá störfum og skip- aði bankanum skilanefnd. Innlán Straums færast til Íslandsbanka gegn útgáfu skulda- bréfs samkvæmt ákvörðun Fjár- málaeftirlitsins. Eignarhaldsfélag í eigu kröfuhafa verður stofnað um það sem eftir stendur. - óká Straumur fær nýjan forstjóra Skuldastaða þjóðarinnar erlend- is verður lítillega jákvæð þegar leiðrétt hefur verið fyrir erlendum eignum og skuldum gömlu bank- anna. Þetta kemur fram í umfjöll- un Greiningar Íslandsbanka. „Erlendar skuldir fara þá niður í um tvöfalda landsframleiðslu eða tæplega 3 þús. ma. kr. og eru erlendu eignirnar aðeins meiri,“ segir í umfjöllun greiningardeild- arinnar. Útreikningurinn er byggð- ur á áætlun Seðlabankans, en hún er sögð viðlíka og mat Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins á þessum stærðum. „Rétt er að geta þess að þar sem tölurnar miða við síðustu áramót er væntanleg skuld vegna Icesave og lánveitingar Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins sem ekki hefur enn verið greidd út ekki með í þessum tölum.“ Án þess að leiðrétt sé fyrir skuld- um bankanna, sem hverfa munu smám saman á næstu misserum, samhliða eignasölu og afskriftum á skuldum, var hrein erlend staða þjóðarbúsins neikvæð um 3.544 milljarða króna í lok síðasta árs. - óká Eignir meiri en skuldir „Flest þróuð ríki í heiminum eru með öfluga kauphöll. Við vorum með þá stærstu sem hlutfall af landsframleiðslu um mitt þar- síðasta ár. Nú er hún sú minnsta miðað við sam- anburðarlönd- in,“ segir Þórð- ur Friðjónsson, forstjóri Nas- daq OMX Ice- land, sem í dag- legu tali nefnist Kauphöllin. Þórður var með erindi um markaðinn á vegum Fjár- málaréttarstofnunar í Háskólan- um í Reykjavík í gær. Þar kom fram að markaðsverð- mæti skráðra fyrirtækja hér hafi verið tæp 270 prósent af lands- framleiðslu þegar gamla Úrvals- vísitalan náði hámarki um mitt ár 2007. Hlutfallið skrapp saman eftir því sem tak fjármálakrepp- unnar herptist og stóð í 150 pró- sentum fyrir bankahrunið í fyrra. Aðstæður hafa lítið batnað síðan þá. Markaðsverðmæti skráðra fyrirtækja nú er um 15 til 20 pró- sent af landsframleiðslu og gerist vart lægra. „Hlutfallið hefur verið að lækka víða um heim. Það var um 130 til 140 prósent af landsframleiðslu að meðaltali erlendis þegar best lét en er nú komið niður í 70 prósent víða. Í Bandaríkjunum er það um 85 prósent,“ segir Þórður. Hann áætlar að skuldabréfa- markaðurinn taki við sér síðar á þessu ári og markaður með hlutabréf á því næsta. Áætlan- ir eru í takt við hagvaxtarhorfur ásamt ýmsum hvötum, svo sem skattaafslætti fyrir fjárfesta og skráningu hlutabréfa í evrur. „Þótt við vonum að það verði fyrr reikna ég ekki með að svo verði fyrr en við sjáum fram úr efnahagssortanum og náum betra jafnvægi,“ segir Þórður. - jab ÞÓRÐUR FRIÐJÓNSSON Kauphöllin breytist úr risa í dverg Fyrirtækið Fjármálalausnir ehf., sem Þórður Gíslason fer fyrir, hefur fest kaup á NASDAQ OMX Broker Services á Íslandi af OMX Technology AB. Í tilkynningu Kauphallarinnar kemur fram að Þórður starfaði áður fyrr sem framkvæmdastjóri fyrir tækisins (sem þá hét Libra). Fyrirtækjaráðgjöf Auðar Capi- tal hf. annaðist söluferlið, en kaupverð er ekki gefið upp. „NASDAQ OMX Broker Serv- ices á Íslandi sérhæfir sig í ráð- gjöf og hugbúnaðargerð fyrir fjármálafyrirtæki. Fyrirtækið er í viðskiptum við yfir 20 fjármála- fyrirtæki og stofnanir á Íslandi. Helstu vörur fyrirtækisins eru seldar undir Libra vörumerk- inu og eru helstu vörur Libra Securities, Libra Loan og Libra Pension,“ segir í tilkynningunni og staðhæft að eigendaskiptin hafi engin áhrif á þjónustustig fyrirtækisins. - óká Nasdaq OMX Broker Services á Íslandi selt MARKAÐSVIRÐI SEM HLUTFALL AF LANDSFRAMLEIÐSLU Ba nd ar ík in 0 40 60 80 100 20 B re tla nd Fi nn la nd Sv íþ jó ð D an m ör k N or eg ur Ís la nd Ís la nd á rs lo k 20 10 85% 68% 66% 64% 44% 38% 20% 60% HEIMILD: HAGSTOFAN, NASDAQ OMX NORDIC, OECD OG WORLD FEDERATION OF EXCHANGES

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.