Fréttablaðið - 19.03.2009, Side 42

Fréttablaðið - 19.03.2009, Side 42
26 19. mars 2009 FIMMTUDAGUR timamot@frettabladid.is Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurfinnur Arason úrsmíðameistari, til heimilis að hjúkrunar- heimilinu Sóltúni, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 20. mars kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkað- ir. Þeir sem vildu minnast hans eru beðnir um að láta hjúkrunarheimilið Sóltún og Alzheimersamtökin njóta þess. Guðlaug A. Sigurfinnsdóttir Yngvi Þ. Kristinson Jón K. Sigurfinnsson Bryndís Þorgeirsdóttir Rúnar P. Sigurfinnsson Sandra S. Ragnarsson Ari Sigurfinnsson Dóra Þórhallsdóttir Logi Sigurfinnsson Jónína Ágústsdóttir Guðrún Sigurfinnsdóttir Gústav Gústavsson afabörn og langafabörn. Yndislegur eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir, Róbert Bjarnason Kríuási 43, Hafnarfirði, sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 12. mars, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 23. mars kl. 13.00. Blóm og kransar vin- samlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á framtíðarsjóð barna hans, banki 0537 14 403110 kt. 110295 2359. Anna Sigríður Þorkelsdóttir Lilja Guðrún Róbertsdóttir Arnar Róbertsson Daði Róbertsson Bryndís Róbertsdóttir Nanna Guðrún Ásmundsdóttir Bjarni Sævar Róbertsson Guðrún, Þórlaug, Kristín, Lísa og þeirra fjölskyldur. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför elsku- legs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Halldórs B. Stefánssonar Lautasmára 3, Kópavogi. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks Hjúkrunar- heimilisins Skógarbæjar sem sýndi honum góða umönnun og hlýlegt viðmót. Hallgerður Pálsdóttir Ólafur Halldórsson Auður Sigurðardóttir Páll Halldórsson Sólveig Ásgrímsdóttir Ásta Halldórsdóttir Einar Erlendsson Elín Ýrr Halldórsdóttir Kristján M. Baldursson Ólöf Eir Halldórsdóttir Jenni Guðjón Clausen barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg systir okkar og móðursystir, Guðborg Kristjánsdóttir, frá Dalsmynni, Hringbraut 99, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar- daginn 14. mars, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 23. mars kl. 13.00. Anna S. Kristjánsdóttir Ella Kristjánsdóttir systrabörn og fjölskyldur þeirra. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Ingibjargar Kristínar Jónsdóttur, Sóltúni 12, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítalans deild 11E og heimaþjónustu Karitasar. Guðrún Lára Kjartansdóttir Bjarni Sólbergsson Kjartan Kjartansson Halla Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jónfríður Gunnarsdóttir, Sóltúni 2, áður til heimilis að Ferjubakka 4, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 24. mars, kl. 15.00. Ólöf Björg Einarsdóttir Grétar Hartmannsson Gunnur Inga Einarsdóttir Helgi Einarsson barnabörn og barnabarnabörn. MERKISATBURÐIR 1915 Reikistjarnan Plútó er ljós- mynduð í fyrsta sinn. 1922 Leikfélag Reykjavíkur heldur upp á þrjú hundr- uð ára afmæli Frakkans Molière með hátíðarsýn- ingunni „Ímyndunarveik- in“. 1931 Fjárhættuspil eru leyfð í Nevada. 1971 Tollstöðvarhúsið í Reykja- vík er tekið í notkun með viðhöfn enda er húsið um fjörutíu þúsund rúmmetr- ar að stærð. 1972 Indland og Bangladess undirrita vinaríkjasátt- mála. 2003 Herlið Bandaríkjamanna og staðfastir bandamenn þeirra ráðast inn í Írak. Í síðasta mánuði úthlutaði Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri átta námsstyrkjum úr Guðrúnarsjóði sem stofnaður var með samþykkt borg- arráðs 3. mars árið 2005 í samstarfi við Eflingu stéttarfélag. Svava Jó- hannesdóttir var ein þeirra sem hlaut styrk úr sjóðnum þetta árið en mark- mið sjóðsins er að styðja við verkefni eða starf félagasamtaka á þeim svið- um sem Guðrún Halldórsdóttir hefur látið mest til sín taka og má lýsa þeim með þremur einkunnarorðum: jafn- rétti, fræðsla og fjölmenning. „Námsstyrkurinn er mér mikil hvatning til að klára námið en það hefur verið erfitt um tíma vegna kreppunnar. Styrkurinn er mér mikils virði og er hvatning til að gefast ekki upp,“ segir Svava en hún hefur verið heyrnarlaus frá fæðingu. „Ég er vön því að vera heyrnarlaus því þannig fæddist ég. Ég hef aldrei hugsað um hvað það sé erfitt að vera heyrnar- laus og get ég gert allt eins og heyr- andi fólk, nema heyra. Það eina sem hefur hindrað mig í að komast áfram í skóla er að það var enginn túlkur til hér áður fyrr þegar ég kláraði grunn- skóla í Heyrnleysingjaskólanum og því gat ég ekki farið í almenna fram- haldsskóla þar sem ég gat ekki fylgst með því sem kennarinn sagði,“ út- skýrir hún. Þegar Svava var barn að aldri mátti ekki kenna táknmál og áttu heyrnarlaus börn bara að læra ís- lensku og að skrifa eins og aðrir. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. „Loksins eru til túlkar sem hægt er að fá til að túlka allt sem er að gerast í kennslustundum, eða bara hvar sem er. Túlkar eru mjög mikilvægir fyrir heyrnarlausa til að komast áfram í líf- inu án þess að þurfa að fá einhvern úr fjölskyldunni eða ættingja til hjálpar. Þó er alltaf erfitt að stunda nám þar sem íslenskan er ekki mitt mál held- ur táknmálið,“ segir Svava einlæg og bætir við: „Þar af leiðandi þarf maður alltaf að eyða mun meiri tíma í námið en þeir sem hafa íslenskuna að móðurmáli. Að vera í námi er því stöðug barátta og heyrnarlausa sam- félagið er í stöðugri baráttu við að efla réttindi sín.“ Svava stundar nám í Borgarholts- skóla fyrir stuðningsfulltrúa í grunn- skólum. „Ég hef enga menntun nema úr Heyrnleysingjaskólanum en núna vinn ég að því að ljúka námi sem stuðningsfulltrúi og útskrifast von- andi í desember. Ég hef unnið á leik- skóla fyrir heyrnarlaus börn, í banka og í mörg ár á sambýlum fyrir þroska- hefta og einhverfa sem eru heyrnar- lausir, bæði hér heima og erlendis. Núna starfa ég hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra og er táknmálskennari. Stundum kenni ég táknmál en vinn þó mestmegnis við að rannsaka táknmálið,“ útskýrir hún. Svava hefur nýtt reynslu sína til hjálpar öðrum bæði í leik og starfi og segist oft ræða við heyrnarlausa vini sína um það sem hún er að læra. „Ég er til dæmis að læra margt at- hyglisvert um hegðun, atferlismót- un og fleira sem getur gagnast mér og öðrum. Í vor vinn ég síðan nokkra tíma í viku sem stuðningsfulltrúi með heyrnarlausum sem þurfa aðstoð. Þá ætti reynsla mín og nám að koma að góðum notum,“ segir hún ánægð og nefnir að Guðrúnarsjóður hafi reynst sér vel. „Sjóðurinn er góð hvatning fyrir nemendur að halda áfram að berjast við að klára nám sitt þó svo hindranir geti verið í veginum. Ekki má láta þær stoppa sig heldur halda áfram og klára.“ hrefna@frettbladid.is SVAVA JÓHANNESDÓTTIR: HLAUT NÁMSSTYRK ÚR GUÐRÚNARSJÓÐI Mikilvægt að gefast ekki upp og yfirstíga allar hindranir HVATNING FYRIR DUGNAÐ OG ELJU Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri úthlutaði 27. febrúar átta námsstyrkjum úr Guðrúnarsjóði að upphæð 75.000 krónur hver. Guðrún Hall- dórsdóttir, sem sjóðurinn er nefndur eftir, stendur fyrir miðju en Svava er lengst til hægri í miðjuröðinni. MYND/ANNA FJÓLA Á þessum degi fyrir 101 ári flutti kven- réttindafrömuðurinn Bríet Bjarnhéð- insdóttir sitt fyrsta mál í bæjarstjórn Reykjavíkur. Var það tillaga um sund- kennslu fyrir stúlkur og var sú tillaga samþykkt. Bríet var kosin bæjarfulltrúi í bæjarstjórnarkosningum í Reykja- vík árið 1908. Þegar hún var sex- tán ára gömul ritaði hún grein um stöðu kvenna en sýndi engum hana fyrr en þrettán árum síðar. Þá birtist greinin undir heitinu „Nokkur orð um menntun og rjettindi kvenna“ í tveimur hlutum í tímaritinu Fjallkon- an, 5. og 22. júní árið 1885. Greinin var birt undir dulnefninu Æsa. Árið 1894 var Bríet einn af stofnendum Hins íslenska kvenfélags og árið 1895 hóf hún útgáfu á Kvennablaðinu og var rit- stjóri þess til ársins 1926. Bríet átti hug- myndina að stofnun Blaðamanna- félagsins og voru hún og eiginmaður hennar meðal stofnfélaga árið 1897. Hún stofnaði Kvenréttinda félag Ís- lands árið 1907 en fyrir bæjar- stjórnarkosningarnar í Reykjavík sameinuðust Hið íslenska kven- félag, Kvenréttindafélag Íslands, Thorvaldsensfélagið, Hvítabandið og Kvenfélagið Hringurinn um að bjóða fram Kvennalista. Bríet var á framboðslistanum og hlaut kosn- ingu ásamt þremur öðrum frambjóð- endum hans. Hún sat í bæjarstjórn milli 1908 og 1912 og aftur milli 1914 og 1920. Árið 1914 var hún einn af stofnendum Verka- kvennafélagsins Framsóknar og hlaut hún ridd- arakross Hinnar íslensku fálkaorðu árið 1928. ÞETTA GERÐIST: 19. MARS 1908 Bríet flytur sitt fyrsta mál GUNNAR HELGI KRISTINSSON STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR ER 51 ÁRS. „Stjórnmál skilgreina sig sjálf á hverjum tíma og það sama gildir um stjórn- málafræðina. Það sem voru stjórnmál árið 1900 eru ekkert endilega stjórnmál dagsins í dag.“ Gunnar Helgi varð lektor í stjórnmálafræði árið 1989, dósent árið 1990 og prófessor frá árinu 1997.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.