Fréttablaðið - 19.03.2009, Qupperneq 46
30 19. mars 2009 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
kl. 20
Félagar í Kór Bústaðakirkju halda
einsöngstónleika í kvöld. Undirleikur
er í höndum Renötu Ivan, organista
Bústaðakirkju.
Þar koma fram Jóhanna V. Þórhalls-
dóttir, Margrét Helga Kristjánsdóttir,
Nathalía D. Halldórsdóttir, Sæberg Sig-
urðsson, Agnes Amalía Kristjónsdóttir
og eru þá ekki allir nefndir. Öll eru þau
félagar í Kór Bústaðakirkju. Á efnis-
skránni eru aríur og dúettar úr þekktum
óratoríum.
> Ekki missa af …
Tónleikum kvöldsins í
Múlanum. Þar koma tvær
hljómsveitir fram og mun
Tríó Sunnu Gunnlaugs hefja
leik. Ásamt Sunnu, sem
leikur á píanó, leika Þorgrímur
Jónsson bassaleikari og Scott
McLemore á trommur. Tríóið
leikur útsetningar Sunnu á
íslenskum þjóðlögum í bland
við frumsamið efni hljómsveit-
armeðlima. Tónlist sem höfðar
til fleiri en bara djassunnenda.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 í
nýjum sal í kjallaranum á Café
Cultura, Hverfisgötu 18.
Í liðinni viku frumsýndi
Stúdentaleikhúsið glænýtt
íslenskt leikrit: Þöglir far-
þegar fjallar um hóp fólks
sem þarf að takast á við
algjört raunveruleika-
hrun. Ungur höfundur,
Snæbjörn Brynjarsson,
skrifaði verkið og leik-
stýrir. Efnið sækir hann
í íslenskan samtíma og
tíðaranda: „Þetta er samt
ekkert raunsæisverk,“
segir hann. „Þetta eru
mun drastískari aðstæður
en hefðbundið stofudrama
býður upp á. Þetta er sér-
íslensk sýning.“
Verkið Þöglir farþegar er
sýnt í húsnæði á Eyjaslóð
úti á Granda við gömlu
höfnina í Reykjavík.
Stúdentaleikhúsið minn-
ist þess með sýningunni
en um þessar mundir eru
áttatíu ár síðan nemendur
við Háskóla Íslands settu
á stofn félagsskap til að
sinna leiklist og sýning-
arhaldi. Allar upplýsing-
ar um þetta verkefni og
leikhúsið má finna á vef-
síðum: : thoglirfartheg-
ar.blogspot.com / FACE-
BOOK-Þöglir farþegar.
Næstu sýningar verða
á föstudag 20. mars kl.
20 og miðnætursýning á
laugardag kl. 24,
- pbb
Þöglir farþegar á Grandanum
Frægur einleikur byggður á dag-
bókum og bréfum ungrar banda-
rískar stúlku sem fórst í hern-
aðarátökum í Palestínu verður
frumsýndur í Borgarleikhúsi í
kvöld. Rachel Corrie var drepin á
Gasa fyrir sex árum, hinn 16. mars,
þar sem hún stóð í vegi fyrir jarð-
ýtu sem átti að keyra niður íbúðar-
hús palestínskrar fjölskyldu. Jarð-
ýtan ók yfir Corrie og hún lést af
sárum sínum aðeins 23 ára gömul.
Morðið á henni vakti minni
athygli en andlát tveggja annarra
Vesturlandabúa sem týndu lífi í
átökum þar 2003. Leikarinn góð-
kunni, Alan Rickman, og breski
blaðamaðurinn Katherine Viner
skrifuðu upphaflegu leikgerðina
en leikritið hefur svo farið eins og
eldur um sinu síðan það var frum-
sýnt í Royal Court leikhúsinu árið
2005. Corrie skildi eftir sig dag-
bækur og bréf til fólksins síns
heima sem, auk þess að bera lífs-
viðhorfi hennar og baráttuþreki
glöggt vitni, gefa sannfærandi
mynd af leit ungrar manneskju að
sjálfri sér og tilgangi í lífinu.
Þóra Karítas Árnadóttir fer með
hlutverk Rachel Corrie en hún er
upphafsmaður þess að verkið er
tekið hér til sýninga og naut meðal
annars tilstyrks Leiklistarráðs til
að koma sýningunni á svið. María
Ellingsen leikstýrir verkinu sem
verður flutt á Litla sviðinu. Frum-
sýnt er í kvöld kl. 20.
pbb@frettabladid.is
Stúlka drepin af jarðýtu
LEIKLIST Þóra Karítas Árnadóttir leikkona fer með hlutverk Rachel Corrie í kvöld.
MYND FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í kvöld flytur Sinfóníu-
hljómsveit Íslands þrjú
verk eftir Atla Heimi
Sveinsson. Eitt þeirra er ný
sinfónía, samin á síðasta
ári. Hin tvö eru eldri, samin
árin 1973 og 1979. Annað
þeirra er rómaður flautu-
konsert sem Atli samdi upp-
haflega fyrir Robert Aitken
en nú flytur Melkorka
Ólafsdóttir margbreytileg-
an einleikinn á móti hljóm-
sveitinni. Stjórnandi í kvöld
er Baldur Brönnimann.
Tónleikarnir eru helgaðir tón-
verkum Atla í tilefni af sjötugs-
afmæli hans á síðasta ári. Eldri
verkin tvö eru vel kunn: verkið frá
1973 er helgað Hreini Friðfinns-
syni myndlistarmanni og var sett
út fyrir sinfóníu 1979 og kom þá
út á vínil í stjórn Pauls Zukofsky.
Atli hefur unnið áfram við verkið
og nefnir það nú eftir einu verka
Hreins: Ég hef horft á hafið gegn-
um tárin, eftir einni af myndum
Hreins. Atli kennir verkið við
endurtekningarmúsík, eins konar
minímalisma.
Flautukonsertinn frá 1973 hlaut
Tónlistarverðlaun Norðurlanda
árið 1976. Þar eru notaðar margs
konar flautur, pikkólóflautur,
vanalegar flautur og austurlenska
flautu. Hljómsveitin er styrkt með
öflugu hammondorgeli og miklu
slagverki.
Frumflutningur kvöldsins
er sjötta sinfónía tónskáldsins.
Hljómsveitin verður stór í kvöld og
bætt er við mörgum hljóðfærum
sem óvanaleg eru í sinfóníuhljóm-
sveit, til dæmis hljómborði raf-
knúnu eins og í poppinu, fölskum
píanógarmi, rafgítar og -bassa: og
allt uppmagnað! Þá eru fimm slag-
verksleikarar ásamt pákumeistara.
Verkið er í 13 þáttum. Áhugasam-
ir sem ekki eiga heimangengt geta
hlustað á beina útsendingu á rás 1
Ríkisútvarpsins í kvöld kl. 19.27.
pbb@frettabladid.is
Ný sinfónía Atla hljómar
TÓNLIST Atli Heimir Sveinsson á æfingu Sinfóníunnar í gær. MYND FRETTABLAÐIÐ/GVA
Hart í bak
Þrettándakvöld
Sædýrasafnið
Skoppa og Skrítla í söng-leik
Eterinn
Kardemommubærinn
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is