Fréttablaðið - 19.03.2009, Síða 50
34 19. mars 2009 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
149 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
SENDU SMS ESL MGV
Á NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ EINTAK!
VINNINGAR ERU MADAGASCAR Á DVD,
TÖLVULEIKIR, AÐRAR DVD MYNDIR,
GOS OG MARGT FLEIRA.
Dreifing
9. HVERVINNUR!
> FÉKK SONINN Í MYND
Clint Eastwood ætlar að koma
syni sínum, Scott Eastwood, á
framfæri á hvíta tjaldinu og
hefur útvegað honum
hlutverk í mynd um
Nelson Mandela sem
góðvinur hans, Morg-
an Freeman, mun að
öllum líkindum gera
með Matt Damon.
Þrátt fyrir að enn séu tveir
mánuðir þar til önnur mynd-
in um Transformers eða
Umbreytingana verður frum-
sýnd þá eru framleiðend-
urnir nokkuð öruggir með
að hún eigi eftir að mala
gull eins og sú fyrsta. Því
nú hafa Paramount-kvik-
myndaverið og Dream-
works tilkynnt að þriðja
myndin sé í farvatninu.
Og þegar hefur verið til-
kynnt um frumsýning-
ardag; hún kemur fyrst
fyrir sjónir almennings
þann 1. júlí 2011.
Variety segir þetta sýna
mikla herkænsku því svo
vill til að þjóðhátíðardag
Bandaríkjanna, 4. júlí, ber
upp á þá helgi og er mönnum
til efs að nokkru kvikmynda-
veri detti til hugar að reyna
að skáka þessari dagsetningu
með einhverjum fokdýrum
sumarsmelli. Þegar 4. júlí
ber upp á helgi er það yfir-
leitt ávísun á góða aðsókn.
Reyndar má segja að bæði
Paramount og Dreamworks
séu nokkuð djörf því það
getur komið kjánalega út ef
mynd númer tvö gengur ekki
vel í kvikmyndaáhugafólk
þótt taldar séu litlar líkur á
því.
Variety bendir jafnframt
á að þetta sé til marks um
að kvikmyndaverin verði að
tryggja góða aðsókn að jafn
dýrum myndum og Trans-
formers og því séu frumsýn-
ingar nú skipulagðar langt
fram í tímann. Besta sönn-
unin fyrir því er að ekki er
enn búið að ganga frá samn-
ingum við leikstjóra Trans-
formers-myndanna, Michael
Bay, né við aðalleikarana
Shia LaBeouf eða Megan
Fox.
Tilkynnt um þriðju Umbreytingamyndina
ÞRIÐJA MYNDIN VERÐUR GERÐ Þriðja myndin um Optimus Prime og
félaga hans verður frumsýnd 1. júlí 2011.
FRUMSÝNDAR UM HELGINA
Duplicity
Stórleikararnir Clive Owen og Julia
Roberts fara með hlutverk fyrrver-
andi leyniþjónustustarfsmanna sem
hafa lagt þá iðju á hilluna og græða
nú á tá og fingri á köldu stríði milli
tveggja stórfyrirtækja. Þau lenda
síðan í miklum eltingarleik um
leyniformúlu sem talin er geta gefið
vel í aðra höndina. Leik-
stjóri er Tony Gilroy en
meðal annarra leikara
má nefna snillinginn
Paul Giamatti.
Dómur Rotten
Tomatoes: 60
af 100
Race to Witch Mountain
Glímukappinn sem eitt sinn gekk
undir nafninu The Rock en heitir nú
Dwayne Johnson fer með hlutverk
leigubílstjóra í þessari ævintýra-
mynd frá Disney. Farþegarnir sem
hann fær eru þó ekkert venjulegir
því þótt þeir líti út fyrir að vera
venjulegir táningar eru þeir í raun
og veru geimverur. Og þessar geim-
verur brotlentu skipi sínu á Witch
Mountain í Nevada og
verða að bjarga því,
annars koma óvinveitt-
ar geimverur og leggja
jörðina í rúst.
Dómur Rotten
Tomatoes:
37 af 100
Blái fíllinn
Það virðist vinsælt að búa til
bardaga hetjur í teiknimyndum og
nægir þar að minnast á Kung Fu
Panda. Nú er það fíll sem fær að
reyna sig við bardagalistir. Blái fíllinn
á pabba sem var mikil hetja og lét
lífið í miklum bardaga við vondan
fíl. Litli blái fílinn erfir hæfileika
föður síns og þegar árin líða verður
hann sjálfur að kljást við þann sem
gerði út af við föður hans.
Dómur Rotten Tomatoes: Enginn
dómur
Imdb.com: 5,3
Killshot
Mickey Rourke er ekki sestur í helg-
an stein þótt hann hafi ekki fengið
Óskarinn. Hann heldur áfram að
leika og nú er hann í hlutverki leigu-
morðingja sem er á mála hjá maf-
íunni. Hann hefur hingað til verið
ósýnilegur en fyrir slysni sjá venju-
leg úthverfahjón hann að störfum.
Ekki þarf að fjölyrða um að þau eru
í mikilli hættu vegna þessa
og eru sett í vitnavernd á
vegum FBI. Slíkt stöðvar
þó ekki leigumorðingj-
ann sálarlausa. Í öðrum
hlutverkum eru Diane
Lane og Thomas
Jane en leikstjóri er
John Madden.
Dómur Rotten
Tomatoes: Enginn
dómur
Imdb.com: 8,3 af
10
Undanfarin sumur hafa
einkennst af umtalsverðum
fjölda framhaldsmynda.
Árið í ár er engin undan-
tekning og kvikmyndaunn-
endur geta því ekki búist
við því að sjá ný andlit
þegar sól tekur að hækka á
lofti.
Sumarsmellir eru nauðsynlegir
fyrir kvikmyndaverin. Af þeim
kemur sá gróði sem heldur þeim
á floti. Ekki er hægt að sjá að
alheimskreppan og lausafjárskort-
ur hafi hrellt sumarframleiðsluna
í Hollywood því það verður mikið
um öskur og læti þegar hverja stór-
myndina á fætur annarri rekur á
fjörur landsmanna.
Í sól og sumaryl með Logan
Ofurhetjur hafa verið nokkuð
fyrirferðarmiklar því svo virð-
ist sem heimsbyggðin þreytist
seint á að horfa á venjulegt fólk
með óvenjulega hæfileika. Engin
kvikmynd um „stórstjörnu“ lítur
þó dagsins ljós og því fá áhorfend-
ur frí frá Leðurblökumanninum,
Köngulóarmanninum og Ofur-
menninu þetta árið.
Hins vegar telja kvikmynda-
spekúlantar að þetta verði ár
Wolferine eða Úlfsins en það er
Óskarsverðlaunakynnirinn Hugh
Jackman sem fer með hlutverk
Logan í þessari sérkvikmynd um
skaphundinn. Ekki hefur mikið
lekið út um söguþráðinn en vitað
er að Logan hyggur á hefndir
eftir að kærasta hans er drepin
af Victor Creed eða Sabertooth.
Transformer 2 á eflaust eftir að
veita Logan mikla samkeppni en
fyrri kvikmyndin hlaut frábæra
dóma og mikla aðsókn.
G.I. Joe: Rise of Cobra á örugg-
lega eftir að berjast við Logan um
hylli unglingsdrengja sem elska
menn með byssur. Kvikmyndin
skartar Siennu Miller í aðalhlut-
verk sem sprangar um í níðþröng-
um galla og það verður eflaust ekki
til að skemma skemmtunina fyrir
táningspiltum. Upphaflega stóð
til að þessi sérsveit yrði á vegum
Sameinuðu þjóðanna en horfið
var frá þeirri hugmynd snögglega
vegna áskorana frá aðdáendum.
Og því verða G.I Joe alvöru amer-
ískar hetjur sem berjast við þrjóta
og illmenni á sinn sérstaka hátt.
Af öðrum leikurum í þessari sum-
armynd má nefna reynsluboltann
Dennis Quaid. Ekki má heldur
gleyma Harry Potter and the
Halfblood Prince en þær myndir
eru örugg ávísun á gull og græna
skóga og má reikna með miklu æði
þegar Daniel Radcliffe setur upp
gleraugun góðu.
Bale bjargar heiminum
Fyrrum barnastjarnan Christian
Bale hefur undanfarin sumur
trekkt áhorfendur að sem
Leðurblökumaðurinn og ferill
hans náði ákveðnu hámarki í fyrra
þegar Dark Knight fyllti hvern
kvikmyndasalinn á fætur öðrum.
Bale reynir þó að toppa sjálfan
sig í ár með tveimur myndum sem
þykja báðar líklegar til vinsælda.
Annars vegar mun Bale bregða
sér í hlutverk framtíðarhetjunn-
ar Johns Connor sem Linda Ham-
ilton bjargaði frá glötun í gömlu
Terminator-myndunum. Connor
er nú vaxinn úr grasi og við fáum
að fylgjast með honum berjast við
vélarnar morðóðu í Terminator:
Salvation. Bale verður jafnframt
einn af Óvinum ríkisins en það er
einmitt nafnið á nýjasta verki hins
afbragðsgóða Michaels Mann. Bale
verður þar í hlutverki Melvins Pur-
vis sem var þjóðþekktur glæpa-
maður á tímum áfengisbannsins í
Bandaríkjunum en kastljósið mun
eflaust beinast að Johnny Depp
sem vekur hinn goðsagnakennda
John Dillinger upp frá dauðum.
Annar gæðaleikstjóri á borð við
Mann verður einnig með sumar-
mynd í ár en það er bandaríski
leikstjórinn og Íslandsvinurinn
Quentin Tarantino. Tarantino er
að leggja lokahönd á stríðsmynd-
ina Inglorius Bastards í Þýska-
landi um þessar mundir með Brad
Pitt og Mike Meyers og má reikna
með að aðdáendur hans flykkist í
bíó til að sjá nýjasta meistaraverk
þessa sérlundaða manns. Ekki
skemmir heldur fyrir að Heba
Þórisdóttir sér um förðunina og
það ætti að kæta þjóðarstoltið á
þessum síðustu og verstu.
Hláturinn lengi lifi
Grínið hefur stundum stolið sen-
unni á sumrin og er skemmst
að minnast smellsins Wedding
Crashers með þeim Owen Wil-
son og Vince Vaughn. Margir spá
Adam Sandler miklum vinsæld-
um í sumar með myndinni Funny
People en þar verður Seth Rogen í
einu aðalhlutverkanna. Jack Black
hefur einnig átt það til að ramba
á réttu hlutina og The Year One
gæti höfðað til frummannlegra
hvata nútímamannsins. Ekki má
heldur gleyma framhaldinu af A
nigth at the Museum þar sem Ben
Stiller endurtekur rullu sína sem
hinn seinheppni safnvörður Larry
Daley.
Þessi upptalning er náttúru-
lega hvergi nærri tæmandi. Ang-
els & Demons eftir Ron Howard er
byggð á metsölubók Dans Brown
og er sjálfstætt framhald Da Vinci-
lykilsins. Tom Hanks endurtekur
hlutverk táknfræðingsins Roberts
Langdon. Þá eru óupptaldar teikni-
myndirnar Up og Ice-Age: Tími
risaeðlanna sem ættu að geta rakað
saman nokkrum krónum.
Safaríkt sumar fram undan
STJÖRNUR SUMARSINS
Andlitin á Hugh Jackman, Siennu Miller, Daniel Radcliffe, Tom Hanks og
Johnny Depp verða áberandi á veggjum kvikmyndahúsanna í sumar. Jackman
leikur Logan í X-Man mynd um Úlfinn, Miller er í aðalhlutverki í G.I. Joe og
Radcliffe setur upp gleraugun sem Harry Potter. Tom Hanks endurtekur leikinn
sem Robert Langdon og Johnny Depp er John Dillinger í kvikmynd Michaels
Mann um Óvini ríkisins.