Fréttablaðið - 24.03.2009, Síða 4
4 24. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR
SJÁVARÚTVEGUR Sænska verslunar-
keðjan Coop er nú með það til skoð-
unar að hætta að selja lax alinn á
mjöli úr matfiski. Íslendingar
veiddu í fyrra 110 þúsund tonn af
makríl sem fór að mestu í mjöl,
sem síðan var selt norskum laxa-
bændum.
Vaxandi umræða er nú á meðal
neytenda á Norðurlöndunum um
uppruna eldisfisks. Sænska ríkis-
sjónvarpið hefur verið með umfjöll-
un um málið og sýndi RÚV brot úr
einum þættinum, sem vakið hefur
hörð viðbrögð. Eins og Fréttablaðið
greindi frá í gær var framkvæmda-
stjóra Eskju sagt upp í kjölfar þátt-
arins og verksmiðjustjóri færður til
í starfi.
Mikael Robertsson, yfirmað-
ur umhverfismála hjá Coop, segir
að hætta sé á að verslunin taki
norskan eldislax úr búðum hjá sér
í kjölfar umfjöllunar fjölmiðla.
Krafan sé að laxinn sé ræktaður
á umhverfisvænan og sjálfbæran
hátt. Meðal þess sem kemur fram í
þættinum sænska er að fyrir hvert
kíló af eldislaxi þurfi 2,5 af villt-
um fiski. Þá var fullyrt að mikið af
þeim fiski sem færi í fóður kæmi
úr stofnum sem væru ofveiddir, í
hættu eða stunduð væri rányrkja
á.
„Við höfum ákveðið að selja ekki
fisk frá Chile, auk þess höfum við
sett fram auknar kröfur um hvaða
fiskur fer í fiskimjöl/fóður. Við vilj-
um tryggja að þetta byggi á vís-
indalegum grunni, réttar tegund-
ir séu, fiskurinn rétt unninn og vel
rekjanlegur,“ segir Mikael. Coop sé
að horfa æ meira til fisks sem alinn
sé á fæði unnu úr grænmeti.
Coop er með
21,4 prósenta
markaðshlut-
deild á sænsk-
um smávöru-
markaði og velti
tæpum 30 millj-
örðum sænskra
króna á síðasta
ári.
Friðrik J. Arn-
grímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segist ekki
hafa miklar áhyggjur af mjöl-
mörkuðum. „Við þurfum að lýsa
þeim staðreyndum sem búa að
baki okkar veiðum og þá eru engar
forsendur til að banna eitt eða neitt
af íslenskri framleiðslu.“
Gunnþór Ingvason, fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar,
segist ekki telja að þetta hafi áhrif
á viðskipti fyrirtækisins. Mikil-
vægt sé að kynna fiskveiðikerfi
Íslendinga, sem byggist á sjálf-
bærni. Allar afurðir fyrirtækisins
séu rekjanlegar til stofna sem stýrt
sé í fiskveiðikerfinu.
Árið 2005 nam mjölútflutningur
10 prósentum af heildarverðmæti
útfluttra sjávarafurða. Langstærst-
ur hluti er fluttur til Noregs þar
sem mjölið er nýtt í fiskeldi.
kolbeinn@frettabladid.is
Vilja ekki lax alinn
á mjöli úr matfiski
Sænska verslunarkeðjan Coop íhugar að hætta sölu á norskum eldislaxi en
hann er alinn á íslensku mjöli. Íslenskir framleiðendur vilja skýra sín sjónar-
mið. Vaxandi andstaða er við að mjöl úr matfiski sé nýtt í fiskeldi.
LOÐNUVEIÐAR Mest af því fiskimjöli sem selt er til Noregs er unnið úr loðnu.
Bræðsla á makríl hefur hins vegar vakið viðbrögð á Norðurlöndum. Íslendingar óska
eftir að fá makrílkvóta en aðrar þjóðir, til dæmis Norðmenn, hafa ekki viljað setjast
að samningaborðinu.
MIKAEL
ROBERTSSON
ÝSA Í RASPI, MARINERAÐAR
FISKSTEIKUR OG ALLIR FISK
RÉTTIR.
ALLIR FISKRÉTTIR
KR/KG
JÓHANNESARBORG, AP Stjórnvöld í Suður-
Afríku hafa bannað Dalai Lama, leiðtoga
Tíbeta, að koma á friðarráðstefnu sem hefst
á í Jóhannesar borg á föstudag. Ástæðan
fyrir banninu er sögð vera til að halda í góð
samskipti við Kína. Þess í stað hefur ríkið
orðið fyrir mikilli gagnrýni.
Það er suður-afríska knattspyrnusam-
bandið sem stendur fyrir ráðstefnunni í til-
efni þess að heimsmeistarakeppnin í knatt-
spyrnu verður í Suður-Afríku á næsta ári.
Það verður í fyrsta sinn sem sú keppni er
haldin í Afríku. Meðal umræðuefna verður
hvernig berjast skal gegn kynþáttahatri og
hvernig íþróttir geta sameinað fólk og þjóð-
ir.
Fyrst Dalai Lama hefur verið bönnuð þátt-
taka hafa tveir friðarverðlaunahafar Nóbels,
þeir Desmond Tutu, erkibiskup í Höfðaborg,
og F.W. de Klerk, fyrrum forseti landsins,
hafnað þátttöku á ráðstefnunni. Suður-Afr-
íka „ætti að hleypa hverjum þeim að sem
hefur lögmætra og friðsælla hagsmuna að
gæta og það ætti ekki að ákveða á pólitísk-
um forsendum, hver megi og hver megi ekki
mæta,“ sagði de Klerk við fjölmiðla í gær
þegar hann lýsti því yfir að hann myndi ekki
taka þátt í ráðstefnunni.
Kína á í mestum viðskiptum við Suður-
Afríku, af öllum löndum heimsálfunnar. - ss
Dalai Lama fær ekki að koma á friðarráðstefnu í Suður-Afríku:
Tutu og de Klerk mæta ekki heldur
DALAI LAMA Fyrst Dalai Lama fær ekki að fara á
friðarráðstefnu í Jóhannesarborg ætla Desmond Tutu
og F.W. de Klerk ekki að mæta heldur.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Rannsóknir embættis
sérstaks saksóknara vegna banka-
hrunsins munu ekki stranda á fjár-
heimildum, segir Steingrímur J.
Sigfússon fjármálaráðherra.
Embættið þarf að vera öflugra
og umfangsmeira en upphaflega
var áætlað, og afar brýnt að sak-
sóknarinn hafi nægt fé til að
ráða þá starfsmenn sem þarf,
og kaupa sérfræðiráðgjöf, segir
Steingrímur.
Frumvarp sem styrkja mun
heimildir sérstaks saksóknara
til að afla gagna er nú til
umfjöllunar á Alþingi. - bj
Embætti sérstaks saksóknara:
Saksóknari fái
aukið fjármagn
VINNUMARKAÐUR Hrognavinnsla
Vignis G. Jónssonar á Akranesi
og fiskvinnslufyrirtækið Brim
munu greiða starfsfólki sínu áður
umsamdar launahækkanir, líkt og
HB Grandi gerði nýlega.
Hjá Hrognavinnslunni starfa
um þrjátíu manns og munu þeir fá
13.500 króna mánaðarlega viðbót
á launin. Hjá Brimi starfa um tvö-
hundruð við landvinnslu.
Þessum launahækkunum hafði
áður verið frestað í ljósi efnahags-
ástandsins.
Verkalýðsfélag Akraness grein-
ir frá þessu á heimasíðu sinni, en
félagið hefur um nokkurt skeið
bent á að til séu fyrirtæki sem geti
vel staðið við gerða samninga. - kóþ
Launahækkanir verkafólks:
Fleiri fyrirtæki
ætla að borga
SVÍÞJÓÐ Viktoría, krónprinsessa
Svía, og unnusti hennar, Daniel
Westling, gifta sig laugardaginn
19. júní á næsta ári. Hjónavígslan
fer fram í Stórkirkjunni í Stokk-
hólmi.
Nítjándi júní er merkilegur
dagur hjá sænsku konungsættinni
því að mörg brúðkaup hafa farið
fram þennan dag. Karl Gústaf
Svíakonungur gekk að eiga Silvíu
drottningu þennan dag árið 1976
og Óskar krónprins giftist Jósef-
ínu av Leuchtenberg 19. júní árið
1823. - ghs
Krónprinsessa Svíþjóðar:
Giftist Daníel
19. júní 2010
GIFTAST Á NÆSTA ÁRI Viktoría, krón-
prinsessa Svíþjóðar, giftist sínum heitt
elskaða Daniel Westling 19. júní.
NOREGUR Barnshafandi kona
fannst myrt ásamt tveimur
öðrum í íbúð í Tromsø í Noregi
á sunnudaginn. Maður hefur
verið handtekinn fyrir morðin en
hann hefur átt við geðsjúkdóm
að stríða og hlotið dóm fyrir rán
í Svíþjóð. Eiginmaður konunnar
og móðir hans eru meðal þeirra
myrtu, að sögn NRK.
Árásarmaðurinn er talinn hafa
brotist inn í íbúðina til nágranna
sinna. Móðirin fannst á stofugólf-
inu í íbúðinni en parið fannst á
gólfinu inni í svefnherbergi. Talið
er að átök hafi átt sér stað og þre-
menningarnir hafi verið myrtir
með hníf þar sem mikið blóð er í
íbúðinni. - ghs
Morð í Noregi:
Mikið blóð úti
um alla íbúð
Finnar öskureiðir
Fyrirætlanir sænska iðnaðarrisans
Stora Enso um að flytja hluta af
pappírs- og timburframleiðslu sinni
frá Finnlandi til Svíþjóðar hafa mætt
mikilli andstöðu í Finnlandi. Finnsku
stéttarfélögin eru öskureið og hafa
mótmælt kröftuglega.
FINNLAND
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
19°
9°
7°
4°
2°
8°
9°
5°
2°
3°
20°
11°
7°
25°
0°
10°
16°-
1°
Á MORGUN
3-10 m/s
FIMMTUDAGUR
8-15 m/s
2
1
-1
0
0
0
0
4
4
5
-2
9
10
10
10
4
5
4
10
7
5
10
15
-1-2
-4
-5
-4
-5
-2
-5
-6
-7
VETUR Í KORTUNUM
Í dag og raunar næstu
daga verður víða
vetrarlegt á landinu. Í
dag er lægð að ganga
austur með landinu
og því má búast við
snjókomu eða slyddu
en þó rigningu allra
syðst um hádegi.
Lægðin gengur svo
austur á bóginn og í
kjölfarið gengur hann
í norðlæga átt og við
taka kaldir vindar með
frosti víða um land.
Að deginum gæti þó
hitinn hangið yfi r núll-
inu sunnanlands.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
GENGIÐ 23.03.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
186,8572
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
112,64 113,18
164,33 165,13
153,82 154,68
20,643 20,763
17,811 17,915
13,954 14,036
1,1683 1,1751
170,52 171,54
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR