Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2006, Side 13

Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2006, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2006 13 Veist þú hver gefur út Bæk- urnar að vestan? Svarið er í Bóka- tíðindum Desembersvali Skemmtibók með stuttum smásögum, ferðasögu frá París og mörgum krossgátum Hafliði Magnússon Bókaskápur Þorsteins frá Hamri Morgunblaðið/Einar Falur Þorsteinn „Allt frá barnæsku hefur mér liðið vel innan um bækur.“ Höfuðpersóna Sunnudagsklúbbs heimspekinganna er einhleyp, ábyggileg og kurteis kona búsett í Edinborg. Hún heitir Isabel Dal- housie, er á fimmtugs- aldri og hefur erft svo mikið af peningum að hún getur bókstaflega eytt tíma sínum í það sem henni sýnist. Þann góða kost notfærir hún sér óspart, hún lifir áhyggjulausu velsæld- arlífi, borðar fínan mat, drekkur góð vín og safn- ar vönduðum listaverk- um. Að auki dundar hún sér við að ráða kross- gátur og ritstýra tíma- riti um hagnýta siðfræði. Fyrir tilviljun verður Isabel vitni að því að ungur maður deyr þegar hann fellur niður af svölum tónleikahallar á meðan Sin- fóníuhljómsveit Íslands er að spila. Atvikið er afgreitt sem slys en að Isabel læðist lúmskur grunur um að manninum hafi hreinlega verið hrint fram af. Af forvitni tekur hún upp á því að rannsaka málið á eig- in vegum og beitir til þess ekki ósvipuðum aðferðum og fræg sögu- persóna Agöthu Christie, miss Marple, notaði á sínum tíma, þótt Isabel sé nú ekki jafn snjöll og hin skarpskyggna miss Marple. Inn í söguna fléttast samskipti Isabel við yngri frænku sína sem rekur sæl- keraverslun og á í vandræðum með kærastann, ákveðnu vinnukonuna og spíritistann Grace og fagottleik- arann og vininn Jamie. Isabel er heimspekingur og spáir stöðugt í heimspekileg vandamál. Hún veltir t.a.m. vöngum yfir siðfræðilegum spurningum um sannleika og lygi sem flestir velta einhvern tíma fyr- ir sér, t.d. hvort fólk eigi að segja satt í kynlífs- samböndum og hvort segja skuli vinkonu frá ef mað- ur kemst að því að kærastinn hennar heldur framhjá. Hér er aldeilis ekki á ferðinni harðsoðinn reyfari þar sem mönnum er misþyrmt, blóðið flýtur og líkin eru illa útleikin. Nær væri að tala um lin- soðna eða hæfilega mjúka sögu. Sú sem vinnur að lausn glæpsins notar sitt kvenlega innsæi. Hún kemur sér fimlega í kynni við fólk, spjallar kurteislega við það og fær þannig á tilfinn- inguna hvernig í málinu liggur og hver sé mögulega sá seki. Isabel Dalhousie er nokkuð ný- stárlegur spæjari og ég spái því að bækur um hana eigi eftir að verða mörgum ágæt dægrastytting. Það er létt og notalegt andrúmsloft í þessari bók. Taktur og tónfall minnti mig á ljúfa djasstónlist sem fékk mig til að slaka á og brosa með sjálfri mér. Forvitni og fínerí BÆKUR Skáldsaga Eftir Alexander McCall Smith, Helga Soffía Einarsdóttir þýddi. 243 bls. Mál og menning 2006. Sunnudagsklúbbur heimspekinganna Þórdís Gísladóttir Alexander McCall Smith

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.